Læknablaðið - 15.05.1997, Page 27
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
305
Fig. 3. Seasonal variation ofburn injuries in Icelandic child-
ren admitted to the paediatric department.
Other
Boiling water
Fig. 4. Burn injuries, caused by hot water, in children admitt-
ed to the paediatric department.
Fig. 5. Causes of burn injuries in children admitted to the
paediatric department.
í aldursflokknum fimm til níu ára var 51
(17,6%) barn og í elsta aldursflokknum 10-15
ára voru 30 (10,3%) börn (mynd 1). Hlutfallið
milli drengja/stúlkna var 1,5 í aldurshópnum
níu ára og yngri. í aldurshópnum 10-15 ára var
hlutfallið 4,0. Kynjahlutfallið í öllum hópnum
var 1,6.
Að meðaltali lögðust 20,7 börn inn á barna-
deildina á ári vegna brunasára. Síðustu ár
rannsóknarinnar fækkaði innlögnunum (mynd
2). Innlagnirnar dreifðust nokkuð jafnt yfir
mánuðina en voru þó áberandi flestar í desem-
ber (mynd 3). Upplýsingar fengust um hvenær
dagsins slysið átti sér stað hjá 171 barni og
reyndust slysin algengust í kringum hádegis- og
kvöldverðartíma.
Algengasti brunavaldurinn eða 45,2% (131
barn) var heitt vatn og voru þau slys flest eða
15,2% (44 börn) vegna baðvatns, þá vegna
sjóðandi vatns 10,7% (31 barn) sem börnin
helltu yfir sig úr pottum sem standa á eldavél-
arhellum eða flátum sem sjóðandi vatni hafði
verið hellt í. Mörg slysin verða vegna þess að
börnin velta um koll eða detta ofan í fötur með
heitu hreingerningarvatni, 7,2% (21 barn)
(mynd 4). Næst algengasti brunavaldurinn
voru aðrir heitir vökvar 26,9% (78 börn). Þess-
ir vökvar eru kaffi, te og kakódrykkir 19,3%
(56 börn) og heitir grautar 4,5% (13 börn) sem
börnin hvolfa yfir sig. Þriðji algengasti bruna-
valdurinn var eldur 12,4% (36 börn) og voru
elstu börnin fórnarlömb þeirra slysa. Algeng-
ast var að saman færi fikt með eld og bensín
5,2% (15 börn). Flugeldar og púðursprengjur
voru brunavaldar elstu barnanna og orsökuðu
5,5% (16 börn) brunaslysanna Snertibrunar
voru 5,2% (15 börn) og voru þeir algengastir
hjá yngsta aldurflokknum (mynd 5). Einungis
eitt barn brenndist af völdum rafmagns.
Langflest slysin áttu sér stað inni á eða við
heimilin eða 81,4% (236 börn). Útbreiðsla
brunasáranna náði yfir minna en 10% líkams-
yfirborðs hjá 72,4% eða 210 börnum og í 14,5%
tilfella (42 börn) náðu sárin yfir 10-19% lík-
amsyfirborðs, í 5,2% tilfella (15 börn) yfir 20%
líkamsyfirborðs og yfir 30% hjá 2,4% eða sjö
börnum. Ekki var getið um útbreiðslu bruna-
sáranna hjá 23 börnum (7,9%).
Dýpt brunasáranna skiptist þannig að 16,8%
barnanna voru með þriðju gráðu, 77% með
annarrar gráðu og 6,2% með fyrstu gráðu
brunasár. Meðallegutíminn var 12 dagar (mið-
gildið átta dagar, 1-100). Meira en helmingur