Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Blaðsíða 11
DV Helgarblað föstudagur 27. júlí 2007 11
BJARGVÆTTURINN
FRÁ FLATEYRI
Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður var far-
sæll í opinberum störfum og verk hans höfðu mikil
áhrif á samfélagið. Þjóðarsáttina ber hæst allra verka
hans.
Einar var fyrst kjörinn á þing árið 1995 en þá hafði
hann gegnt fjölda ábyrgðarstarfa og er aðkoma hans
að þjóðarsáttarsamningunum árið 1990, þegar hann
var formaður Vinnuveitendasambands Íslands, það
sem margir telja standa upp úr á viðburðaríkum ferli
hans. Viðmælendur DV sem komu að samningunum
segja persónu Einars Odds hafa ráðið miklu í samn-
ingaviðræðunum enda hafi hann mætt öllum af virð-
ingu og aldrei talað niður til neins. Öllum ber saman
um að hann hafi átt auðvelt með að nálgast fólk og
að hann hafi strax notið fyllsta trausts og staðið und-
ir því.
Víxlverkanir voru við það að leggja efnahag lands-
ins í rúst enda þjóðin föst í vítahring launahækk-
ana, gengisfellinga, óðaverðbólgu og verðhækkana.
Ævisparnaður fólks varð að engu og lán voru gjöf.
Atvinnuöryggið var í mikilli hættu og inn í þurfti að
grípa áður en virkilega illa færi. Einar Oddur talaði
fyrir nýjum aðferðum til að vinna bug á ástandinu og
lét ekkert stoppa sig heldur hélt ótrauður áfram. Ein-
ar Oddur og aðrir forystumenn á þessum tíma komu
efnahag þjóðarinnar til nútímans.
Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður verður
jarðsunginn frá Flateyrarkirkju á morgun, laugardag-
inn 28. júlí. Hundruð manna voru við minningar- og
kveðjuathöfn um Einar Odd í Hallgrímskirkju á mið-
vikudag. Einar varð bráðkvaddur í fjallgöngu á Kald-
bak á Vestfjörðum 14. júlí síðastliðinn þar sem hann
var á göngu með hópi fólks.
Illugi Gunnarsson alþingismaður, tengdasonur
Einars Odds og vinur, fylgdist með atburðarás Þjóð-
arsáttarinnar. Hann segir Einar Odd ekki hafa verið
þeirrar gerðar að þylja upp þessi verk sín og hafi því
ekki dvalið mikið við það. „Hann hafði hugann meira
við þau verkefni sem voru fyrir framan hann hverju
sinni,“ segir Illugi.
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, Haukur Halldórs-
son, formaður Bændasamtakanna, og Einar Oddur
Kristjánsson, formaður VSÍ Þjóðarsátt varð að veruleika
og þora margir ekki að fullyrða að hún hefði orðið að
veruleika ef Einars Odds hefði ekki notið við.
Framhald á
næstu opnu