Læknablaðið - 15.05.1997, Blaðsíða 60
334
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Rætt við Eirík Orra Guðmundsson læknanema
Fjórða árs verkefni unnið á Rannsóknarstofnun
Jónasar Kristjánssonar í Hveragerði
í tilefni af 40 ára afmæli
Heilsustofnunar NLFÍ árið 1995
var sett á stofn Rannsóknar-
stofnun Jónasar Kristjánssonar
við stofnunina.
Að sögn Guðmundar Björns-
sonar yfirlæknis Heilsustofnun-
ar NLFÍ er markmið rannsókn-
arstofnunarinnar að bjóða ein-
staklingum innan og utan
stofnunarinnar rannsóknarað-
stöðu tvo til þrjá mánuði í senn.
í því skyni hefur verið útbúin
fræðimannsíbúð við Heilsu-
stofnun NLFI með svefnher-
bergi, eldhúsi og stofu með
skrifborði og tölvu.
Fyrsti styrkþeginn, Eiríkur
Orri Guðmundsson læknanemi,
vinnur um þessar mundir að
fjórða árs verkefni sínu við
Rannsóknarstofnun Jónasar
Kristjánssonar undir leiðsögn
Sigurbjörns Birgissonar sér-
fræðings í meltingarsjúkdóm-
um.
Rannsókn Eiríks Orra beinist
að því að meta árangur í hóp-
meðferð offitusjúklinga, en
boðið hefur verið upp á slíka
meðferð við Heilsustofnun
NLFÍ frá haustinu 1992. Nær
rannsóknin til allra sem tekið
hafa þátt í hópmeðferð frá upp-
hafi til ársloka 1995, alls 150 ein-
staklinga, og verður metinn
bæði skammtíma- og langtíma-
árangur.
Offita er víða alvarlegt
vandamál, til dæmis í Banda-
ríkjunum þar sem talið er að
þriðji hver einstaklingur eigi við
offituvandamál að stríða og
benda rannsóknir Hjartavernd-
ar til að ástandið sé lítið skárra
hér á landi.
Fjórða árs verkefnin eru afar
mikilvæg, segir Eiríkur. Mark-
miðið er að kenna nemendum
vísindaleg vinnubrögð og fyrir
marga er þetta stökkpallur fyrir
BS- og mastersnám. Rannsókn-
irnar geta verið af margvísleg-
um toga. Núna eru nemendur til
Eiríkur Orri Guðmundsson.
Ljósm.: Lbl.
dæmis að vinna verkefni tengd
siðfræði, veirusýkingum og
ýmsu þar á milli, bæði hér
heima og eins hafa nokkrir út-
vegað sér rannsóknaraðstöðu
erlendis. Miklu varðar að fá
góða leiðbeinendur og góða
vinnuaðstöðu og er hvoru
tveggja til að dreifa í Hvera-
gerði, að sögn Eiríks. And-
rúmsloftið er þægilegt og ekki
yfir neinu að kvarta, nema ef til
vill jarðhræringum!
Eiríkur telur rannsókn sína
lofa góðu, þótt ekki sé tímabært
að ræða einstakar vísbendingar.
Niðurstöður verða kynntar á
ráðstefnu fjórða árs nema í lok
maí, en þá ber nemendum að
skila af sér. í framhaldinu verð-
ur væntanlega unnin grein um
rannsóknina til birtingar í vís-
indatímariti.
-bþ-
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.