Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1991, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 15.02.1991, Blaðsíða 42
78 LÆKNABLAÐIÐ 1991; 77: 78-81. Anna Stefánsdóttir (1), Sveinn Magnússon (2), Þorsteinn Blöndal (3) LÆKNAR OG REYKINGAR ÁGRIP Reykingavenjur íslenskra lækna voru kannaðar í úrtaki 166 karla og 29 kvenna á aldrinum 26-79 ára. Árið 1989 reyktu 13% daglega en önnur 13% sjaldnar. Daglegar reykingar voru tvisvar til þrisvar sinnum fátíðari en meðal almennings, en tækifærisreykingar voru á hinn bóginn tvisvar til þrisvar sinnum algengari. Með hækkandi aldri jókst tíðni reykinga en einnig höfðu þá fleiri hætt að reykja. Vinsælustu reykfærin voru sígarettur (39%), vindlar (27%) og pípa (27%). Minnst var um reykingar meðal heimilislækna en mest meðal lyflækna og geðlækna. Algengasta ástæða sem læknar gáfu upp fyrir því að reykja ekki var að »halda heilsunni«. Læknar réðu fólki frá því að reykja, einkum ef reykingasjúkdómar höfðu fundist eða, ef fólk hafði sjálft fært reykingar sfnar í tal en miklu síður ella. Einnig fór ráðgjöf læknis í þessu efni að verulegu leyti eftir því hvort hann/hún reykti eða ekki. INNGANGUR Erlendis hafa reykingavenjur lækna oft og víða verið athugaðar (1,2). Slíkar kannanir hafa ekki verið gerðar hérlendis nema á einstaka vinnustöðum (3,4). Árið 1987 ákvað Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) að hvetja læknafélög Evrópu til að kanna reykingavenjur lækna (5). Megin tilgangurinn var að vekja lækna til umhugsunar um þátt sinn í tóbaksvömum (6). Að frumkvæði Læknafélags Islands var ákveðið að gera könnun á reykingavenjum íslenskra lækna enda engin heildargögn til um þær áður. EFNIVIÐUR Unninn var spumingalisti úr tillögum WHO (5). Notuð var félagaskrá L.í. í ársbyrjun 1989 voru á skrá 1192 læknar, þar af 354 Frá 1) læknadeild Háskóla íslands, 2) Heilsugæslunni i Garöabæ, 3) lungna- og berklavarnadeild Heilsuverndarstöövar Reykjavíkur. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Þorsteinn Blöndal. Tafla I. Reykingavenjur lœkna. Reykingavenjur Fjöldi % Hafa aldrei reykt .... 73 (37.4) Hætt .... 70 (35.9) Reykja minna en daglega .... 26 (13.3) Reykja daglega .... 26 (13.3) Alls 195 100 Tafla II. Reykingavenjur og aldur. Aldur Fjöldi alls (n) Aldrei reykt % Hætt % Reykja stundum % Reykja daglega % 26-29 ... ... 26 (53.8) (23.1) (11.5) (11.5) 30-39 ... .. . 40 (50.0) (17.5) (22.5) (10.0) 40-49 ... ... 56 (28.6) (41.1) (16.1) (14.3) 50-59 .... ... 37 (37.8) (37.8) (5.4) (18.9) 60-69 ... ... 25 (32.0) (52.0) (8.0) (8.0) 70-79 .... ... 11 (9.1) (63.6) (9.1) (18.2) erlendis. Var ákveðið að úrtakið skyldi ná til 200 lækna í skránni, sem búsettir væm hér á landi (tæp 24%). í febrúar og mars 1989 var haft símasamband við læknana eftir stafrófsröð. Gerðar vom að minnsta kosti þrjár tilraunir til að ná í lækni áður en annar varð fyrir valinu. Efri aldursmörk voru miðuð við 79 ár. Féllust 195 á að taka þátt í könnuninni en þrír karlar og tvær konur færðust undan. Þátttakendur voru því 166 karlar og 29 konur á aldrinum 26-79 ára (7). Kandídatar vom 22 (11%), læknar í framhaldsnámi 17 (9%), sérfræðingar 145 (75%) og læknar án sérfræðiviðurkenningar vom 7 (4%). Upplýsingar vantaði um fjóra (2%). Gögnin vom tölvuunnin. NIÐURSTÖÐUR Reykingavenjur læknanna koma fram í töflu I. Tuttugu og sex eða 13.3% reyktu daglega, þar á meðal ein kona. Jafn mörg reyktu sjaldnar en daglega, þar af fjórar konur. Sjötíu og þrjú (37.4%) höfðu aldrei reykt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.