Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.1998, Page 30

Læknablaðið - 15.07.1998, Page 30
552 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Fjarlækningar á íslandi Ásmundur Brekkan”, Þorgeir Pálsson2’, Ólafur Hergill Oddsson31 Brekkan Á, Pálsson Þ, Oddsson ÓH Telemedicine in Iceland Læknablaðið 1998; 84: 552-61 The aim of this survey is to consider the evolution and historical background of telemedicine, as well as reviewing the present status, globally, and locally. General definitions and aims of telemedicine are mentioned and discussed, examples of successful telemedicine implementations in various areas are presented, especially mentioning Canada, Australia and Norway. In Iceland only a few projects within telemedicine have been tried so far; the most extensive one being the successful establishment of a few teleradiology links. Various other projects are in preparation, and the importance of telemedicine as a tool for facilitation of equity to services as well as a powerful educational medium is stressed. Keywords: telemedicine, information technology, health care. Ágrip Markmið greinar þessarar er að gefa yfirlit yfir sögulega þróun fjarlækninga og stöðu mála á erlendum vettvangi og hérlendis. Fjarlækningar eru skilgreindar sem „rann- " Prófessor emeritus læknadeild Háskóla íslands, 2leðlis- fræði- og tæknideild Landspítalans, 3|embætti héraðs- læknis Norðurlandi eystra. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Ás- mundur Brekkan Geislavörnum ríkisins, Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík. Sími 552 8200. Lykilorð: fjarlækningar, upplýsingatækni, heilbrigðis- fræði. sóknir, meðferð, eftirlit og stjórnun, vegna sjúklinga og starfsmanna með hjálp fjarskipta- kerfa, sem veita tafarlausan aðgang að sér- þekkingu og viðhlítandi upplýsingum óháð landfrœðilegri staðsetningu Þarfir og mat á æskilegum árangri eru tíund- uð, bæði á sviði lækninga og samskipta heil- brigðisstétta, kennslu og menntunar. Sögulegu baksviði og þróun eru gerð nokkur skil, með tilvísun til reynslu forgöngulanda svo sem Kanada, Ástralíu, Noregs og fleiri. Gerð er grein fyrir þróun fjarlækninga hérlendis, en þar er flest enn á byrjunarreit og loks eru markmið fjarlækninga skilgreind ítarlegar og bent á leið- ir til að ná þeim. Inngangur Tækniþróun á sviði stafrænna samskipta og gagnaflutninga ásamt vaxandi aðgengi að hrað- virkum og áreiðanlegum samskiptaleiðum hef- ur leitt til þess að margar þjóðir hafa sett fram vel markaðar stefnur og þróunaráform er varða fjarskipti sem snerta heilbrigðisþjónustu af ýmsu tagi. Nýlega kom út á vegum heilbrigðismála- ráðuneytisins skýrslan Stefnumótun í upplýs- ingamálum innan heilbrigðiskerfisins sem fjallar um hvernig upplýsingatækni verður nýtt fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi (1). Hér er ekki einvörðungu átt við bein upplýs- ingaskipti og ráðgjöf um einstök sjúkdómstil- vik, heldur ekki síður heilsteyptar áætlanir um nýtingu fjarskiptatækninnar á sem flestum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Margmiðlun- artæknin, ásamt hinum fjölbreyttu hraðvirku flutningsleiðum, gerir það áð verkum að upp- lýsingatæknin mun hafa afgerandi þýðingu fyr- ir alla stjórnun og þróun nútíma heilbrigðis-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.