Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Qupperneq 6
föstudagur 27. júlí 20076 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Einar Bárðarson segist hafa gert margvísleg mistök í tónlistarútgerð sinni í Bretlandi.
Áhættusjóðurinn Tónvís hefur lagt út í miklar fjárfestingar í útgáfufyrirtæki Einars,
Believer Music. Tryggvi Jónsson hjá Tónvís kveðst meðvitaður um áhættuna sem
felst í tónlistarútgáfu. Hann bindur miklar vonir við Garðar Thor Cortes.
„Ég mun aldrei neita því að þetta
er oft mjög þungur róður og ég hef
gert ýmis mistök sem ég hef þurft
að sætta mig við og læra af,“ segir
Einar Bárðarson útgefandi um þau
átök sem fylgja því að reka lítið út-
gáfufyrirtæki í Bretlandi.
Hann segir að útgáfa og mark-
aðsstarf á tónlist Garðars Cort-
es og Nylon-stúlknahópsins kosti
bæði mikið fé og mikla vinnu. Sjálf-
ur sé hann enginn sérfræðingur í
breskum tónlistarmarkaði og því
hafi hann þurft að læra margt. „Ef
við hefðum náð útgáfusamningi
við breskt fyrirtæki á sínum tíma,
þá hefðum við ekki þurft að stofna
útgáfufyrirtæki og hefðum þar af
leiðandi aldrei þurft að fá fjárfesta
til liðs við okkur til þess að styrkja
peningahliðina,“ segir Einar.
Áhættufjárfesting í tónlist
Fjárfestingarsjóðurinn Tónvís
er helmingshluthafi í útgáfufyrir-
tæki Einars, Believer Music. Sjóð-
urinn er í eigu FL Group og er stýrt
af Tryggva Jónssyni endurskoð-
anda. Stofnfé sjóðsins er 200 millj-
ónir króna og hefur stærstum hluta
hans verið varið til mögulegra land-
vinninga Einars Bárðarsonar.
Tryggvi segir að sjóðnum sé ætl-
að að leggja út í áhættufjármögnun
með þolinmæði fremur en að reka
hann eins og hefðbundið fyrirtæki.
„Þetta eru fjárfestingar, ekki styrkir,
þannig að menn gera sér vel grein
fyrir áhættunni sem í þessu liggur.
Það eru margir kallaðir og fáir út-
valdir, en við reynum að leggja upp
með að leggja fé í nokkur verkefni.
Það þarf svo væntanlega ekki nema
einn þessara aðila að ná góðum
árangri til þess að áhættan sé þess
virði að halda áfram,“ segir Tryggvi.
Hann bætir við að öll verkefnin séu
í dýrari kantinum.
Góðar fréttir eru mikilvægar
Einar tekur undir þetta með
Tryggva. „Fjárfestarnir fara út í
þetta, vitandi að þeir eru að taka
áhættu, en hafa að sjálfsögðu næga
trú á verkefninu til þess að halda
áfram,“ segir hann.
Hann segist hafa nálgast fjárfest-
ana með ákveðnar hugmyndir og
þeir hafi einfaldlega séð möguleika
í þessum verkefnum. „Auðvitað hef
ég tekið þann pól í hæðina að kynna
starfsemina vel hérna heima,“ seg-
ir Einar. Hann segist að sjálfsögðu
senda út tilkynningu þegar Garðar
Cortes nær fyrsta sæti á vinsælda-
lista á Englandi. Hins vegar tilkynni
hann ekki sérstaklega þegar Garðar
fellur út af sama lista.
„Vissulega hafa ýmsir farið þá
leið að gera svona vinnu nánast í
kyrrþey. Hins vegar eru listamenn-
irnir okkar allir þekktar persónur
á Íslandi og fjölmiðlaumfjöllun er
bara ein hliðin á þessum iðnaði.“
Betur heima setið
Einar segist fylgjast með um-
ræðu á Íslandi um verkefni sín, en
hann geti þó ekki sveiflast eins og
fáni eftir skoðunum fólks. „Fólk
hefur alls kyns skoðanir á því hvort
þetta ætti að ganga hraðar eða hæg-
ar hjá okkur og sú umræða heldur
alltaf áfram,“ segir Einar.
Hann segir aðalatriðið vera að
hugsa þetta starf til langframa og
bendir á þrotlaust starf
Magnúsar Scheving
með Latabæ, ritstörf
Ólafs Jóhanns Ólafs-
sonar og kvikmynda-
framleiðslu Baltasars
Kormáks.
„Hins vegar hugsa
ég stundum um það
á kvöldin hvers vegna
í ósköpunum ég fór
út í þetta á meðan
ég hefði getað tek-
ið því bara rólega og
setið og skammast
í krökkunum í X-
Factor heima á Ís-
landi,“ segir Einar
Bárðarson.
ÞUNGUR RÓÐUR
SiGTryGGur Ari JóhAnnSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
„ég hugsa stundum
um það hvers vegna
í ósköpunum ég fór
út í þetta á meðan
ég hefði getað set-
ið og skammast í
krökkunum í
X-Factor heima
á Íslandi.“
Believer Music Einar Bárðarson rekur útgáfufyrirtækið Believer
Music í Bretlandi. Hann segir að oft líti út fyrir að við ofurefli sé að
etja á breskum markaði og mörg mistök hafi verið gerð. Bæði hann
og fjárfestarnir hafi þó mikla trú á listamönnum fyrirtækisins.
Garðar Thor Cortes garðar
hefur notið mikillar velgengni
á íslandi. lag með garðari
rataði um hríð í efsta sæti á vin-
sældalista í Bretlandi. Bæði
Einar Bárðarson og tryggvi
jónsson binda miklar vonir við
velgengni garðars erlendis.
Tryggvi Jónsson tryggvi
stýrir fjárfestingarsjóðnum
tónvís sem er í eigu fl group.
segir hann markmið sjóðsins
vera að leggja fé til nokkurra
verkefna með það fyrir augum
að eitt þeirra komi til með að
skila tekjum.
Orðnir sautján
þúsund
Sautján þús-
undasti Akur-
eyringurinn
fæddist í byrjun
júlí á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á
Akureyri. Það var
fallegur drengur
sem kom í heim-
inn og hefur hann fengið nafnið
Gabríel Óskar Dziubinski.
Foreldrar Gabríels Óskars eru
hjónin Krzysztof Dziubinski og
Beatu Mieczyslawa Dziubinska
en þau eiga þrjú börn fyrir. Af
þessu tilefni færði bæjarstjórinn
á Akureyri, Sigrún Björk Jakobs-
dóttir, fjölskyldunni glæsilegan
blómvönd og bókina „Barn-
ið okkar“ í stuttri heimsókn til
þeirra í Smárahlíðina. Fjölskyld-
an hefur búið á Akureyri frá því í
febrúar árið 2004.
Árekstur og
gaskút stolið
Árekstur varð á Hafnargötu
á móts við söluturninn Ný
Ung í Keflavík á þriðjudags-
kvöldið. Bifreið var ekið aftan
á aðra bifreið, sem síðan kast-
aðist á þá þriðju. Þrír hlutu
minniháttar meiðsli. Tjón á
bifreiðunum var lítið. Sama
kvöld var 10 kílóa gaskút stolið
af fellihýsi, en það stóð fyrir
utan heimili í Njarðvík. Þá var
ökumaður stöðvaður fyrir of
hraðan akstur, en hann mæld-
ist á 95 kílómetra hraða þar
sem leyfður hámarkshraði er
70 kílómetrar.
Á nagladekkjum
Piltur um tvítugt
var tekinn á 110 kíló-
metra hraða í Graf-
arvogi á miðviku-
dagskvöld. Sami
piltur var staðinn
að hraðakstri ann-
ars staðar í Reykja-
vík kvöldinu áður og
var hann því sviptur
ökuleyfi á staðnum. Sautj-
án ára stúlka var einnig svipt
ökuleyfi á staðnum eftir að hafa
ekið á 64 kílómetra hraða í íbúð-
argötu í Kópavogi. Tvær konur á
fertugsaldri voru teknar fyrir ölv-
unarkstur í Reykjavík á miðviku-
dag. Þá var kona á þrítugsaldri
stöðvuð fyrir að aka bæði of hratt
og á bíl búnum nagladekkjum.