Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Síða 2
föstudagur 27. júlí 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Berrassaður Byssu-
maður dæmdur
Maðurinn sem skaut að eiginkonu
sinni með haglabyssu í Hnífsdal
fyrr í sumar, Ólafur Þór Guðmunds-
son, hefur verið dæmdur í fjögurra
og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til
manndráps. Ólafur, sem er ríflega
fimmtugur, var nakinn þegar hann
skaut að konu sinni. Hún hlaut
skrámur á andliti auk þess sem föt
hennar voru rifin og tætt eftir árás-
ina. Ástæðan var sjúkleg afbrýði-
semi. Lögreglumaður, sem bar vitni
fyrir Héraðsdómi Vesturlands, taldi
að Ólafur hefði skotið að konu sinni
af afar stuttu færi. Hún slasaðist ekki
alvarlega við árásina.
Nakinn með haglabyssu
Samkvæmt dómsorði var að-
dragandi árásarinnar nokkuð lang-
ur. Ólafur var orðinn sjúklega af-
brýðisamur vegna konu sinnar en
hjónaband þeirra stóð á brauðfót-
um. Þegar Ólafur kom heim þetta
kvöld sakaði hann konu sína um að
hafa verið honum ótrú en það mun
ekki hafa verið í fyrsta sinn sem
hann gerir það. Ólafur fór í bað á
meðan kona hans lá í rúminu. Þau
rifust á meðan. Eftir nokkur orða-
skipti fékk kona Ólafs nóg og sagð-
ist ætla að fara frá honum. Hann
brást illa við, fór upp úr baðinu og
niður í kjallara þar sem haglabyssa
af gerðinni Winchester var geymd.
Hann hlóð byssuna og kom aftur
upp, nakinn.
Ógnar konu sinni
Frásögn Ólafs skarast nokkuð
á við frásögn konu hans um fram-
hald málsins. Hún hélt því fram að
hann hefði ógnað henni með hagla-
byssunni inni á baðherberginu. Þá
skellti hún baðherbergishurðinni
með þeim afleiðingum að hann
lamdi í hurðina og braut. Hann var
þó sýknaður af því að hafa ógnað
henni með byssunni í baðherberg-
inu. Það þótti þó ljóst að hún opn-
aði dyrnar aftur. Þá á Ólafur að hafa
runnið til í bleytu sem var á gólfinu
og tókst henni þá að hlaupa und-
an honum. Hann fylgdi henni eftir,
með haglabyssuna, þar til þau komu
niður í forstofu hússins.
Skotið af stuttu færi
Þar reyndi hann að telja henni
henni hughvarf um að fara frá hon-
um. Hún lét þó ekki sannfærast
og ætlaði að forða sér út. Þá skaut
hann að henni með þeim afleið-
ingum að hún hlaut tvær skrámur
á andliti og fóru högl í hægri öxlina
á henni. Samkvæmt vitnisburði lög-
reglumanns taldi hann að skotfærið
hefði verið afar stuttt eða um fimm-
tíu sentímetrar. Hluti af höglunum
endaði í barnastól og í vegg. Kona
Ólafs komst út og elti hann hana.
Hún komst til nágranna sinna þar
sem hringt var á lögregluna.
Ofurölvi með haglara
Lögreglan mætti á vettvang um
miðnætti. Sérsveitin kom einnig og
reyndi hún að tala manninn til. Að
lokum gaf hann sig fram, alklædd-
ur. Þegar blóðprufa var tekin af hon-
um kom í ljós að hann var ofurölvi.
Hann hafði drukkið bjór og rauðvín
um kvöldið. Hann var hnepptur í
gæsluvarðhald í kjölfarið en sá tími
mun dragast frá dómnum sem hann
hlaut í gær.
Honum er gert að greiða konu
sinni milljón í skaðabætur. Bóta-
kröfu sonar hans var vísað frá en
hann kom að heimilinu á meðan
umsátrið stóð yfir. Ekki náðist í lög-
fræðing Ólafs og ekki er ljóst hvort
Ólafur muni áfrýja dómnum. Hann
situr enn í fangelsi.
Hnífsdælingurinn Ólafur Þór Guðmundsson var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fang-
elsi í Héraðsdómi Vestfjarða í gær. Hann skaut að konu sinni nakinn með haglabyssu og
hlaut hún skrámur á andliti og öxl. Ólafur var dæmdur fyrir tilraun til manndráps en
ástæða árásarinnar var sjúkleg afbrýðisemi.
valur GrettiSSON
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Ólafur handtekinn
Hnífsdælingurinn
Ólafur Þór guðmunds-
son var dæmdur fyrir
tilraun til manndráps
þegar hann skaut að
konu sinni kviknakinn.
Þá fer hann úr bað-
inu og niður í kjallara
þar sem haglabyssa af
gerðinni Winchester
var geymd. Hann hleð-
ur byssuna og kemur
aftur upp, nakinn.
Að jafnaði slasast 35 manns í umferðinni í vikunni sem senn er á enda:
Mikil umferð og falskt öryggi
Vikan sem nú er að líða er hættu-
legasta vikan í umferðinni, en þá
slasast að jafnaði 35 manns. Það er
slysaskráning Umferðarstofu sem
vinnur þessar upplýsingar upp úr
lögregluskýrslum síðastliðinna ára.
„Það sem þarna hefur áhrif er að
umferðin er mjög mikil á vegum
landsins auk þess sem ekki er hægt
að útiloka að fólk grípi eitthvert
falskt öryggi þegar aðstæður eru
góðar eins og nú,“ segir Einar Magn-
ús Magnússon, upplýsingafulltrúi
hjá Umferðarstofu.
Einar bendir á að jafnvel þótt það
komi fólki nokkuð á óvart að fleiri
slys verði í umferðinni yfir sumar-
tímann, hafi tölfræði síðustu ára
mjög eindregið gefið þetta til kynna.
„Fólk setur gjarnan umferðarslys í
samhengi við slæm veður og hálku
á vetrum, en þessar tölur eru alveg
skýrar, enda þótt einhver dagamun-
ur geti verið á milli ára,“ segir Einar.
Næsthættulegasta vika ársins er
að jafnaði vika 52, eða vikan fyrir
jól. „Það er einmitt gríðarlega mikil
umferð sem einkennir þá viku,“ seg-
ir Einar. Þriðja hættulegasta vikan í
umferðinni er síðan fyrsta vika júlí-
mánaðar, en hún einkennist einmitt
af miklum ferðalögum innanlands.
Hættulegasti dagur ársins í um-
ferðinni er 21. júlí, en þá slasast að
jafnaði yfir átta einstaklingar. Aðr-
ir hættulegir dagar dreifast nokkuð
yfir árið en eru gjarnan að hausti eða
vori.
Öruggustu vikur ársins eru vik-
ur númer fimm, átta og níu, allar í
febrúar. Þá slasast á bilinu sextán
til átján einstaklingar í umferðinni
í viku hverri. Síðasta vikan í júní er
einnig nokkuð örugg, en þá slasast
rétt rúmlega átján manns. Meðal-
fjöldi þeirra sem slasast í viku hverri
er 24,2.
Tölurnar sem teknar eru saman
ná rétt tæp fimm ár aftur í tímann,
aftur til ársins 2002. sigtryggur@dv.is
umferðarslys í vetrarfærð Margir tengja umferðar-
slys við válynd veður og þunga vetrarfærð. tölur sem
umferðarstofa hefur tekið saman leiða samt í ljós að
þessi vika er hættulegasta vikan í umferðinni.
Ökklabrotnaði í
hvalaskoðun
Þýsk kona um sextugt ökkla-
brotnaði í gær þegar hún var
ásamt fleiri ferðamönnum í
hvalaskoðun á Snæfellsnesi.
Konan var í bátnum Brimrúnu
sem var staddur rétt vestan af
Öndverðarnesi þegar slysið átti
sér stað. Varð uppi fótur og fit
þegar hvalir birtust og skrikaði
konunni fótur með fyrrgreindum
afleiðingum. Að sögn lögregl-
unnar í Ólafsvík var konan flutt
til skoðunar á Heilsugæslustöð-
ina í Ólafsvík. Seinna í gær var þó
ákveðið að flytja hana til Reykja-
víkur til að fara í aðgerð.
Brenndust
í gasslysi
Fjórar konur brenndust í
gasslysi á eyðibýli innarlega
í Fnjóskadal í gær. Konurnar
voru í tuttugu kvenna hópi í
hestaferð þegar slysið varð.
Þær áðu á eyðibýlinu þar sem
einungis er lýst upp með gasi
og kertaljósi.
Illa gekk að kveikja á gas-
lukt og losuðu þær því lukt-
ina af gaskútnum en ekki
vildi betur til en gas lak úr
kútnum. Fát kom á konurn-
ar með þeim afleiðingum að
gasið komst í kertaloga og
stór blossi fyllti nærri sextán
fermetra herbergið. Þær voru
fluttar á sjúkrahús á Akur-
eyri og í ljós kom að þrjár
hlutu eins stigs brunasár en
ein þeirra brenndist meira og
voru sár hennar talin eins til
annars stigs brunasár.
Bónus styrkir
Björgina
Bónus hefur ákveðið að veita
Björginni, athvarfi fyrir fólk með
geðraskanir,
fimm hundruð
þúsund krónur
að gjöf í tilefni
þess að breyt-
ingum og fram-
kvæmdum á
Bónusverslun í
Njarðvík er lokið.
Jóhannes Jóns-
son afhenti Ragnheiði Sif Björg-
vinsdóttur styrkinn í gær.
Framkvæmdastjóri Bónuss,
Guðmundur Marteinsson, er
ánægður með breytingarnar á
versluninni, sem stækkað hefur
um 350 fermetra. „Þetta eru kær-
komnar breytingar,“ segir hann.
Kveiktu
í bílaplani
Unglingar eru grun-
aðir um að hafa
kveikt eld á bíla-
plani fyrir framan
bílskúr í Funalind
í Kópavogi um há-
degisbilið í gær. Talið
er að bensín eða annað
eldfimt efni hafi verið notað til
að kveikja eldinn. Lögregla og
slökkvilið voru kvödd á stað-
inn en þá hafði eldurinn náð
að læsa sig í bíl sem stóð þar
skammt frá og hafði að auki
borist yfir í bílskúrinn. Eldur-
inn var þó að mestu slökktur
þegar slökkviliðið kom á stað-
inn svo það gekk úr skugga um
að hvergi lifði glóð.