Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.1998, Qupperneq 35

Læknablaðið - 15.07.1998, Qupperneq 35
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 557 fyrir landsteinana. Jafnframt þessu verkefni var á árunum 1994- 1995 unnið að tilraunasendingum um gervi- hnattasamband á segulómunarmyndum á milli Landspítalans og háskólasjúkrahúsanna í Oulu í Finnlandi og Tromsö í Noregi. Tilgangurinn með því verkefni var að sýna fram á gildi fjar- lækninga á milli sérfræðisjúkrahúsa og að prófa myndgæði og túlkunarhæfni slíkra mynda við ýmis skilyrði. Verkefnið tókst vel og sannaði, að við þau tæknilegu skilyrði sem reynd voru var árangur myndtúlkunar alveg fullnægjandi (12). Öðrum sviðum fjarlækninga hefur verið hnikað nokkuð áfram á undanförnum árum svo sem ómskoðunum í meðgöngurannsókn. Áhugamenn innan heilbrigðisstofnana hafa verið iðnir við að kynna heilbrigðisyfirvöldum framþróun og nýjungar, með þeim árangri að 1997 ákvað heilbrigðisráðherra að setja á stofn fagráð um fjarlækningar. Um starfsemi þess og verksvið er getið annars staðar í yfirliti þessu. Á næstu tveimur árum taka Landspítalinn og- Sjúkrahús Reykjavíkur þátt í verkefni á sviði Evrópurannsókna (fjarvirkniáætlun í fjórðu rammaáætluninni). Verkefnið fjallar um fjar- lækningar fyrir bráðalækningar og er samstarf fimm Evrópulanda. Markmiðin Sameiginlegt efni allra skilgreininga á mark- miðum fjarlækninga er, að notaðar eru fjar- skiptaleiðir til að koma læknishjálp og heilsu- gæslu til sjúklinga, hvar sem þeir kunna að vera staddir. Annað hugtak, sem tengist notkun upplýs- ingatækni til að leysa margvíslega mál í heil- brigðisþjónustu, er fjarvirkni (telematics). Það felur í sér verulega víðara svið en fjarlækning- arnar einar saman og höfðar til nýtingar á tölvu- og fjargreiningartækni á öllum sviðum heilbrigðiskerfisins, innan sjúkarhúsa og utan. Þar með telst, auk hverskonar stjórnsýslu, gagnageymslu og gagnaflutnings, fjarhjúkrun og fjargæsla sjúkra og aldraðra þar sem slíku verður viðkomið og það telst fýsilegt (13). Vaxandi kostnaður samtímis samdrætti og greiðsluerfiðleikum hafa meðal annars beint augum ráðamanna heilbrigðiskerfa víðsvegar um heim æ meira að þeim möguleikum sem kunna að felast í fjarlækningum (14). Enda þótt tveggja til þriggja áratuga reynsla sé komin á ýmsa afmarkaða þætti fjarskiptalækninga, þá hefur þróun síðustu ára markað þessari að- ferðafræði alveg nýja farvegi. Altækasta og um leið þýðingarmesta markmiðið pólítískt með þróun fjarlækningakerfa er að jafna sem best aðgengi allra þegna að þeirri sérhæfðu þjón- ustu, sem eðlis síns vegna verður ekki starfrækt eða öðruvísi veitt nema á fáum stöðum, jafnvel einum, í landi eða stóru héraði. Önnur markmið eru: * Að tryggja sjúklingi betri og fjölþættari þjónustu við vægari kostnaði. * Að skapa og dreifa þekkingu á fjarlækning- um, í víðasta skilningi. * Að tryggja bestu gæði fjarlækninga á hverj- um tíma. * Að bæta nýtingu gagna og gæða, beint og óbeint. * Að draga úr faglegri einangrun. * Að nota tæknina til kennslu, þjálfunar og sí- menntunar heilbrigðisstarfsmanna og til fræðslu almennings (sjúklinganna). * Að nota tæknina til stuðnings hjúkrunar í heimahúsum eða utan stofnana. Leiðir Leiðir að þessum markmiðum eru margvís- legar og taka mið af því, hvaða fjarskiptamiðill er notaður hverju sinni. Margar þeirra hafa þegar verið vel prófaðar víðsvegar, áratugum saman, svo sem sími, bréfsími, bréf, en í öðrum tilvikum eru öruggar tæknilegar forsendur til- tölulega nýtilkomnar, svo sem fyrr getur. Dæmi um slíkt eru, auk hverskonar mynd- sendinga (teleradiologi, telepatologi, tele- dermatologi og fleira), gagnvirkur fjarfunda- búnaður, það er beintengt tal- og sjónsamband (videoconference), til dæmis í geðlækningum, ómskoðunum, háls-, nef- og eyrnaspeglunum, auk hverskonar flutnings kennslu- og fræðslu- efnis. Þegar reynt er að gera í stuttu máli grein fyrir almennum viðhorfum til fjarþjónustu af þessu tagi eru það aðallega þrír þættir sem skipta máli: 1. Tækniviðbúnaður og -þróun: Enda þótt augljóst sé, að við höfum ekki hugmynd um þá tækni sem okkur stendur til boða eftir einn, hvað þá tvo áratugi, þá er ljóst að víðast hvar í menningarumhverfi okkar er í dag fyrir hendi sú tækni, sem leyfir okkur mjög fullkomna og fullnægjandi flutninga á nánast öllu því efni, sem felst jafnt í beinum sem óbeinum sam- skiptum í heilsugeiranum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.