Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.1998, Síða 66

Læknablaðið - 15.07.1998, Síða 66
584 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 að því að þróa staðla til að auð- velda samskipti hinna dreifðu upplýsingakerfa og ráðuneyti heilbrigðismála hefur þegar mark- að metnaðarfulla stefnu í upp- lýsingamálum. Hvers vegna þarf nú að setja sérstök lög um gagnagrunna með það að markmiði að veita einum aðila leyfi til að reka slíkan grunn? Samkvæmt athugasemd- um við lagafrumvarpið má greina eftirfarandi meginástæður fyrir þessari lagasetningu en þar segir: „Þótt tölvunefnd geti sam- kvœmt gildandi lögum veitt heimild til starfrœkslu gagna- grunna standa lög um réttindi sjúklinga í vegifyrir því að unnt sé að veita aðgang að upplýsing- um úr sjúkraskrám til skráningar í gagnagrunni, nema vegna ein- stakra vísindarannsókna. Ekki er heldur unnt samkvœmt gildandi lögum að veita tímabundin sér- leyfi til aðgangs að áður skráð- um heilsufarsupplýsingum. “ Hér er væntanlega átt við það að í lögum um réttindi sjúklinga er kveðið á um það að heimild sjúklings þurfi að liggja fyrir til þess að unnt sé að nota upplýs- ingar um hann til rannsókna. Með þessum lögum um gagna- grunna er verið að þrengja þenn- an rétt. Vekur þaö spurningar um þaö hvernig slíkt samrým- ist 71. gr. stjórnarskrárinnar svo og 8. gr Mannréttindasátt- niála Evrópu, en hann öðlaðist lagagildi á Islandi með lögum nr. 62/1994. Ennfremur má nefna 17. gr. Alþjóðasamnings uni borgaraleg og stjórmálaleg réttindi frá 23. mars 1976 sem Island er aðili að, sbr. stjórnar- tíðindi C nr. 10/1979. Vakin er athygli á því að unnið er að endurskoðun laga um skrán- ingu og meðferð persónuupp- lýsinga sem væntanlega þarf að breyta til samræmis við til- skipun Evrópusambandsins (95/46) og gert er ráð fyrir því að þeirri vinnu verði lokið síð- ar á þessu ári. Þá er kvartað yfir því að sam- kvæmt gildandi lögum sé ekki unnt að veita tímabundin sérleyfi til aðgangs að áður skráðum heilsufarsupplýsingum. Spyrja má hvers vegna ætti yfir höfuð að veita slíkt sérleyfi og ganga á rétt annarra? Hver verður sam- keppnisstaða annarra þegar sér- leyfið rennur út að 12 árum liðn- um? Þá segir ennfremur í at- hugasemdum með frumvarpinu: „Samkvœmt frumvarpinu get- ur heilbrigðisráðherra veitt staifsleyfi til gerðar og staif- rœkslu gagnagrunns á heilbrigð- issviði. Svo sem áður var minnst á er mikill kostnaður því sam- fara að gera slíkan gagnagrunn, auk þess sem veruleg óvissa ríkir um það hvort hugmyndir um hagnýtingarmöguleika innan lands og utan muni ganga eftir. A undanförnum árum hefur tals- vert verið unnið að gerð hugbún- aðar fyrir heilbrigðiskerfið. A síðasta ári var samþykkt stefnu- mótun í upplýsingamálum innan heilbrigðiskeifisins (Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, rit 1, 1997). Þar er gert ráð fyrir að byggð verði upp samhœfð upp- lýsingakeifi fyrir stofnanir heil- brigðisþjónustunnar. Ljóst er að það mundi kosta gífurlegt fé að hrinda því í framkvœmd og þeir fjármunir yrðu þá ekki til ráð- stöfunar til annarra þátta heil- brigðisþjónustunnar. Því er lagt til að gert verði mögulegt að virkja framtak og fjármagn einkaaðila á þessu sviði. Fyrir- tœkið Islensk erfðagreining ehf. hefur lýst áhuga á að takast á við gerð gagnagrunns á heilbrigðis- sviði og telur slíkt viðfangsefni rökrétt framhald þeirra verkefna sem fyrirtœkið fœst nú við. “ Af þessum texta virðist mega greina mikilvæga ástæðu fyrir þessu frumvarpi en þar segir: „Ljóst er að það mundi kosta gífurlegt fé að hrinda því ífram- kvœmd [gerð gagnagrunns] og þeir fjármunir yrðu þá ekki til ráðstöfunar til annarra þátta heilbrigðisþjónustunnar. “ Landlæknir bendir á að engin slík kostnaðargreining hefur far- ið fram hvað þá kostnaðar- og hagkvæmnigreining. Upplýs- ingavæðingu heilbrigðisþjónust- unnar er stillt upp gegn öðrum þáttum hennar og gefið er í skyn að fjárveitingar munu ekki fást frá hinu opinbera til slíkra upp- lýsingakerfa en þess í stað skuli framtak og fjármagn einkaaðila virkjað. Einkaaðilinn er beinlínis tilgreindur í athugasemdunum en hann er Islensk erfðagreining ehf. Spyrja má hvort þær heil- brigðisstofnanir sem safnað hafa heilsufarsgögnum og varðveita þau verði nauðbeygð til að semja við einkaleyfishafann um af- hendingu gagna ef þau ætla sér að upplýsingavæða sínar stofn- anir. Ef löggjafinn ætlar sér á annað borð að veita slíkt einka- leyfi, hvers vegna er þá ekki far- ið í útboð? Er það vísasti vegur- inn til að fá upplýsingar um raunverulegt markaðsverð gagna- grunns á heilbrigðissviði? Athugasemdir við ein- stakar greinar frum- varpsins Um 1. kafla Almenn ákvæði 1. gr. I 2. mgr. segir: „Gerð og staifrœksla gagna- grunns á heilbrigðissviði er ein- ungis heimil aðila sem uppfyllir skilyrði laga þessara og hefur fengið starfsleyfi samkvœmt þeim. “ I athugasemdum við frum- varpið segir svo um I. gr.: „Skv. 1. gr. frumvarpsins verður óheim- ilt að staifrœkja gagnagrunna í skilningi laganna án starfsleyfis. Þeir aðilar sem nú starfrœkja
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.