Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.1998, Side 40

Læknablaðið - 15.07.1998, Side 40
562 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84: 562-3 Sjúkratilfelli mánaðarins Erlent tónfall eftir heiladrep María K. Jónsdóttir1’, Magnús Haraldsson”, Þóra Sæunn Úlfsdóttir”, Einar M. Valdimarsson’1 Sjúkrasaga Þrjátíu og sjö ára gömul kona veiktist með skyndilegri taltruflun. Hún gat hvorki tjáð sig munnlega né skriflega en fannst hún skilja það sem við hana var sagt og geta hugsað það sem hún vildi segja. Daginn eftir var hún farin að tala aftur en með óeðlilegu tónfalli og áhersl- um. Hún var einnig þvoglumælt og hafði mál- fræðistol. Við skoðun tveimur dögum síðar fundust engin brottfallseinkenni utan taltrufl- ana og tölvusneiðmynd af höfði var eðlileg. Sex vikum eftir fyrstu einkenni var konan lögð inn á endurhæfinga- og taugadeild Sjúkra- húss Reykjavíkur til ítarlegri rannsókna. Þá var tónfall tals með nokkuð sterkum erlendum hreim. Rödd var hás og rám en tónstyrkur var góður. Áherslur og lengd hljóða voru ekki í samræmi við íslenska málvenju og oft fengu öll atkvæði orða jafna áherslu. Hún kvað mjög skýrt að og í samfelldu tali varð ekki eðlilegur samruni hljóða. Henni gekk illa að breyta tónfalli í setningum eftir fyrirmælum og gekk illa að heyra mun á mismunandi tónfalli. Öll myndun stakra hljóða var þó eðlileg. I 364 orða frásögn kom tvisvar fyrir að hún notaði eitt sérhljóð fyrir annað og einkenndi það tal hennar að nota raddað /r/ í stað óraddaðs /r/. Að auki einkenndist tal hennar af óeðlilega löngum sérhljóðum. Orðgleymska var mjög væg en að öðru leyti var mál fullkomlega eðlilegt og tal liðugt þó hún talaði fremur hægt. Frá "endurhæfinga- og taugadeild Sjúkrahúss Reykjavík- ur, 108 Reykjavík. Fyrirspurnir, bréfaskipti: María K. Jóns- dóttir, Grensásdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, Grensásvegi 62, 108 Reykjavík. Sími: 525 1656. Bréfsími: 525 1662. Netfang: marjo@rhi.hi.is Engar vitsmunalegar truflanir voru til staðar. Bæði yrt og óyrt minni var eðlilegt, sjónræn úrvinnsla var góð og á óyrtu rökverkefni stóð hún sig betur en 75% samanburðarhóps. Tölvusneiðmynd af höfði, hjartalínurit og ómskoðun af hjarta voru án sjúklegra breyt- inga. Segulómun sýndi ummerki heiladreps ofan til á framanmiðjufellingu (gyrus pre- centralis) (mynd 1). Við ómskoðun á hálsæðum sást hvirfilstreymi og hraðaaukning á blóð- streymi í vinstri innri hálsslagæð. Hálsæða- mynd sýndi stutta þrengingu á vinstri innri hálsslagæð. Þessi breyting er talin orsök sega- myndunar og blóðreks til heila. Konan var sett á magnyl og fékk talþjálfun. Einkennin gengu vel til baka á næstu mánuðum og eru nú tæpast merkjanleg nema þeim sem þekkja til sögu hennar. Umræða Eitt birtingarform áunninna taltruflana er að sjúklingurinn hljómar eins og útlendingur (foreign accent syndrome). Svona taltruflanir eru mjög óalgengar og innan við 30 tilfellum hefur verið lýst síðan Pick kynnti það fyrsta árið 1919(1). Margir þeirra sjúklinga sem lýst hefur verið hafa talað hikandi og stirðlega og sumir þeirra hafa haft málfræðistol (2,3). Það veldur þó ekki því að þeir hljóma eins og útlendingar enda er þvoglumælgi og stirðleiki í tali alla jafna ekki túlkað sem erlendur hreimur. Það sem veldur útlendu hljómfalli eru breyttir hljóðkerfislegir eiginleikar hljóða og óeðlilegar áherslur (2,3). Rétt er að líta á slíkt tónfall sem brottfallsein- kenni þar sem sjúklingurinn hefur glatað hæfn- inni til að mynda þann hljóm sem er eiginlegur móðurmáli hans. Réttnefni á þessum einkenn- um væri því tónfallsröskun eða hljóðkerfis- röskun.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.