Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1997, Síða 45

Læknablaðið - 15.05.1997, Síða 45
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 321 Heilsugæsla og sjúkrahús á Egilsstöðum Áhugavert er að stunda lækningar úti á landi en hlúa þarf betur að starfsfólki heilbrigðiskerfísins Stund milli stríða. Frá vinstri: Pétur Heimisson, Óttar Ármannsson og Stefán Þórarinsson. Ljósm.: jt Fjórir læknar starfa við Heilsugæslustöðina á Egilsstöð- um og hafa tveir þeirra verið þar ailmörg ár en hinir tveir styttra. Auk venjulegra starfa sinna á heilsugæslustöð sinna þeir sjúklingum á sjúkrahúsinu þar sem einkum dveljast aldrað- ir og langlegusjúklingar. Óger- legt reyndist að ná fjórmenning- unum til viðtals í einu því alltaf er einhver úr hópnum bundinn við störf en á dögunum gátu Stefán Þórarinsson og Óttar Ár- mannsson gefið sér tíma meðan Gísli Baldursson kenndi sjúkra- flutningamönnum á námskeiði og Pétur Heimisson var á vakt- inni og átti annríkt þar. Stefán hefur starfað lengst fjórmenninganna á Egilsstöð- um eða í tvo áratugi, Pétur Heimisson í níu ár, Gísli í fimm ár og Óttar er nýlega fluttur til Egilsstaða frá Fáskrúðsfirði. Þeir Stefán og Óttar eru fyrst beðnir að lýsa starfsfyrirkomu- laginu: „Við erum alltaf að vinna! Við sinnum daglegum störfum á heilsugæslunni alla virka daga vikunnar og síðan skiptumst við á að vera á vakt á kvöldin og um helgar bæði vegna útkalla fyrir heilsugæsluna og á spítalanum og eru tveir á vakt í senn - annar á bundinni framvakt (GI) og hinn á bakvakt (GII).“ Heilsugæslusjúkrahús kalla þeir Stefán og Óttar sjúkrahúsið á Egilsstöðum og segja það nýtt hugtak en á nokkrum stöðum á landinu háttar þannig til að lítið sjúkrahús er rekið í tengslum við heilsugæslustöð. Þar sem svo háttar til sinna heilsugæslu- læknarþvíbæði heilsugæslustöð og viðkomandi sjúkradeild. Þar eru með öðrum orðum ekki starfandi aðrir sérfræðingar. Hvernig gefst þetta fyrirkomu- lag? Sjúkraflug í óvissu „Það reynist nokkuð vel. Hér hjá okkur er auðvitað mest um vanda sem tengist gömlu fólki og langlegusjúklingum en nokk- uð er alltaf um bráðainnlagnir sem við sinnum eins og hægt er. Við þurfum alloft að senda sjúklinga burtu, ýmist til Nes- kaupstaðar, Akureyrar eða Reykjavíkur. Ef nota þarf sjúkraflug er fljótlegast að senda sjúklinga til Akureyrar og það er oftast gert í bráðatilvik- um en margir vilja þó heldur fara suður - ekki síst þeir sem eiga þar ættingja. Hér á Egils- stöðum er sjúkraflugvél í eigu Flugfélags Austurlands og flug- maður býr hér en nú er hann búinn að ráða sig annað og er verið að auglýsa eftir nýjum flugmanni. Sjúkraflugið er því kannski í nokkurri óvissu í bili. Hér er líka rekin lítil fæðing- ardeild og á síðasta ári urðu þær fleiri en mörg undanfarin ár, eða 37. Okkur finnst heilmikil streita fylgja fæðingum en þegar allt gengur eðlilega og vel fyrir sig eru þær líka eitt það skemmtilegasta í faginu,“ segja þeir félagar. Má segja að örlítill vísir sé að verkaskiptingu lækn- anna en annars eru þeir jafnvíg- ir á það sem gera þarf. Milli 300 og 400 innlagnir eru á ári hverju á sjúkrahúsið og sinna læknarn- ir á sjúkrahúsinu þriðjungi þeirra innlagna sem Héraðs- búar þarfnast. I sambandi við sjúkraflug má
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.