Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1997, Síða 29

Læknablaðið - 15.05.1997, Síða 29
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 307 barnanna dvöldu lengur en eina viku og fjórð- ungur lengur en tvær vikur á sjúkrahúsinu. Tuttugu börn voru lögð inn á gjörgæsludeild og dvöldu þar að meðaltali í 8,2 daga (miðgild- ið 3,1-41). Ekkert barn sem var lagt inn vegna brunasára lést á rannsóknartímanum. Umræða Algengi brunaslysa í þessari rannsókn er mjög samhljóma niðurstöðum íslenskrar rann- sóknar sem tók yfir 10 ára tímabil (1964-1973) (7). Aftur á móti voru færri börn lögð inn á ári í rannsókn sem tók til áranna 1957-1969 (6) eða 14,2 börn á ári. I lok rannsóknartímabilsins fækkaði innlögnum vegna brunaslysa. Ekki er ljóst hvort það merki að brunaslysum hafi fækkað í raun og veru eða að brunar séu oftar meðhöndlaðir án þess að til innlagnar komi. Kynjahlutfallið var það sama og í sambæri- legum innlendum og erlendum rannsóknum (1,4,6-8). Tveir þriðju barnanna sem brennd- ust voru tveggja ára og yngri og þrír fjórðu fjögurra ára og yngri og eru þær niðurstöður einnig sambærilegar við aðrar rannsóknir (5,8,9). Innlögnunum var jafnt dreift yfir árið nema í desember þegar slysin voru algengust sem skýrist að hluta af fleiri slysum af völdum flug- elda og elds. Eldri íslensk rannsókn sýndi einn- ig að ívið fleiri brunaslys eiga sér stað yfir vetrarmánuðina (7). Skosk rannsókn sýndi engan mun á dreifingu yfir árið (5) og dönsk rannsókn var á sama veg (1). Slysin eiga sér oftar stað á hádegis- og kvöld- verðartímum þegar mest er notað af heitu vatni, vökvum og heitum hlutum og má ætla að börnin gleymist í þessum önnum (6). Önnur íslensk rannsókn sýndi eingöngu fleiri slys um kvöldverðartímann (7). Erlendar rannsóknir hafa sýnt sambærilega niðurstöðu með háa tíðni um kvöldverðarleytið og á morgunverð- artímum (10,11) Flest verða slysin inni eða við heimilin og eru þær niðurstöður sambærilegar öðrum rann- sóknum (2,3,7,8). Þó að ísland sé kalt land með löngum vetri og stuttu sumri þá virðast brunaslys á íslandi ekki gerast oftar inni á heimilunum en erlendis. Algengustu brunavaldarnir voru heitt vatn og aðrir heitir vökvar 72,1% sem eru sambæri- legar niðurstöður og í annarri íslenskri rann- sókn (7) en algengari en í eldri íslenskri rann- sókn (6). Brunar af völdum heits vatns eru algengari hér en erlendis (4,5,8,9). Skýringin á þessum mun felst líklega í mjög heitu neysluvatni sem bæði er ódýrara og mun heitara hér en annars staðar og er heitt kranavatn oft yfir 70°C. Er- lendis er vatn hitað upp í kötlum með kolum, olíu og rafmagni. Víða hafa verið settar reglu- gerðir um hitastillarofa á þessa katla og mælst til að fólk hiti ekki vatn sitt í meira en 45-60°C, það er þó mismunandi eftir löndum. Hérlendis hefur hitaveitan náð til fleiri heimila síðustu árin. í dag eru 29 hitaveitur starfandi á landinu og 19 þeirra tóku til starfa eftir 1970 (upplýsing- ar fengnar frá Orkustofnun). Þessi staðreynd gæti skýrt þann mun sem er á milli þessarar rannsóknar og annarrar íslenskrar rannsóknar (7) annars vegar og eldri rannsóknar hins vegar en hún tekur til áranna 1959-1969 (6). Yngstu börnin eru fórnarlömb bruna af völdum heits vatns og vökva, algengast er að þau brenni sig á heitu kaffi sem þau hella yfir sig úr könnum og bollum eða brenni sig í baði og handlaugum. Þá orsakar hreingerningar- vatn 7,2% allra brunaslysa en ekki fannst það sem brunavaldur í erlendum rannsóknum. Eldri börnin eru fórnarlömb elds og flugelda sem rekja má til fikts þeirra. Ekki er getið sérstaklega um bruna af völdum flugelda/púð- ursprengja í fyrri íslenskum rannsóknum (6, 7) og gæti það skýrst af því að brunaslys af völd- um þeirra eru nú mun algengari en áður þar sem framboð á flugeldum er nú mun meira. Eitt barn (0,3%) brenndist af völdum raf- magns en í fyrri íslenskum rannsóknum voru brunaslys af völdum rafmagns algengari, 7% og 3,7% (6,7). Erlendar rannsóknir hafa einn- ig sýnt fram á fækkandi brunaslys af völdum rafmagns (4,9). Skýringuna er að finna í betri frágangi á raflögnum. Brunaslys af völdum æt- andi efna eru nú mun sjaldgæfari,þrjú börn (1,0%) brenndu sig á ætandi efnum í okkar uppgjöri en 5% og 1,9% í fyrri íslenskum rann- sóknum (6,7). Dönsk rannsókn sýndi einnig færri slys af völdum ætandi efna hjá börnum (9). Skýringuna á þessari fækkun má líklega rekja til öruggari umbúða og geymslustaða. Snertibrunar eru jafnalgengir í okkar rannsókn og fyrri íslenskum rannsóknum (6,7) en víða erlendis eru þeir mun algengari (2,4,5). Heitt vatn og aðrir vökvar eru algengustu brunavaldarnir hjá íslenskum börnum. Tvær íslenskar rannsóknir eru til á brunaslysum á börnum og sýna þær að ekki hefur dregið úr
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.