Læknablaðið - 15.05.1997, Blaðsíða 65
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
339
Fréttatilkynning
„Öldrunaruppvinnsla“
á Norðurlöndum
hugsað til sérgreinarfélags í
Bandaríkjunum, College of
American Pathologists (CAP),
sem rekur aukaskrifstofu í Was-
hington D.C. til að vera nálægt
þinginu og ráðuneytum. Á ár-
legu CAP námsskeiði fyrir
meinafræðinga, „Pathologists
and Politicians - Partners in
Progress“, kemur fram að það
er ekki hægt að ætlast til að allir
stjórnmálamenn hafi fyrirfram
vit á læknisþjónustu, heldur
verður að leiðbeina þeim í sum-
um málum.
Ameríkaníseríng?
Það skal varað við því að
kalla þessa hugmynd „amerík-
aníseríngu1'. Pað bæri vott um
sjónsviðsskort. Til dæmis njóta
sumir Ameríkanar ókeypis
læknisaðstoðar á ríkis- og borg-
arsjúkrahúsum og fjölmargir
Danir hafa einkasjúkratrygg-
ingu. Clinica Medica er til í
flestum löndum í einhverri
mynd. Það hlýtur að vera hollt
öllum opinberum rekstri að búa
við samkeppni frá einkageiran-
um.
Björn Logi Björnsson
Sími: 564 4950
Nýr
landlæknir
Dana
Einar Kragh hefur nýlega
verið ráðinn til starfa sem
landlæknir í Danmörku.
Einar er Læknablaðinu að
góðu kunnur en hann var
áður aðalritstjóri danska
læknablaðsins, Ugeskrift for
læger. Læknablaðið óskar
Einari velfarnaðar í nýju
starfi.
Komið er út á vegum Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins rit um öldrunarmat á
Norðurlöndum ásamt viðauka
með íðorðalista um íslenskuð
heiti yfir þau hugtök sem notuð
eru í öldrunarmatinu. Öldrun-
armatið er tveggja ára sam-
vinnuverkefni kennara í öldrun-
arlækningum á Norðurlöndum.
Grunntextinn var unninn á
ensku og hefur hann nýlega
verið birtur (1). Ráðgert er að
textinn verði þýddur á öll
tungumál Norðurlandanna og
er sá íslenski fyrstur til að líta
dagsins ljós. Hluti þessarar
vinnu var birtur á 12. þingi Fé-
lags íslenskra lyflækna og ágrip
þess í Læknablaðinu (2).
Öldrunarmati á Norðurlönd-
um er skipt í nokkra kafla:
1. Samsetning og ferli vinnu-
hópsins um öldrunarmat.
2. Staða öldrunarlækninga á
Norðurlöndum. Skilgreining
öldrunarlækninga og öldrun-
arlækningar sem vísinda-
grein. Fjallað er um tegundir
öldrunarþjónustu og
áhersluatriði öldrunarlækn-
inga.
3. Gerð er grein fyrir þeim
ástæðum sem réttlæta nor-
rænar leiðbeiningar um öldr-
unarmat.
4. Fjallað er um gagnsemi fjöl-
þátta öldrunarmats og með-
ferðar. Tekið er saman yfirlit
yfir þær samanburðarrann-
sóknir sem birtar hafa verið
um efnið og lýst marksetn-
ingu öldrunarmatsins.
5. Öldrunarteymið er skil-
greint, sagt frá uppbyggingu
þess og hinu hugmynda-
fræðilega líkani sem það er
byggt á. Verksviði einstakra
meðlima er lýst nánar og
fjallað um þá þætti sem gera
ferli þess skilvirkt.
6. Lýst er mælikvörðum og
gátlistum, sem notaðir eru
við mælingar á færni. Mælt
er með sérstökum kvörðum
fyrir athafnir daglegs lífs,
hreyfifærni, skilvitund,
geðslag og aðra samsetta
kvarða.
Islensku heitin voru unnin í
samvinnu við Jóhann Heiðar
Jóhannsson lækni, sem á sæti í
Orðanefnd læknafélaganna.
Reynt var að þýða hin erlendu
hugtök á sem ljósastan hátt og
voru stundum notuð fleiri en
eitt orð íslenskt til þess að þýða
hið erlenda. Þetta tókst að
mestu leyti nema með hugtakið
„work-up“, sem er notað í
enska heiti verkefnisins. Fyrir
það kom til greina að nota orð
einsog uppvinnsla, uppgjör, að-
gerð, atlaga, aðferð, samantekt
eða eitthvað þvílíka. Ekkert
þessa orða þótti við hæfi og var
því sleppt í þýðingunni.
Ritinu Öldrunarmat á Norð-
urlöndum verður dreift til allra
heilsugæslustöðva og öldrunar-
stofnana í landinu, svo og til fé-
laga Öldrunarfræðafélags ís-
lands. Einnig er ráðgert að nota
það við kennslu læknanema.
Hægt verður að nálgast um-
frameintök á skrifstofu heil-
brigðisráðuneytisins.
Heimildir
1. Dan Med Bull 1996; 43; 350-9.
2. Lbl 1996; 82 Fylgirit 31: 60-1.