Læknablaðið - 15.02.1991, Síða 25
LÆKNABLAÐIÐ 1991: 77: 61-5.
61
Kristín Ingólfsdóttir, Guöborg A. Guöjónsdóttir
GREINING GINSENOSÍÐ SAMBANDA í
GINSENG AFURÐUM
ÚTDRÁTTUR
Háþrýstivökvagreining (HPLC) var
notuð til að greina ginsenosíð sambönd
í ginseng afurðum sem seldar eru hér á
landi. Niðurstöður sýna að ginsenosíð
innihald er mjög mismikið í þeim afurðum
sem rannsóknin tók til, bæði hvað varðar
heildarstyrk ginsenosíða og innbyrðis
hlutfall þeirra. Ráðleggingar framleiðenda
unt skammtastærðir eru afar breytilegar og
niðurstöður sýndu að heildarmagn ginsenosíð
sambanda í dagskammti, samkvæmt tilmælum
framleiðenda, er frá því að vera nánast ekkert
og upp í 55 mg. Niðurstöður benda eindregið
til að þörf sé fyrir strangara og virkara eftirlit
með náttúruvörum.
INNGANGUR
Rætur ginseng jurtarinnar (Panax ginseng
C.A. Meyer og aðrar Panax tegundir) hafa
lengi verið notaðar í lækningaskyni í Kína og
Austur-Asíu. Ymsar afurðir sem innihalda
ginseng rót eru seldar á Vesturlöndum,
meðal annars hérlendis, en þekking okkar
er lítil, bæði á innihaldi þessara afurða og
verkan þeirra. Almennt er þó viðurkennt, að
í ginseng séu líffræðilega virk efni, svokölluð
ginsenosíð sambönd og að neysla þess geti
haft væg örvandi áhrif. Tilgangur þeirrar
rannsóknar sem hér var gerð var að ákvarða
magn ginsenosíð sambanda í ginseng afurðum
sem seldar eru hérlendis.
Efnafræðilega séð, flokkast ginsenosíð sem
tríterpen saponín sambönd. Um tvenns
konar kjama (aglykon) er að ræða, annars
vegar 20-S-prótópanaxadíol (til dæmis
ginsenosíð Rbi, Rb^, Rc, Rd), hins vegar
20-S-prótópanaxatríol (til dæmis ginsenosíð
Re, Rf, Rgi). Eins og sést á mynd, líkjast
Frá lyfjafræöi lyfsala, Háskóla íslands. Fyrirspurnir,
bréfaskipti: Kristín Ingólfsdóttir.
b)
Mynd. Efnabygging ginsenosííi kjarna:
a) Prótópanaxadíó!; sykrur tengjast -OH hóputn í stöóum
3 og 20.
h) Prótópanaxatríól: sykrur tengjasl -OH hópum í stööum
6 og 20.
kjamar ginsenosíð sambanda efnabyggingu
stera. Yfirleitt tengjast sykrur kjamanum á
tveimur stöðum. I prótópanaxadíól glýkósíð
samböndum tengjast sykrur
-OH hópum í stöðum C-3 og C-20, en í
prótópanaxatríól samböndum í stöðum C-6
og C-20. Sykrumar eru einkum glúkósa,
arabínósa og rhamnósa.
Þrátt fyrir umfangsmiklar rannsóknir
síðastliðna áratugi, eru verkanir ginseng rótar í
mönnum enn óljósar (1-3). Mikils ósamræmis
hefur gætt við framkvæmd rannsókna og því
reynst erfitt að bera saman niðurstöður. Þetta
stafar meðal annars af því, að notuð hafa verið
óstöðluð extrökt úr ginseng rót, en ginsenosíð