Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1997, Qupperneq 35

Læknablaðið - 15.05.1997, Qupperneq 35
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 313 Ég hef nefnt þennan „neikvæða“ sjálfs- ákvörðunarrétt sjúklinga griðarétt, því að hann verndar mannhelgi sjúklingsins fyrir óréttmætu inngripi heilbrigðisstétta, þar á meðal líkamsinnrás (e. bodily invasion) sem hann hefur ekki sjálfur heimilað. Svo dæmi sé tekið þá felur þessi réttur það í sér að sjúkling- ur getur hafnað lífslengjandi meðferð en valið líknandi meðferð og dáið þannig fyrr en ella, en hann felur það ekki í sér að sjúklingurinn geti farið fram á þá þjónustu að heilbrigðis- starfsmaður stytti honum aldur. Með því að undirstrika rétt sjúklings til að hafna meðferð (sem að sjálfsögðu felur í sér rétt hans til að samþykkja meðferð) er hin afdráttarlausa virðing fyrir sjálfræði dregin fram og viðurkennt að einstaklingurinn eigi sjálfur að taka mikilvægustu ákvarðanir í lífi sínu (12). Þar með er ekki dregið úr þeirri skyldu fagmannsins að hvetja sjúkling til að velja þann kost sem sá fyrrnefndi telur skyn- samlegastan, heldur er viðurkennt að fagmað- urinn geti þurft að lúta því að sjúklingur fari ekki að hans ráðum (13). Mér virðist það vera eðlilegt í sambandi sjúklinga og fagfólks að þar sé jafnan ákveðin spenna á milli sjálfræðis sjúklings og forræðis fagmanns og þá spennu er engan veginn hægt að leysa fræðilega heldur verður að taka á henni í aðstæðunum hverju sinni. Vænlegasta leiðin sem við höfum í því skyni er að leitast við að tryggja það sem í tillögum Siðaráðs landlæknis er nefnt upplýst og óþvingað samþykki sjúklings fyrir aðgerð- um og rannsóknum. Til þess að hægt sé að tala um upplýst sam- þykki verður að uppfylla tvö skilyrði (14): 1. Að sjúklingi eða þátttakanda í rannsókn séu veittar nægilegar upplýsingar til að hann geti gert upp hug sinn. 2. Að gengið sé úr skugga um að sjúklingur eða þátttakandi hafi skilið upplýsingarnar og geti tekið upplýsta ákvörðun. Það er ekki einfalt mál að meta hvaða upp- lýsingar og hve miklar þarf að veita sjúklingi um rannsókn eða læknismeðferð til þess að hann geti gefið upplýst samþykki. Þær raddir hafa heyrst að það sé í öllu falli tómt mál að tala um upplýst samþykki sjúklinga vegna þess að þeir hafi í raun engar forsendur til að gefa samþykki byggt á fullri vitneskju um læknis- fræðilegar rannsóknir og áhættusamar læknis- aðgerðir. Til þess þyrftu þeir að hafa þekkingu og reynslu á borð við lækna og hjúkrunarfræð- inga, en það sé fráleitt. Hugmyndin um fulla vitneskju er einungis til óþurftar í þessu sam- hengi. Sjúklingurinn þarf einungis að fá vitn- eskju sem nægir honum til að veita „upplýst samþykki". Það felur í sér að hann fái greinar- góða vitneskju um sjúkdómsgreiningu, mögu- leg meðferðarúrræði og þær áhættur, óþægindi og aukaverkanir, sem þeim eru fylgjandi, og batahorfur. Læknir getur þó þurft að gæta þess að takmarka upplýsingar sínar, til dæmis með því að tíunda ekki áhættuþætti sem eru afar ólíklegir en gætu samt valdið sjúklingnum verulegum áhyggjum. Hér er raunar ekki um að ræða vanda sem er neitt sérstakur fyrir aðstæður sjúklings. Fólk þarf iðulega að taka ákvarðanir í málum sem það hefur enga sérþekkingu á, heldur leitar sér ráða og upplýsinga til að geta valið skársta kostinn í stöðunni. Fagleg þekking, sem miðl- að er af ábyrgð og heilindum, er forsenda þess að fólk geti tekið upplýsta ákvörðun í slíkri stöðu. Einn erfiðasti þátturinn við upplýst samþykki sjúklingsins er hins vegar sú stað- reynd að fagmaðurinn hefur jafnan í hendi sér hvað sjúklingurinn fær að vita og hvað ekki. Þetta þarf alls ekki að stafa af því að fagmann- eskjan sé vísvitandi að stjórna ákvörðun sjúk- lingsins, heldur liggur ástæðan í því að hún er sjálf bæði skeikul manneskja með takmarkað sjónarhorn og ábyrgur fagmaður sem hefur skyldu til að ráða sjúklingi sínum heilt. Frá sjónarhóli fagmannsins hlýtur markmið- ið með upplýsingum, útskýringum og ráðlegg- ingum til sjúklings að vera að gefa honum kost á því að vera upplýstur og verða ábyrgur þátt- takandi í eigin meðferð. Það orkar ekki tví- mælis að sjúklingurinn á þann rétt. Hitt er ann- að mál hvort fagfólki beri nokkurn tíma skylda til að krefjast þess af sjúklingi að hann taki upplýsta ákvörðun. Til að svara þessari spurn- ingu, þarf að hyggja að því hvaða þættir það eru í fari sjúklingsins sem hindra að hann beri skynbragð á ástand sitt eða skilji þau úrræði sem honum standa til boða. Hafi sjúklingur verið illa upplýstur og það sé meginástæðan fyrir því að hann getur ekki tekið ákvörðun byggða á vitneskju er vitanlega brýnt að bæta úr því. En sjúklingur getur líka haft réttmætar ástæður fyrir því að taka ekki upplýsta ákvörð- un um læknismeðferð. Hér á ég meðal annars við tilvik þar sem sjúklingur einfaldlega kýs að leggja ráð sitt í hendur læknis og hafnar því að taka upplýsta ákvörðun sjálfur. Þetta er stund-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.