Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1997, Blaðsíða 34

Læknablaðið - 15.05.1997, Blaðsíða 34
312 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 Sigurður Björnsson, læknir, hefur lýst vel þýðingu þess fyrir alla aðila að sjúklingur sé vel upplýstur: „Eigi.... aðfásjúklinginn tilað taka þátt í að velja skynsamlegasta valkostinn þá verður hann að vita hvernig mál standa. Pví miðurfara ekki allir lœknar eftir þessu, og það er afskaplega erfitt að koma í kjölfar annars lceknis sem hefur sagt sjúklingi mjög ónákvœmt eða jafnvel alls ekki sannleikann. Slíkt veldur sjúklingnum líka erfiðleikum, hann veit ekki hverju skal trúa. “ (9). Það er athyglisvert hvernig Sigurður hagar orðum sínum í þessari ágætu klausu sem er eftir honum höfð. „Eigi.....að fá sjúklinginn til að taka þátt í að velja skynsamlegasta val- kostinn ....segir hann, og þetta orðalag hans er til marks um að grunnt getur verið á forræðishyggjunni, jafnvel þótt áhersla sé lögð á að upplýsa sjúklinga að fullu (10). Þau rök sem færð eru fyrir mikilvægi þess að upplýsa sjúklinga vísa reyndar ótrúlega oft til þeirrar hagkvæmni sem af því má hafa: sjúklingurinn verður meðfærilegri, samvinnuþýðari, skjótari til að ná bata, hann útskrifast fyrr og þar fram eftir götunum. Þetta eru allt saman þýðingar- mikil atriði, en þau vísa ekki í þá sérstöku siðferðilegu hagsmuni fólks sem ég kenndi við sjálfræði. Sé horft framhjá þeirri kröfu og sjúklingur upplýstur einungis af hagkvæmnis- ástæðum og til þess að fá hann til að velja skynsamlegasta kostinn, það er þann kost sem fagmaðurinn hefur þegar valið fyrir hann, þá höfum við forræðishyggju í nýjum og „dip- lómatískari“ búningi. Samtalið við sjúklinginn verður þá bara leið fagmannsins til þess að fá hann „með góðu“ á sitt band. Af þessum ástæðum hafa sumir baráttu- menn fyrir sjálfsákvörðunarrétti sjúklinga lagt áherslu á svokallað hlutleysi fagmannsins. Hann eigi einungis að leitast við að upplýsa sjúkling sem best um alla meðferðarkosti, en hann eigi að gæta þess eftir megni að hafa ekki áhrif á ákvörðun sjúklingsins með gildismati sínu og viðhorfum. Brýnir hagsmunir sjúk- lingsins sjálfs, líf hans og heilsa, eru í veði og hann á sjálfur að ákveða hvaða meðferð eða rannsókn hann er reiðubúinn að gangast undir. Þetta er tvíbent staðhæfing. Sé hún skilin sterkum skilningi, þá felur hún það í sér að einstaklingnum eigi að vera það algjörlega í sjálfsvald sett hvaða læknismeðferð hann fær. Þetta er að mínu mati fráleitur skilningur á sjálfsákvörðunarrétti sjúklinga og færi ég eink- um tvær ástæður fyrir því. Sú fyrri varðar ábyrgð fagmannsins. Með því á ég við að fag- maður í heilbrigðisþjónustu getur ekki bara afgreitt heilbrigðisþjónustu á „hlutlausan" hátt samkvæmt kröfum „kúnnans“. Það er skylda hans að upplýsa sjúkling um það hvaða með- ferð hann telur að sé ákjósanlegust og hvers vegna. Þetta er að sjálfsögðu ekki nægileg for- senda til að ákveða hvað sjúklingur eigi að gera, eins og forræðishyggjan virðist telja, en hún er nauðsynleg forsenda þess að fagmann- eskjan ræki starf sitt af ábyrgð. Hann getur ekki með góðri samvisku veitt meðferð sem hann telur stríða gegn hagsmunum sjúklingsins (11). Síðari ástæðan gegn því að skilja sjálfræðis- kröfuna þessum sterka skilningi vísar í stöðu sjúklingsins. Það er mikilvægt að gleyma því ekki að sjúklingurinn er í tvennum skilningi veikari aðilinn í þessum samskiptum. Hann er veikari í þeim skilningi að hann hefur ekki þá þekkingu sem fagmaðurinn býr yfir og er því fyllilega háður þeim upplýsingum sem hann ákveður að láta frá sér. En sjúklingurinn er líka oft veikari aðilinn í þeim skilningi að hann er hræddur og óöruggur, ekki fyrst og fremst vegna þeirra upplýsinga sem hann fær, heldur vegna þeirrar tilvistarkreppu sem hann er kominn í. Báðir þessi þættir, vanþekking sjúk- lingsins og kvíði hans, gera það að verkum að hann verður öðru fremur að geta treyst heil- brigðisstarfsfólki. Hinn sterki skilningur á sjálfræðiskröfunni stuðlar ekki að slíku trausti. Þvert á móti elur hún á fjarlægð og umhyggju- leysi sem er ankannaleg í samhengi heilbrigðis- þjónustu. Hin sameiginlega ályktun sem ég vil draga af þessum ástæðum er að kröfuna um sjálfræði sjúklinga beri að skilja veikum skilningi. Með því á ég við að sjálfsákvörðunarréttur sjúklings felist yfirleitt ekki í því að hann geti einfaldlega „pantað“ þá meðferð sem honum líst best á, heldur í því að hann ráði því hvort hann þiggur þá meðferð sem honum er ráðlögð eða hvort hann hafnar henni. Frá sjónarhóli sjúklingsins er þetta nokkurn veginn inntakið í hinni mikil- vægu siðareglu lækna sem kveður á um upplýs- ingaskylduna: „Lœknir skal, eftir því sem tök eru á, útskýra fyrir sjúklingi eðli og tilgang rannsókna og aðgerða, sem hann gerir eða ráð- leggur sjúklingnum. Pess skal ávallt gcett og ef með þarfskal sjúklingi gert það Ijóst, að lœknir ráðleggur en skipar ekki. “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.