Læknablaðið - 15.05.1997, Page 44
320
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Til vinstri Pálnii V. Jónsson, en hann átti veg og vanda af skipulagn-
ingu læknaþingsins, við hlið hans Högni Óskarsson. Ljósm.: Lbl.
samningsins. Reikna má með
að tilkoma vinnuverndar-
ákvæðanna skapi þörf fyrir 10-
20% aukningu á mannafla á
spítulunum.
Mjög ítarleg samantekt var
lögð fram um forgangsröðun í
heilbrigðisþjónustu. Þarerlögð
á það áhersla að umræða um
forgangsröðun liljóti ætíð að
byggja á siðfræðilegri afstöðu. í
umræðunni kom fram að læknar
geti aldrei raðað sjúkdómum
eða sjúklingum eftir mikilvægi.
Siðferðileg skylda læknisins
felst í því að verja rétt lítilmagn-
ans.
Nokkuð mismunandi sjónar-
mið komu fram varðandi upp-
lýsingar og geymslu gagna. Eru
sjúkraskrár til dæmis mikilvæg
sagnfræðiheimild eða mark-
laus? Gera verður greinarmun á
persónuupplýsingum og töl-
fræðiupplýsingum. Bent var á
að innan Evrópusambandsins á
sér nú stað yfirgripsmikil sam-
ræmingarvinna á meðferð upp-
lýsinga og er nauðsynlegt að
fylgjast með henni. Nokkurs
misræmis virðist gæta í túlkun á
upplýsingalögunum nýju, einn-
ig virðast upplýsingalögin og
tölvulögin rekast hvor á annars
horn.
Rétt er að ítreka að ekki er
verið að búa til nýja stefnu frá
grunni. Læknasamtökin hafa
mótað sér stefnu í ýmsum mál-
um þótt henni hafi ekki verið
safnað saman á heildstæðan
hátt. Vissulega hefur stefna
samtakanna einnig breyst í tím-
ans rás og kom það til dæmis
skýrt fram í umfjöllun um mis-
munandi rekstrarform og fjár-
mögnun innan heilbrigðiskerf-
isins. Raktar voru fyrri sam-
þykktir LI og hvernig þær hafa
breyst og þróast. Annað virðist
breytast furðu lítið í tímans rás
og var á það bent að upp úr
miðri 18. öld hafi læknar beðið
Friðrik V. Danakonung þess
lengstra orða að komast aftur á
daggjöld! Ferliverk og viðvika-
greiðslur komu til umræðu og
eru skoðanir nokkuð skiptar í
þeim málum.
Hér hefur aðeins verið drepið
á örfá atriði af þeim fjölmörgu
er fram komu hjá frummælend-
um og öðrum þátttakendum á
læknaþinginu. Menn voru á
einu máli að umræðan hafi verið
afar þörf og þingið sjálft að-
standendum til mikils sóma.
Að öllu óbreyttu verða
stefnumótunardrögin öll birt í
júníhefti Læknablaðsins í þeirri
mynd sem þau voru kynnt á
læknaþinginu, að teknu tilliti til
einhverra þeirra athugasemda
er þar komu fram. Það er mikil-
váegt fyrir framhald vinnunnar
að menn lesi drögin og geri við
þau þær athugasemdir er þurfa
þykir. Athugasemdum er unnt
að koma á framfæri á síðum
blaðsins eða beint til forsvars-
manna einstakra starfshópa.
-bþ-
Formannaráðstefna
Formannaráðstefna verður haldin í Hlíðasmára 8 föstudaginn 23. maí næst-
komandi og hefst kl 13:00. Áætluö slit kl. 18:00. Ráðstefnan er opin öllum
læknum.