Læknablaðið - 15.07.1998, Page 46
566
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84
Að loknu XIII. þingi
Félags íslenskra lyflækna
.V FELAG
^ ^ ÍSLENSKRA
W T LYFLÆKNA
Nýtt merki Félags íslenskra lyflœkna.
Hluti þátttakenda á tröppum Verkmenntaskólans. Ljósm.: Guðmundur Brynjarsson.
Dagana 12. -14. júní síðast-
liðinn var haldið XIII. þing
Félags íslenskra lyflækna.
Samkvæmt hefð var þingið
haldið utan Reykjavíkur og að
þessu sinni á Akureyri, í hús-
næði Verkmenntaskólans.
Þingið sóttu íslenskir lyf-
læknar starfandi heima og
heiman og voru virkir þátttak-
endur á þinginu alls um 100
en auk þeirra sóttu þingið full-
trúar lyfjafyrirtækja sem stóðu
fyrir lyfjakynningum og aðrir
gestir. Alls sóttu því um 200
manns þingið. A þinginu voru
kynntar nýjustu rannsókna-
niðurstöður í alls 92 fyrir-
lestrum og á níu veggspjöld-
um. Auk þess voru þrír gesta-
fyrirlesarar: þeir Anton Pjetur
Þorsteinsson er fjallaði um
Alzheimers sjúkdóm og nýj-
ungar í meðferð hans, Rafn
Benediktsson er fjallaði um
blóðþurrðarsjúkdóma og nýjar
rannsóknir tengdar þeim og
Sigurður Arnason er greindi
frá líknareiningu er opnuð
verður í haust á vegum Land-
spítalans.
Veitt voru verðlaun úr Vís-
indasjóði lyflækningadeildar
Landspítalans fyrir framúr-
skarandi rannsókn ungs lækn-
is og hlaut þau Kristján Skúli
Asgeirsson. Einnig veitti Fé-
lag íslenskra lyflækna sérstök
verðlaun fyrir bestu rannsókn
og fyrirlestur stúdents og
hlaut þau Sigurður Yngvi
Kristinsson læknanemi á
fjórða ári.
A þinginu var kynnt nýtt
merki félagsins sem Hólm-
fríður Valdimarsdóttir auglýs-
ingateiknari hannaði.
í hátíðarkvöldverði sem
efnt var til að kvöldi laugar-
dags var lýst kjöri tveggja
heiðursfélaga, þeirra Ólafs
Sigurðssonar og Sigurðar Þ.
Guðmundssonar og þeim af-
hent skrautrituð skjöl því til
staðfestingar. Þeir Ólafur og
Sigurður eru jafnframt fyrstu
heiðursfélagar Félags ís-
lenskra lyflækna. Var þeim vel
fagnað.
Stjórn Félags íslenskra lyf-
lækna skipa Astráður B.
Hreiðarsson formaður, Þórður
Harðarson ritari, Asgeir Jóns-
son gjaldkeri, Sigurður B.
Þorsteinsson og Sigurður
Guðmundsson.
-bþ-
Nýkjörnir heiðursfélagar Félags íslenskra lyflœkna, Ólafur
Sigurðsson og Sigurður Þ. Guðmundsson, auk Ástráðs B.
Hreiðarssonar formanns.
Asbjörn Sigfússon afhenti Sigurði Yngva Kristinssyni og
Kristjáni Skúla Ásgeirssyni verðlaunin fyrir hönd Félags ís-
lenskra lyflœkna.