Læknablaðið - 15.01.1993, Side 36
30
LÆKNABLAÐIÐ
Fig. I. The anatomical regions referred to in the
questionnaire.
var þýddur á íslensku. Listinn var sendur heim
til þátttakenda. Á listanuin var mynd sem
útskýrði hvemig líkamanum var skipt niður
í níu svæði (mynd 1) og var spurt sérstaklega
um hvert svæði (1-3). Til dæmis var spurt:
Hefur þú einhvern tíma síðustu 12 mánuðina
haft óþægindi (sársauka, verki, ónot) í hálsi?
í listanum voru annars vegar spumingar
almenns eðlis þar sem spurt var um verki
frá ýmsum svæðum líkamans og hins vegar
ítarlegri spumingar uin verki í hálsi, herðum
og neðri hluta baks.
Á árinu 1986 var hendingsúrtaki íslendinga
sendur spumingalistinn og hafa niðurstöður
úr þeirri rannsókn birst áður (1,2), en þær
eru hér notaðar til samanburðar við svör
fiskvinnslufólksins. Þessi samanburðarhópur
er hér eftir kallaður þjóðarúrtak.
Alls fengu 370 einstaklingar frá átta
fiskvinnsluhúsum spumingalistann.
Forsvarsmenn húsanna útveguðu lista með
nöfnum og heimilisföngum starfsmanna.
Ekki var unnt að afla hendingsúrtaks
fiskvinnslufólks meðal annars vegna þess
að önnur svipuð rannsókn með sama
spurningalista hafði verið gerð skömmu áður
í öðrum fiskvinnsluhúsum. Svör bárust frá
Table I. Participation and age distribution among men
of the sample of the Icelandic popuiation and of the
male workers in eight fish processing plants.
Age lcelandic population Male workers
Sample n (%) 421 (100) Participants n (%) 296 (70) Sample n 107 (%) (100) Participants n (%) 53 (50)
16-19 . . 47 (11) 42 (10) NA" _ 12 (11)
20-24 . . 57 (14) 33 (8) NA - 10 0)
25-29 . . 56 (14) 33 (8) NA - 7 (7)
30-34 . . 42 (10) 28 (7) NA - 3 (3)
35-39 . . 45 (11) 35 (8) NA - 3 (3)
40-44 . . 45 (11) 33 (8) NA - 2 (2)
45-49 . . 34 (8) 21 (5) NA - 2 (2)
50-54 . . 27 (6) 21 (5) NA - 4 (4)
55-59 . . 33 (8) 30 (7) NA - 5 (5)
60-64 . . 28 (7) 20 (5) NA - 5 (5)
Mean 37.0 34.1
Standard deviation 14.2 19.1
1) NA: Not available information.
Table II. Participation and age distribution among
women of the sample of the Icelandic population and
of the female workers in eight fish processing plants.
Age lcelandic population Female workers
Sample n (%) 434 (100) Participants n (%) 325 (75) Sample n 263 <%) (100) Participants n (%) 176 (67)
16-19 . 39 (9) 29 (7) NA‘» _ 14 (5)
20-24 . 66 (15) 51 (12) NA - 27 (10)
25-29 . 62 (14) 47 (11) NA - 25 (10)
30-34 . 53 (12) 43 (10) NA - 17 (7)
35-39 . 52 (12) 40 (9) NA - 15 (6)
40-44 . 37 (9) 32 (7) NA - 13 (5)
45-49 . 21 (5) 14 (3) NA - 22 (8)
50-54 . 34 (8) 22 (5) NA - 22 8
55-59 . 37 (9) 26 (6) NA - 12 5
60-64 . 31 (7) 21 (5) NA - 9 3
Mean 36.0 37.4
Standard deviation 13.4 13.6
1) NA: Not available information.
250 einstaklingum, 63 körlum og 187 konum,
þátttakan var því 67,6%. Til samræmingar
við samanburðarhópinn var svörum frá öllum
65 ára og eldri sleppt. Heildarfjöldinn er
því 229 manns, 176 konur og 53 karlar.
Upplýsingar um aldursdreifingu þátttakenda
í þjóðarúrtakinu og úr fiskvinnsluhúsunum
eru sýndar í töflu I fyrir karla og töflu II fyrir
konur.
LÝSING Á VINNUAÐSTÖÐU
í fiskvinnslu er verkaskipting yfirleitt kynskipt
þannig að ákveðin störf eru kvennastörf og
önnur karlastörf. Allra síðustu árin hefur