Læknablaðið - 15.01.1993, Side 9
LÆKNABLAÐIÐ 1993; 79: 3-4
3
NABLAÐIÐ
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Læknaíclag Islands og l£JU|
Læknafclag Rcykjavikur
79. ARG.
JANUAR 1993
Læknafélag íslands 75 ára
Þann 14. janúar á þessu ári eru liðin 75 ár frá
stofnun Læknafélags Islands. Stjóm félagsins
þykir viðeigandi að minnast þessara tímamóta
í sögu félagsins með ýmsum hætti.
Dagskrá afmælisársins hefst með árshátíð
félagsins þann 16. janúar. Vikan 13.-18.
september á hausti komanda má kallast
afmælisvika Læknafélags íslands og vonandi
geta sem flestir læknar tekið þátt í því sem
þar verður boðið upp á. I vikunni verður
tveggja daga fræðslunámskeið, vísindadagur
opinn öllum íslenskum læknum og fyrirlestrar
boðsgesta. Sérstök afmælisdagskrá verður
einn dag vikunnar og í tengslum við aðalfund
Læknafélags Islands verða tvö málþing, annað
um siðfræði og hitt um fræðslu- og útgáfustarf
læknafélaganna.
A árinu munu svæðafélögin gangast fyrir
ráðstefnum um læknisfræðileg efni fyrir
almenning. Utgáfustarfsemi verður meiri en
endranær og helguð að hluta umfjöllun um
félagsmál, læknisfræðilega siðfræði, vísindi
og rannsóknir, skipulag heilbrigðisþjónustu og
atriði úr sögu Læknafélags Islands. Nú þegar,
með eins konar forskoti á afmælið, hefur
Læknafélag Islands átt aðild að VI. ráðstefnu
læknadeildar Háskóla Islands um rannsóknir
í læknadeild og voru við upphaf þeirrar
ráðstefnu flutt tvö erindi á vegum félagsins;
annað um grunnrannsóknir í læknisfræði
hér á landi og hið síðara um siðfræði og
læknavísindi. Fyrirlesarar voru læknamir
Guðmundur Þorgeirsson og Örn Bjamason.
Erindi þeirra munu birtast í febrúarhefti
Læknablaðsins.
Þess er vænst að á árinu 1993 hefjist ritun
sögu Læknafélags íslands og er unnið að
undirbúningi þess. I tilefni afmælisársins
sainþykkti aðalfundur Læknafélags Islands
rausnarlegt framlag til læknaminjasafnsins í
Nesstofu. Aður hafði prófessor Jón heitinn
Steffensen ánafnað Læknafélagi Islands
umtalsverðum fjármunum er renna skyldu
til safnins. Þessi framlög ættu að geta tryggt
að læknaminjasafnið verði að veruleika,
öllum læknum til sóma og verðug minning
um prófessor Jón heitinn Steffensen. A árinu
mun Læknafélag Islands taka ákvarðanir um
húsnæðismál sín. Þá er þess enn að geta að
veitt verður fjármunum til fræðslunefndar
læknafélaganna þannig að hún megi styðja
enn fjölbreyttara fræðslustarf en greint er
frá hér að framan. Margir læknar hafa verið
kallaðir til starfa vegna alls þessa og hafa allir
brugðist vel við.
I Læknablaðinu frá janúar 1918 segir svo
í grein eftir Guðmund Hannesson þar
sem greint er frá stofnun félagsins: »Um
það skal engu spáð, hversu félagi voru
famast, hvert gagn það getur unnið bæði
læknastéttinni og landinu, en eins dæmi væri
það áreiðanlega, ef það yrði ekki báðum til
gagns og blessunar. í öllum menningarlöndum
hafa læknar komið á fót föstum félagsskap
og skipulagi sín á milli, og fleiri eða færri
málgögnum til að ræða sín mál. Og hvervetna,
undantekningarlaust, að eg hygg, hefir þetta
komið að bestu notum. Ólíklegt er það,
að vér verðum eina undantekningin, að
oss gefist betur sundrung og sinnuleysi en
»organisation« og áhugi.«
A vegum Læknafélags Islands er unnið öflugt
starf að almennum félagsmálum, fræðslu,
siðfræðiþáttum, skipulagsmálum og beinum,
öðmm hagsmunamálum lækna, einstaklinga
eða heildar, hvort heldur hér heima eða með
þátttöku í starfi læknasamtaka á alþjóðlegum
vettvangi. Þá hefur félagið mótað og lagt
fram hugmyndir að skipulagi og uppbyggingu
einstakra þátta heilbrigðisþjónustunnar
og heilbrigðismála í landinu og reynt að
þoka áleiðis hugmyndum sem tryggðu
að heilbrigðisþjónustan byggðist á góðri
menntun og þjálfun ekki hvað síst lækna,
að heilbrigðiskerfið væri skipulagslega vel
virkt og aðgengilegt og rekið með þeirri
hagkvæmni sem gerði því mögulegt að standa
undir sjálfu sér og þeim kröfum sem til þess