Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1990, Síða 70

Læknablaðið - 15.10.1990, Síða 70
430 LÆKNABLAÐIÐ liður f stærri rannsókn, sem hefur að markmiði að kanna hversu stór hópur Islendinga gæti verið ófrjór af ónæmisfræðilegum orsökum. Ætlunin er að nálgast síðar þau pör sem reynt hafa árangurslaust að eignast bam í að minnsta kosti eitt ár (skilgreining á ófrjósemi). Við mótefnamælingar var notaður ZER prófefnapakki (kit), sem mælir IgG, IgM og IgA sáðfrumumótefni. Algengi hækkaðs styrks hjá körlum þessa hóps reyndist vera 4% en 7% hjá konum, sem er svipað og erlendar rannsóknir hafa sýnt. Erlendar rannsóknir sýna að tíundi hluti þeirra para, sem óska þess að eignast bam, er ófrjór af einhverjum ástæðum. Þar af er talið að 10-20% ófrjórra para séu bamlaus vegna sáðfrumuónæmis. Niðurstöður þessarar könnunar benda til þess að á íslandi megi því hjálpa umtalsverðum fjölda einstaklinga með því að gefa viðkomandi ónæmishemjandi lyf. DJÚPAR SÝKINGAR OG LOS Á BRINGUBEINI EFTIR HJARTAAÐGERÐIR Höfundur: Kristinn B. Jóliannsson, handlœkningadeild Landspítalans Flytjandi: Kristinn B. Jóliannsson Hjartaaðgerðir vom gerðar á 515 íslendingum erlendis árin 1983 til 1986. Úndir kransæðaaðgerðir gengust 438 sjúklingar og 77 lokuaðgerðir vom gerðar. Mikið var um minniháttar sýkingar hjá þessum sjúklingum. Hjá 25 þessara sjúklinga þurfti að gera aðgerð vegna djúpra sýkinga í skurði, loss á bringubeini og sýkinga í miðmæti. Einn sjúklingur fór utan í aðgerð vegna beineyðingar í bringubeini og djúpra sýkinga í miðmæti. Tíðni djúpra sýkinga hjá þessum sjúklingahópi var 4,8%. Tvö hundmð og fimmtán brjóstholsaðgerðir vom gerðar á brjóstholsaðgerðadeild Landspítalans frá 15. júní 1986 til 5. mars 1989. Hjá fjómm þessara sjúklinga þurfti að gera aðgerð vegna sýkinga og loss á bringubeini, eða 1,4%. Tíðni minniháttar sýkinga var lítil. Hjá báðum þessum sjúklingahópum greru sárin eftir meðferð og aðeins hjá einum þurfti að gera aðgerð vegna beineyðingar.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.