Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Blaðsíða 15
DV Helgarblað Föstudagur 27. júlí 2007 15
hinir nýju landvættir íslands
„Ég tel fíkniefni vera okkar allra helstu ógn. Þar eru
hörðustu efnin hættulegust og rugla margt í okkar þjóð-
arsál,“ segir Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Að sama skapi finnst Árna óþarflega mikið gert úr hryðju-
verkaógninni og gefur hann ekki mikið fyrir þær áherslur
sem lögregluyfirvöld hafa í þeim efnum.
Árni telur að taka þurfi á vímuefnavandanum af festu
og stokka upp þær aðferðir sem notaðar eru í baráttunni
nú. „Því miður hefur reynslan sýnt að milliliðirnir eru
hankaðir en ekki upphafsmennirnir,“ segir Árni. Hann
bendir á að háar fjárhæðir fari í fíkniefni, áfengi og reyk-
ingar því fleiri hundruð sjúkrarúm séu bundin vegna
þessa.
Árni segir of mikla áherslu lagða á hryðjuverkaógn-
ina sem sé langt í frá í takt við íslenskt samfélag þótt auð-
vitað þurfi að fylgjast með því sem gerist í hinum stóra
heimi. „Þróunin er of mikil í átt að lögregluríki, bæði hjá
lögregluyfirvöldum og öðrum stofnunum sem sinna eft-
irlitshlutverkum í sífellt meira mæli. Of mikið eftirlit er
þrúgandi fyrir fólk og hefur áhrif á leikgleði og lífsstíl. Það
þarf að treysta fólki meira og fara ekki offari eins og virð-
ist vera krónísk veila í hugsun þeirra í eftirlitsgeiranum,“
segir Árni. Hann minnir á að ekki eigi alltaf það sama við
um Ísland og önnur lönd þar sem hér búi aðeins þrjú
hundruð þúsund manns. Eins segir hann að ef ekki verði
slakað á eftirlitinu sé hætta á að fólk flýi land til þess að
geta horfið í fjöldann í fjölmennum löndum.
Árni telur það einnig ógna þjóðinni að við Íslending-
ar séum fordekraðir og metum því ekki alltaf gildi og að-
stæður sem við höfum hér sem skyldi. Vandi sé að halda
sjó í góðæri þótt fólk í yngri kantinum þekki ekki annað
og telji núverandi efnahagsástand sjálfsagt. hrs@dv.is
Árni Johnsen telur of mikið gert úr hryðjuverkaógninni:
FÍKNIEFNI HELSTA ÓGNIN
Árni Johnsen Árni segir ofríki
lögreglu geta valdið því að fólk flýi
land til að geta horfið í fjöldann
annars staðar.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra:
ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF TRYGGI FRIÐ
Hvað er lögð mest
áhersla á í sambandi
við varnir landsins?
„Ekkert bendir til þess
að reyna muni á land-
varnir í þeim skilningi, að
verið sé að undirbúa árás
á Ísland frekar en nokkurt
annað land í okkar heims-
hluta. Öryggisgæsla byggist
á því að vernda borgarana
gegn annars konar ógn og í
því sambandi er nauðsynlegt
að líta meðal annars til skipu-
lagðrar glæpastarfsemi, hvort
sem hún er innlend eða alþjóð-
leg.“
Hversu vel erum við varin?
„Landvarnir eru hernaðarlegs
eðlis og um þær höfum við varnar-
samning við Bandaríkin, öflugasta
herveldi heims, og samkomulag
við nágrannaþjóðir. Við ráðum ekki
yfir eigin herafla og verðum því að
treysta á aðra í því efni. Á hinn bóg-
inn höfum við markvisst unnið að
því að efla innlendar, borgaralegar
stofnanir, sem sinna öryggisgæslu
og á það bæði við um lögreglu og
landhelgisgæslu.“
Hver er mikilvægasti hlekkur-
inn í alþjóðlegu samstarfi?
„Alþjóðlegt samstarf er mikil-
vægt til að tryggja frið með góðu
samkomulagi milli ríkja og við eig-
um að leggja okkar af mörkum inn-
an þeirra samtaka þar sem við erum
og þar skiptir Atlantshafsbanda-
lagið (NATO) enn mestu máli. Al-
þjóðlegt samstarf lögreglu og land-
helgisgæslu vex jafnt og þétt. Í því
sambandi skiptir Schengen-sam-
starfið miklu, einkum fyrir landa-
mæravörslu.“
Hver er helsta ógnin? Hverju
þarf helst að verjast?
„Ísland er aðili að alþjóðasamn-
ingum um flugvernd og siglinga-
vernd og gripið hefur verið til örygg-
isráðstafana í samræmi við hættumat
á grundvelli þeirra og skuldbinding-
ar. Mestu skiptir að greina hættu af
skipulagðri glæpastarfsemi og al-
þjóðlegum tengslum hennar.“
Hvar er mesta eftirlitið?
„Mesta eftirlitið er á Keflavíkur-
flugvelli. Landamæravörslu hér
hefur aldrei verið hagað þannig að
haldið sé úti stöðugri gæslu á hverju
annesi, tækni til eftirlits með skipa-
ferðum hefur stóreflst og endurnýj-
un á skipa- og flugvélakosti Land-
helgisgæslunnar eykur getu á þessu
sviði.“
Getur flugvél lent á landinu án
þess að nokkur viti af því?
„Svo á ekki að vera – en hafi menn
þann ásetning að fara á svig við eft-
irlitskerfi eru dæmi um ótrúlegustu
atvik, til dæmis í Moskvu og Wash-
ington.“
Við hvaða hafnir er mesta
eftirlitið og af hverju?
„Við þær hafnir, þar sem ferðir til
og frá landinu eru tíðastar.“
„Ég tel skipulagða glæpastarfsemi með eit-
urlyfjum og peningaþvætti vera helstu ógnina
í okkar samfélagi í dag,“ segir Jóhann R. Bene-
diktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum. Eins
segir Jóhann að við Íslendingar þurfum að
halda vöku okkar um öfgastefnur sem hlaðið
hafa utan á sig í hinum vestræna heimi.
Hætta af öfgahópum fer vaxandi
„Öfgastefnum er að vaxa fiskur um hrygg og
þar er aðallega um að ræða trúarofstæki sem
tengist íslömskum öfgahópum en nátengdir
því eru umhverfisöfgamenn sem eru einn hóp-
urinn sem sífellt verður ofstækisfyllri,“ segir Jó-
hann. Hryðjuverk sem svo eru ýktasta formið
af öfgastefnum eru í allnokkurri fjarlægð frá
Íslandi ennþá en að mati Jóhanns breytir það
ekki því að öfgastefnur hafa fengið aukinn byr
í nágrannalöndum okkar eins og Danmörku
og Noregi. „Það þýðir ekki að berja höfðinu við
steininn og halda því fram að eitthvað þessu
líkt geti ekki gerst hér á landi því ef það er til
staðar í nágrannalöndum okkar og fer vaxandi,
verðum við að taka því alvarlega og undirbúa
okkur í samræmi við það.“
Vill fleiri lögreglumenn og tollverði
Jóhann segir íslenska öryggiskerfið hafa
eflst á síðustu árum og telur hann að brotthvarf
varnarliðsins hafi haft jákvæð áhrif í þeim efn-
um. Vitund almennings og stjórnmálamanna
um að hér þurfi að gera betur hafi vaxið til
muna og það sjáist til dæmis á stærri sérsveit
lögreglunnar og betri Landhelgisgæslu. Þá
segir Jóhann lögreglumenn vera betur mennt-
aða en áður auk þess sem fjarskipti og búnað-
ur hafi tekið stakkaskiptum til hins betra. Þrátt
fyrir þær betrumbætur sem gerðar hafa verið
telur Jóhann að enn þurfi að gera betur, eins og
að fjölga lögreglumönnum og tollvörðum.
„Ég hef ítrekað kallað opinberlega eftir því
að íslenska lögreglan fái hliðstæðar heimild-
ir og öryggislögregla hefur í nágrannalöndum
okkar. Þannig væri hægt að rannsaka meinta
brotamenn án þess að sýna fram á jafnsterkan
grun um brot og nú er. Þetta tel ég okkar helsta
veikleika,“ segir Jóhann. Jákvætt, fyrir utan
góða þróun í löggæslumálum, segir Jóhann
vera að stuðningur almennings og stjórnmála-
manna hafi farið vaxandi. „Kraftur og áhugi
Björns Bjarnasonar er mjög stór þáttur í þeirri
uppbyggingu sem orðið hefur hér á landi.“
Lítil án alþjóðasamstarfs
Jóhann telur það alþjóðasamstarf sem Ís-
land er í vera ómetanlegt þar sem fámennt
ríki eins og okkar megi sín lítils nema í öflugu
samstarfi. Hver eining sem yfirvöld hér á landi
starfa með styður aðra og eru allar til mik-
ils gagns. Hvort sem um er að ræða alþjóðleg
lögregluyfirvöld eða samstarf við flugvelli eins
og Kastrup, Heathrow og Schiphol, því glæpir
virði ekki landamæri heldur þefi uppi veikasta
hlekkinn.
Mesta eftirlitið þarf að vera í kringum Kefla-
víkurflugvöll að mati Jóhanns enda er mesta
umferðin þar um. Að komast óséður inn í ís-
lenska lofthelgi telur Jóhann mjög erfitt þar
sem sá varnarviðbúnaður sem notaður er hér
er mjög öflugur. hrs@dv.is
Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir skipulagða glæpa-
starfsemi vera mestu ógn Íslands.
EiturlYF, PEninGaÞvætti
OG ÖFGahÓPar MEsta ÓGnin
Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum jóhann segir að ísland mætti sín lítils ef
það væri ekki í alþjóðlegu samstarfi.