Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.1998, Page 25

Læknablaðið - 15.07.1998, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 547 með viðbragðsblöðru og lamaða blöðru (13- 16). Áður var þvaglosun með svokölluðu blöðru- banki algengust. Aðferðin felur í sér að slegið er í kviðvegginn, rétt ofan við lífbein og þann- ig fengið fram viðbragð í þvagblöðrunni sem dregst saman og tæmist. Þeim fer fækkandi sem nota blöðrubank til þvaglosunar og enginn sem hefur skaðast eftir 1984 á íslandi notar þá aðferð í dag. Margir þeirra sem upphaflega notuðu blöðrubank hafa neyðst til þess að taka upp nýjan þvagtæmingarmáta, oftast einnota þvagleggi. Þrír einstaklingar bættust í þennan hóp í kjölfar rannsóknar okkar, enda kom í ljós að ástand þvagfæranna er verra hjá þeim sem nota blöðrubank en hinum sem nota einnota leggi. Þeir sem nota blöðrubank hafa hærri blöðruþrýsting, mikið afgangsþvag, litla starf- ræna blöðrurýmd og fylgikvillar eins og blöðrusteinar og þvagleki eru algengari hjá þeim. Hafa verður þó í huga að lengra er síðan flestir þeirra sem banka sig slösuðust en hinii sem nota leggina. Sömuleiðis má velta fyiir sér hvort vandamálin hafi ekki safnast upp vegna skorts á eftirliti og ástand þvagfæranna sé þess vegna eins slæmt og raun ber vitni. Bestu rannsóknir til að meta ástand þvagfæra eru starfrænar rannsóknir á neðri hluta þvag- færa og röntgenrannsóknir á efri hluta þvag- færa (13,17). Ef slíkar rannsóknir eru gerðar reglulega hjá mænusköðuðum má fyrr grípa inn í og draga úr tíðni þvagfæravandamála sem kunna að skapast. Enda er það svo að víða er- lendis er haft sérhæft reglubundið læknisfræði- legt eftirlit með mænusköðuðum með sérstakii áherslu á þvagfæravandamál (13,17). ljósi fyrirliggjandi niðurstaðna iná telja nauðsynlegt að koma upp sams konar kerii hérlendis. Þvagfærasýkingar eru tíðar hjá mænuskö - uðum einstaklingum og einkenni um þæi marg- vísleg svo sem þvagleki, óljós slappleiki, von lykt af þvagi, breyttur litur eða útlit (18,19). Ástæður sýkinganna eru þær helstar að blöðru- tæming er ófullkoinin þegar bankaðferð ei beitt (og afgangsþvag verður gróðrarstía fyrir sý a) og sýkingarhætta fylgir notkun þvagleggja. Eins og almennt gerist er E. coli algengasta orsök þvagfærasýkinga hjá mænusköðuðum (18). í þeim tilfellum er sjaldnast um illviga sýkingu að ræða en nauðsynlegt er þó að meö- höndla sýkingarnar fljótt og vel vegna aukinnar hættu á steinamyndunum, nýrnabakflæðt, nýrnaskemmdum, auknum blöðruþrýstingi, minnkaðri blöðrurýmd og þvagleka (1). Athygli vakti hve margir hafa haft blöðru- steina. Flestir þeirra losa þvag með banki eða losuðu þvag með banki á þeim tíma sem stein- arnir mynduðust. Blöðrusteinar myndast vegna mikils afgangsþvags sem algengt er hjá þeim sem nota blöðrubank en þekkist ekki hjá þeim sem tryggja algjöra blöðrutæmingu með ein- nota þvagleggjum (20). Þar sem aukin tíðni blöðrukrabbameins er talin fylgja blöðru- steinum er nauðsynlegt að fylgjast reglulega með hugsanlegri steinamyndun með þvagfæra- yfirliti og blöðruspeglun (21). Sex af þeim 33 (18%) sem komu til þvag- færarannsókna var ráðlagt að hefja eða breyta lyfjameðferð vegna þvagfæravandamála. Fimm með viðbragðsblöðru var ráðlögð notkun á andkólínvirku lyfi (þremur sem nota einnota þvagleggi og tveimur sem beita bankaðferð) vegna hás blöðruþrýstings, lítillar blöðrurýmd- ar eða þvagleka. Einum með lamaða blöðru var ráðlögð notkun alfa-adrenvirks lyfs vegna áreynsluþvagleka. Þriðjungur rannsóknarhópsins fékk þrýst- ingssár meðan á sjúkrahúsdvöl stóð. Þrýstings- sárin eru enn algengari eftir útskrift þar sem meira en helmingur hefur fengið sár og þar af hefur stór hluti lagst inn á sjúkrahús og þurft sérhæfða meðferð. í sambærilegri bandarískri rannsókn er talað um að tjórðungur allra mænuskaðaðra fái þrýstingssár árlega (22). Til að draga úr hinni háu tíðni er mikilvægt að auka fræðslu um legusár á meðal mænuskað- aðra hérlendis. Með aukinni fræðslu leita sjúk- lingar fyrr til læknis með sár sín sem verða þá auðveldari í meðferð (23). Blóðtappar og öndunarfæravandamál eru al- gengustu lífshættulegu fylgikvillarnir vegna mænuskaða (24). Eftir útskrift eru lungnabólg- ur algengasta dánarorsök hjá þeim sem hafa há- an skaða (25). Stöðnun blóðs vegna hreyfingar- leysis auk afbrigðilegra storkuþátta verða því valdandi að kjöraðstæður til blóðsegamyndun- ar skapast með tilheyrandi hættu á lungnablóð- reki (26). Hreyfingarleysi ákveðinna öndunar- vöðva er aðalástæðan fyrir hárri tíðni öndunar- færavandamála (27). Mat á nýgengi blóðtappa hjá mænusköðuð- um fer að miklu leyti eftir þeirri greiningarað- ferð sem beitt er og geta tíðnitölur náð allt frá 10% upp í nánast 100% (24,28,29). Ef tíðni þeirra sem greinast klínískt með blóðtappa er athuguð má búast við lægra hlutfalli. Einungis
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.