Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1997, Qupperneq 10

Læknablaðið - 15.05.1997, Qupperneq 10
290 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 30 NMRI mýs voru aldar í sex vikur á lýsis- bættu fæði (10%) en til samanburðar voru mýs aldar á venjubundnu eða ólífuolíubættu fæði (10%). Að því búnu voru mýsnar sýktar með l,6xl02 cfu (colony forming units, þyrpingar- myndandi einingar) af Klebsiella pneumoniae í vöðva. Eftir sýkingu var fylgst með lifun mús- anna í 120 klukkustundir. Niðurstöður: Eftir 56 klukkustundir voru 93% músanna sem fengu lýsisbætt fóður lif- andi, 68% músa sem fengu ólífuolíubætt fæði og aðeins 40% músanna sem fengu venjubund- ið fæði. Lifun músa sem fengu lýsisbætt fæði var 40% eftir 120 klukkustundir á meðan lifun músa sem fengu ólífuolíubætt eða venjubundið fæði var 25% og 20%. Lifun músa sem aldar voru á lýsisbættu fæði var marktækt betri en viðmiðunarhópa eftir 120 stundir (p=0,0034). Ályktun: Lýsisbætt fæði eykur lifun NMRI músa eftir sýkingu með Klebsiella pneumoni- ae. Höfundar telja að þessi munur á lifun sé fyrst og fremst vegna áhrifa ómega-3 fitusýra á ónæmiskerfið. Á hvaða hátt, er ekki að fullu vitað og því er þörf frekari rannsókna. Inngangur í norðlægum löndum hefur um aldir lýsi verið talið stuðla að heilbrigði. Þorskalýsi inni- heldur um það bil 20% af ómega-3 fitusýrum. I venjulegu fæði Vesturlandabúa eru fjölómett- aðar ómega-3 fitusýrur í litlu magni. Þær eru hins vegar verulegur hluti af fituinntöku hjá þjóðum sem neyta mikils fisks eins og Eskimó- um á Grænlandi (1). Faraldsfæðilegar rann- sóknir hafa bent til þess að neysla lýsis veiti vernd gegn ýmsum sjúkdómum til dæmis hjarta- og æðasjúkdómum (2,3), astma (2), sykursýki (2) og ýmsum sjálfnæmissjúkdómum (4-6). Talið er að lýsi, og þá fyrst og fremst ómega-3 fitusýrur, hafi víðtæk áhrif á stýringu ónæmiskerfisins. Hollensk rannsókn frá 1991 sýndi aukna lifun músa á lýsisbættu fæði í al- varlegum bakteríusýkingum í samanburði við mýs á pálmaolíubættu fæði eða kornolíubættu fæði (7). Niðurstöður rannsókna á áhrifum lýs- is á lífslíkur í alvarlegum bakteríusýkingum hafa þó verið misvísandi (7-10). Því var frekari rannsókna þörf og í þessari rannsókn settu höf- undar fram sömu tilgátu og í hollensku rann- sókninni, að lýsisneysla væri verndandi í alvar- legum Klebsiella pneumoniae bakteríusýking- um. í rannsókninni sem hér er greint frá var ólífuolíubætt fæði notað sem viðmiðunarfæði í Table I. Fatty-acid content (%) of fish-oil and olive-oil. Fatty-acid Fish-oil Olive-oil 14:0 4.4 16:0 11.5 11.2 16:1 7.2 0.8 18:0 2.7 2.5 18:1 21.0 9.6 18:3 0.8 0.7 18:4 2.5 20:1 9.7 20:4 nd 20:5 9.3 22:1 8.8 22:4 nd 22:5 1.2 22:6 12.8 unknown 6.5 1.7 nd: not detected stað kornolíubætts fæðis eða pálmaolíubætts fæðis þar sem ólífuolía inniheldur mjög lítið af ómega-3 fitusýrum, eða innan við 1%. Aðferðir og framkvæmd Tilraunadýr: Níutíu kvenkyns NMRI mýs 27-29 g voru fengnar frá Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði að Keldum. Þær voru ald- ar í þremur hópum, 30 saman í búri og fengu mismunandi fóður í sex vikur. Umhverfi og aðstæður voru þær sömu fyrir alla hópana. Fæði: Grunnfæði var hefðbundið nagdýra- fóður (Special Diets Services, Witham, Essex, England) sem innihélt enga sjávardýrafitu. Fituinnihald fæðisins var um 3%, þar af var soya olía um 0,5%. í fóðrið var bætt lýsi (þorskalýsi, Lýsi hf, Grandavegi) eða ólífuolíu (Filippo Berio, Italia). Fitusýrusamsetning lýs- is og ólífuolíu sést í töflu I. Hópur I fékk venju- bundið fæði að viðbættu lýsi (10%), hópur II fékk venjubundið fæði að viðbættri ólífuolíu (10%) og hópur III fékk venjubundið fæði án olíuviðbótar. Fæðið var blandað á tveggja daga fresti og geymt í kæli við 4°C. Allir hóparnir höfðu aðgang að fæðu og vatni að vild. Framkvæmd: Eftir sex vikna fóðrun voru allar mýsnar sýktar í vöðva með Klebsiella pneumoniae. Bakteríustofninn (ATCC 43816) var fenginn frá sýkladeild Landspítalans. Bakt- eríulausn sem innihélt 8,2 x 102 cfu (colony forming units, þyrpingarmyndandi einingar) í 0,1 ml var sprautað í vöðva í hvort afturlæri á músunum í léttri etersvæfingu. Þær fengu því samtals 1,6 x 102 cfu af Klebsiella pneumoniae. Þessi skammtur veldur oftast banvænum sýk-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.