Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.1998, Qupperneq 76

Læknablaðið - 15.07.1998, Qupperneq 76
594 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 Gæðaráð FÍH Marklýsing • Vinna að stefnumótun gæðaþróunar hjá FÍH. • Vera ráðgefandi fyrir gæðaþróunarnefnd FÍH. • Veita hvatningu og stuðning við gæðaþróun í læknishéruðum, á heilsugæslustöðvum og hjá heimilislæknum. • Hafa nána samvinnu við heilbrigðisyfirvöld um gæðaþróun meðal heilbrigðisstétta. • Beita sér fyrir því að fjármagn fáist frá opinber- um aðilum eða annars staðar frá til að félagið geti sinnt gæðaþróun á fullnægjandi hátt. • Stuðla að samvinnu þeirra félagsmanna FÍH sem vinna að gæðaþróun. • Aðstoða stjórn FÍH við að sinna og viðhalda alþjóðlegum tengslum á sviði gæðaþróunar. • Standa að og hvetja til námskeiðahalds og fræðslu um gæðaþróun fyrir heimilislækna. • Hvetja til og efla kennslu og þjálfun í gæðaþró- un í grunn- og framhaldsnámi lækna. Einnig á sviði símenntunar. • Sjá til þess að miðla upplýsingum og fræðslu um gæðaþróun í fréttabréfi FÍH eða með öðr- um tiltækum hætti. verið kynntur erlendis og þýddur á ensku. Punktar fyrir símennt- un - marklýsing Eins og margir vita hefur FIH samið punktakerfi um símenntun heimilislækna. Þar kemur fram að hver heimilislæknir þurfi að sækjast eftir því að ná 50 punkt- um árlega eða 150 punktum á þremur árum. Um þetta gilda ákveðnar reglur, þar sem fram kemur hversu marga punkta er hægt að fá fyrir ýmsa starfsemi. Þetta er ekki skylda enn sem komið er, en þeir sem uppfylla kröfurnar fá viðurkenningar- skjal. Einn af félögum FÍH er punktastjóri og sér hann um að senda út eyðublöð og leiðbein- ingar, reikna út punkta og gefa út viðurkenningarskjöl. Þá hefur FÍH fyrir nokkru lok- ið við að semja marklýsingu fyr- ir framhaldsnám í heimilislækn- ingum. Þetta plagg er hið fyrsta sinnar tegundar í sögu læknis- fræði á Islandi. I ntarklýsingunni kemur fram hvernig félagið vill að áherslum og innihaldi fram- haldsmenntunar í heimilislækn- ingum á íslandi sé fyrirkomið. Sérkafli er í marklýsingunni um gæðaþróun. Gæðaþróunarnefnd FÍH Árið 1991 var stofnuð gæða- þróunarnefnd á vegum FIH (hét þá gæðatryggingarnefnd). Hún setti fram tillögur í skýrslu um hvert íslenskir heimilislæknar ættu að stefna í gæðaþróunar- málum. I þeirri skýrslu var með- al annars mörkuð sú stefna að gæðaþróun ætti að eiga sér stað á vinnustað heimilislæknis og að frumkvæði hans og annars heil- brigðisstarfsfólks. Þetta ætti að vera grasrótarvinna og koma neðan frá en ekki samkvæmt skipunum að ofan. Gæðaþróun- arnefnd hefur starfað áfram. Vor- ið 1994 hófst fundaherferð í öll- um læknishéruðum landsins með fræðslu unt gæðaþróun sem lauk vorið 1997. Fjórir fulltrúar FÍH héldu fyrirlestra um ýmis efni er tengdust gæðaþróun. Fyrirlestrar voru tjórir og fjallaði sá fyrsti al- mennt um gæðaþróun, annar um val á viðfangsefnum og gerð verklagsreglna, sá þriðji fjallaði um gagnasöfnun og aðferðir við mat á árangri og sá síðasti um gæðahópa. Þá fór einnig tals- verður tími í umræður við koll- egana á hverju svæði um afstöðu þeirra til gæðaþróunar og kom þá í ljós að á mörgum stöðum eru athyglisverð gæðaþróunarverk- efni í gangi. Þessir fundir tókust því með miklum ágætum. I fram- haldi af fundaherferðinni var stofnað net tengiliða í öllum læknishéruðum landsins. Gæðaráð FÍH Þegar stofnað hafði verið tengiliðanet í öllum læknishér- uðum landsins var ljóst að gæða- þróunarnefnd FIH væri komin með víðtækara og traustara bak- land en áður. Því var ákveðið stofna gæðaráð félagsins, sem í
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.