Læknablaðið - 15.05.1997, Blaðsíða 54
328
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
ingar frá læknum á Höfn og þar
yrði bætt við tveimur læknum.
Skjólgarður verði heilsugæslu-
sjúkrahús."
Með þessu fyrirkomulagi ger-
ir Stefán ráð fyrir að stjórnum í
heilbrigðisþjónustu á svæðinu
geti fækkað úr 10 í fjórar, þannig
að ein yrði fyrir hvert svæði og
ein fyrir Fjórðungssjúkrahúsið f
Neskaupstað.
Styrkari stofnanir og
betri þjónusta
Stefán nefnir ýmsa kosti sem
þetta nýja fyrirkomulag hefði í
för með sér: „Það má kannski
deila um einstaka þætti útfærsl-
unnar en komist hugmyndin í
framkvæmd tel ég að stofnan-
irnar verði styrkari og þjónust-
an í fjórðungnum öruggari.
Bæta þarf við að minnsta kosti
þremur læknum í fjórðungnum.
Vaktaálag minnkar og afleys-
ingaþörfin minnkar enda geta
læknar á svæðinu leyst hverjir
aðra af í styttri fríum. Við erum
rétt að byrja að ræða þessar
hugmyndir hér en mér sýnist
flestir á því að breytingar í þessa
átt séu nauðsynlegar. Við verð-
um að gera eitthvað róttækt ef
við ætlum að halda áfram uppi
góðri heilbrigðisþjónustu í
fjórðungnum og það verður
ekki gert nema læknum og öðru
starfsliði hennar sé boðið upp á
viðunandi starfsaðstöðu."
Stefán sendi einnig ráðherra
hugleiðingar um það sem hann
nefnir stjórnarkreppu heil-
brigðisþjónustunnar. Segir
hann þar að mörg vandamála
sem heilbrigðisþjónustan glímir
við í dag megi rekja til þess að
vanrækt hafi verið að byggja
upp stjórnkerfi hennar. „Þetta á
ekki síst við á litlum stofnunum
eins og heilsugæslustöðvum og
minni sjúkrahúsum. Hver um
sig eru þessar stofnanir litlar en
velta samanlagt 5,7 milljörðum
árlega. Þar af veltir heilsugæsl-
an 4,8 milljörðum en hún hefur
enga eiginlega yfirstjórn og í
dag er ekkert fyrirtæki skipulagt
þannig. Stjórnun er óljós,
starfsmenn og stjórnendur á
hverjum stað hafa engan bak-
hjarl og verkefni eru oft leyst á
tilviljanakenndan hátt.“
Of mikið af smámálum
Stefán telur að heilbrigðis-
ráðuneytið, sem fer með yfir-
stjórn málaflokksins, ábyrgð og
daglegan rekstur að hluta ráði
stundum illa við þessi hlutverk
sín. „Ég tel aðalástæðuna þá að
það fer ekki vel saman að hafa
rneð höndum yfirstjórn mála-
flokks og að reka beint suma
þætti hans. Ráðuneytið er að
mínu viti of lítið og það er of
mikið álag á lykilstarfsmenn,
ráðuneytið fær of mikið af smá-
málum til afgreiðslu og á erfitt
með að losna við þau. Þá hafa
yfirlæknar, hjúkrunarforstjórar
og framkvæmdastjórar heilsu-
gæslunnar nokkuð misvísandi
starfsreglur og þetta allt veldur
ruglingi og veikir daglegt starf.
Ég geri mér grein fyrir að
þetta er ekki einfalt mál til úr-
lausnar en hér þurfa menn að
taka sig á og koma betra skipu-
lagi á þessa hluti alla. I fram-
haldi af því tel ég auðveldara að
ná árangri í bættri þjónustu og
hagkvæmum rekstri í heilbrigð-
isþjónustu landsmanna."
jt
Óttar Ármannsson, Stefán Þórararinsson, Bryndís Sigurgeirsdóttir og Hulda Bryngeirsdóttir stödd inni
á sjúkradeild. Ljósm.: jt