Læknablaðið - 15.05.1997, Side 4
Eiginleikan Salbútamól örvar aðallega beta2-viðtæki
og veldur þannig berkjuvíkkun. Við lungnateppu
eykur salbútamól bifhárahreinsun og auðveldar
þannig losun á seigu slími. Eftir innöndun fæst
verkun á nokkrum mínútum og nær hámarki eftir 30-
60 mín. Verkun stendur yfir í allt að 4 klst. U.þ.b. 20-
30% af gefnum skammti kemst til lungna eftir
kröftuga innöndun. Klerans salbútamóls er 30 1/klst.
Salbútamól umbrotnar í lifur (aðallega súlfat-sam-
tenging) og skilst út í þvagi (hlutfall óbreytts forms =
0,6). Þekkt niðurbrotsefni eru óvirk. Helmingunartími
í plasma er um 3-7 klst. Ábcndingan Astmi. Lang-
vinn berkjubólga, lungnaþemba og aðrir lungna-
sjúkdómar sem valda berkjuþrengingu. Frá-
bendingan Ofnæmi fyrir salbútamóli eða mjólkur-
sykri. Vaníð: Varúðar skal gæta hjá sjúklingum með
alvarlega hjarta- og æðasjúkdóma eða ofstarfsemi
skjaldkirtiJs. Kalíumþurrð. Meðganga og brjóstagjöf:
Ekki hefur verið sýnt fram á skaðleg áhrif á fóstur af
völdum lyfsins. Upplýsingar um hvort salbútamól
berist í móðurmjólk eru ekki nægjanlegar til þess að
meta, hvort það hafi skaðleg áhrif á bamið. Auka-
verkanin Aukaverkanir, sem em dæmigerðar fyrir
adrenvirk lyf eins og skjálfti og hraður hjartsláttur
geta komið fram í upphafi og em þær oft skammta-
háðar. Algengar (>1%): Hjarta- og æðakerfi: Hjarta-
ónot. Hraður hjartsláttur. Vöðvar: Skjálfti. Sjaldgœfar
(0,1-1%): Almennar: Höfuðverkur. Ofnæmi. Mjög
sjaldgœfar (<0,1%): Öndunarfæri: Berkjusamdráttur.
Erting í munni og hálsi. Efnaskipti: Kalíumþurrð.
Vöðvar: Krampar. Sálrænar: Hegðunar- og svefn-
tmflanir hjá bömum. Milliverkanin Beta-blokkarar,
sérstaldega ósérhæfðir, geta að hluta eða alveg hamið
verkun beta-örva. Skammtastærðir handa full-
orðnum: Lyfið skal fyrst og fremst nota til þess að
lina bráð köst. Skammtastærðir em einstaklings-
bundnar. Lyfið úr Inspiryl Turbuhaler berst til lungna
þegar sjúklingur andar að sér. Þess vegna er mikil-
vægt að benda sjúklingum á að anda kröftuglega og
djúpt að sér í gegnum munnstykkið. Þegar Inspiryl
Turbuhaler er gefið ungum bömum, er nauðsynlegt
að fullvíst sé, að þau geti fylgt leiðbeiningum um
notkun. Þar sem lítið magn af lyfinu er gefíð í
hverjum skammti, skal upplýsa sjúkling um að mögu-
legt sé að hann verði ekki var við lyfið við innöndun.
50 míkróg/úðaskammt: 1-2 skammtar eftir þörfiim.
100 míkróg/úðaskammt: 1 skammtur eftir þörfum.
Skammtastærðir handa börnum: Böm frá 3 ára
aldri: Sömu skammtar og hjá fiillorðnum, sjá hér að
ofan. Lyfið er ekki ætlað bömum yngri en 3 ára.
Athugið: Upplýsa skal sjúkling um að hafa samband
við lækni ef skammtur, sem áður skilaði árangri,
veldur ekki lengur sömu áhrifum, þar sem það getur
lænt til þess, að astmi hafi versnað og önnur meðferð
sé nauðsynleg. Rétt er að mæla blóðglúkósa hjá
sykursjúkum í byrjun meðferðar vegna hættu á
blóðsykurshækkun. Sjúklingar með hjartavöðvakvilla
(hypertrophic cardiomyopathy) skulu ekki nota lyfið
vegna áhrifa beta-2-örva á samdráttarkraft hjarta-
vöðvans. Fylgjast skal með styrk kalíums í sermi þar
sem kalíumþurrð getur aukist við samtímis með-
höndlun með xantín-afleiðum, sterum, þvagræsi-
lyfjum og við súrefnisskort í vefjum. Pakkningar og
verð (maí 1997): Innúðaduft 50 míkróg/úðaskammt:
200 úðaskammtar í Turbuhaler-úðatæki - 2.910 (hluti
sjúklings 1.306 kr.). Innúðaduft 100 míkróg/úða-
skammt: 100 úðaskammtar x 2 í Turbuhaler-úðatæki -
3.584 kr. (hluti sjúklings 1.468 kr.).
Inspiryl®
(Salbutamol)
Turbuhaler®
XSTMX
JHBHi Astra Island ■■■■■.