Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.1998, Síða 20

Læknablaðið - 15.07.1998, Síða 20
542 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Efniviður og aðferðir: Farið var yfir sjúkra- skrár allra sem hafa mænuskaðast í slysum á Islandi á árunum 1973-1996 og bundist vegna þess hjólastól. Faraldsfræðilegar upplýsingar og tíðni fylgikvilla voru skráðar. Tíðni fylgi- kvilla eftir útskrift var metin með persónuleg- um viðtölum við sjúklinga. Starfrænar rann- sóknir á neðri hluta þvagfæra (urodynamic investigations) og röntgenrannsóknir á nýrum voru gerðar hjá hluta hópsins. Niðurstöður: Á tímabilinu hafa 48 einstak- lingar mænuskaðast og bundist vegna þess hjólastól. Ársnýgengi er því 8:1.000.000. Á bráða- og endurhæfingarstigi fengu 14 (29%) þrýstingssár, átta (17%) blóðtappa í neðri út- lim, sex (12%) lungnabólgu og fimm (10%) lungnablóðrek. Eftir útskrift (meðaltími frá slysi er 14 ár) hafa 19 (54%) fengið þrýstings- sár, 16 (46%) fá eina til fjórar þvagfærasýking- ar á ári og níu (26%) fleiri en fjórar. Nítján ein- staklingar (56%) höfðu vandamál vegna þvag- leka og 18 (52%) sögu um þvagfærasteina. Einn sjúklingur hefur misst nýra vegna bak- flæðis. Þriðjungur þeirra sem komu til rann- sókna á nýrum höfðu óeðlilegt útlit á nýrum og/eða bakflæði. Hámarksblöðruþrýstingur yfir 60 cmH:0 fannst hjá 12 (44%) sjúklingum og blöðrurýmd undir 200 ml hjá sjö (26%). Af þeim sem eru með skaða ofan við sjötta brjóst- hryggjarlið hafa 14 (58%) upplifað einkenni sjálfvirks rangviðbragðs (autonomic dysre- flexia), oftast vegna þvagfærasýkinga eða þan- innar þvagblöðru. Fylgikvillar tengdir þvag- færum voru algengari meðal sjúklinga sem tæmdu blöðru með banki en meðal þeirra sem tæmdu hana reglulega með einnota þvagleggj- um. Þriðjungi þeirra sem komu til rannsókna á þvagfærum var ráðlögð breytt þvagtæmingar- aðferð og/eða lyfjameðferð vegna óeðlilegrar starfsemi og/eða útlits þvagfæra. Áyktanir: Nýgengi mænuskaða sem valda hjólastólabundinni lömun hér á landi er lágt og hefur lækkað undanfarin 25 ár. Fylgikvillar hjá þessum einstaklingum bæði á bráða- og endur- hæfingarstigi og eftir útskrift eru algengir. Lík- lega er hægt að draga úr tíðni fylgikvilla við- komandi einstaklinga með því að koma á reglu- bundnu læknisfræðilegu eftirliti eftir útskrift eins og tíðkast í flestum nágrannalöndum okk- ar. Inngangur Ekki eru nema rétt rúm 50 ár liðin síðan ein- staklingum sem fengið höfðu mænuskaða var vart hugað líf. Fylgikvillar sem fylgdu í kjöl- farið voru á þeim tíma óviðráðanlegir og drógu menn til dauða, oftast á mjög skömmum tíma. Þvagfærasýkingar og nýrnabilanir voru algeng- ustu dánarorsakirnar en aðrir fylgikvillar eins og lungnabólgur, þrýstingssár og blóðtappar voru einnig algengir (1). Með bættum meðferð- arúrræðum hafa framtíðarhorfur mænuskað- aðra tekið stakkaskiptum. Þó svo að fylgikvill- ar séu hvergi nærri eins algengir og áður, valda þeir enn miklum óþægindum fyrir hinn mænu- skaðaða, lengja dvöl hans á sjúkrastofnunum, tefja fyrir endurhæfingu og eru kostnaðarsamir (2), , Á Islandi eru allir sem mænuskaðast lluttir á Sjúkrahús Reykjavíkur í Fossvogi þar sem bráðameðferð fer fram. Oftast dvelja sjúkling- arnir þar í tvær til fjórar vikur en eru þá fluttir á endurhæfingardeild sjúkrahússins við Grens- ás sem tók til starfa árið 1973. Ólíkt því sem þekkist víða erlendis hefur ekkert reglubundið læknisfræðilegt eftirlit verið haft með mænusköðuðum á Islandi að endurhæfingu lokinni. Að sama skapi hefur tíðni algengra fylgikvilla lítið verið skoðuð hér á landi og er því staða hópsins nokkuð óljós. Markmið rannsóknar okkar voru fjölþætt. I fyrsta lagi að kanna faraldsfræði hjólastóla- bundinna mænuskaðaðra einstaklinga á Islandi. I öðru lagi að kanna tíðni algengra fylgikvilla á bæði bráða- og endurhæfingarstigi svo og tíðni fylgikvilla eftir útskrift, með áherslu á þvag- færavandamál sem eru sérstaklega algeng hjá þessum hópi einstaklinga. I þriðja lagi að meta ástand efri og neðri hluta þvagfæra. í fjórða lagi að meta með samanburði við erlendar rannsóknir hvort reglubundið læknisfræðilegt eftirlit geti bætt það ástand sem mænuskaðaðir búa við. Efniviður og aðferðir Sjúkraskrár allra þeirra sem hafa mænuskað- ast í slysum á Islandi frá árinu 1973 til 1996 og bundist hjólastól vegna þess voru skoðaðar. Miðað er við árið 1973 er tauga- og endurhæf- ingardeild Borgarspítalans tók til starfa. Úr sjúkraskrám var leitað eftir upplýsingum um kyn, aldur við slys, orsakir slyss, staðsetningu og gráðu mænuskaðans (3) (algjör (Frankel A) eða hlutaskaði (Frankel B og C)). Þeir sem ekki bundust hjólastól (Frankel D og E) voru útilok- aðir frá rannsókninni. Leitað var eftir hvort
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.