Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Síða 16
Föstudagur 27. júlí 200716 Helgarblað DV
„Fyrir utan þessa efnahagslegu þætti
er stór þáttur í þessari þróun breyt-
ingar á fjölskylduhögum fólks. Fólks-
fjölgun hefur einnig verið mikil á
þessu tímabili og streymi af erlendu
vinnuafli verið umtalsvert. Á und-
anförnum tíu árum hefur skilnaðar-
tíðni aukist sem leiðir til þess að hver
og einn þarf fleiri fermetra en áður.
Stærsta hlutann má þó skýra með
fólksfjölgun og streymi af erlendu
vinnuafli til landsins,“ segir Ingólfur
Bender, forstöðumaður greiningar-
deildar Glitnis.
Fasteignaverð hefur hækkað jafnt
og þétt á undanförnum tíu árum.
Þannig hefur verð á fermetra í 70 til
90 fermetra fjölbýli tvöfaldast frá ár-
inu 1997, miðað við verðlag dagsins í
dag, á meðan verð á fermetra í 210 til
230 fermetra einbýlishúsi hefur tæp-
lega þrefaldast í verði.
Aukinn kaupmáttur
Ingólfur segir að hinn hluti skýr-
ingarinnar sé aukinn kaupmáttur
sem hefur aukist gríðarlega á und-
anförnum árum. „Fólk hefur einnig
mikið betra aðgengi að fjármagni en
fyrir tíu árum. Hlutdeild bankanna í
bættu aðgengi að lánsfé er mikil og
hafa langtímavextir lækkað umtals-
vert. Það leiðir til þess að fólk treystir
sér betur til að fjármagna kaup með
lánum.“
Eignarverð Íslendinga hefur
hækkað á þessum tíu árum og segir
Ingólfur að þar sé ekki einungis um
að ræða hækkun á húsnæðisverði.
„Eign í hlutabréfum hefur aukist og
fólk hefur fjárfest með góðum ár-
angri í slíkum bréfum. Það verður til
þess að það eru fleiri sem eiga tölu-
vert mikið fjármagn.“ Miklar fram-
kvæmdir standa yfir við höfnina í
Reykjavík þar sem stórt hótel og óp-
eruhús munu meðal annars rísa.
Einnig hefur stór fyrirtækjakjarni
myndast í Borgartúni þar sem fjár-
málafyrirtæki hafa verið að skjóta
upp kollinum. Þessi kjarnamynd-
un gerir það að verkum að ákveðin
svæði í miðborginni verða eftirsókn-
arverðari sem verður til þess að verð
hækkar hlutfallslega meira á íbúðum
í nágrenninu en í öðrum hverfum.
Breytingar á efnahagslífinu
Ingólfur segir að íslenskt efna-
hagslíf hafi verið að markaðsvæðast
og nýjar greinar hafi sprottið upp sem
ekki hafi verið til staðar áður. Þessar
greinar hafi gefið vel af sér til þjóð-
félagsins. „Þessar greinar hafa byggst
upp á höfuðborgarsvæðinu þar sem
verðhækkanirnar hafa verið hvað
mestar. Það sem mestu máli skiptir í
þessari verðhækkun er þessar breyt-
ingar sem orðið hafa á íslensku efna-
hagslífi. Má þar nefna miklar fjárfest-
ingar sem ráðist hefur verið í eins og
stóriðjur sem hafa kallað á innflutn-
ing á erlendu vinnuafli.“
Aðspurður hvort yfirvofandi
framkvæmdalok á Kárahnjúkum
muni hafa áhrif á þróun fasteigna-
verðs segir Ingólfur að þau verði
ekki mikil. „Þau munu hafa einhver
áhrif. Þessi hópur er samt mjög stað-
bundinn á Austurlandi og aðallega á
Kárahnjúkum. Það er samt líklegt að
þegar þessum framkvæmdum lýkur
munu einhverjar leiðréttingar eiga
sér stað á húsnæðisverði.“
Íbúðaverð mun hækka
Ingólfur segist búast við því að
húsnæðisverð á landinu öllu komi
til með að hækka áfram. „Við mun-
um halda áfram að sjá hækkanir á
næstu mánuðum en svo er líklegt að
það verði stöðnun á nafnvirði. Við
gerum ekki ráð fyrir að það muni
lækka neitt næsta árið hið minnsta.
Verð gæti lækkað að einhverju leyti
Húsnæðisverð mun Hækka áfram
Fermetraverð á íbúð í fjölbýli hefur tvöfaldast á síðustu tíu árum
á meðan fermetraverð í einbýli hefur tæplega þrefaldast. Ingólf-
ur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, segir að
íbúðaverð muni halda áfram að hækka. Hann segir breytingum á
fjölskylduhögum og aukinni fólksfjölgun vera um að kenna. Einn-
ig spili breytingar á efnahagslegum þáttum stórt hlutverk.
EInAr þór sIgurðsson
blaðamaður skrifar: einar@dv.is
Ingólfur Bender segir að verð muni líklega halda áfram að hækka á næstu
mánuðum. Hann segir að breytingar á fjölskylduhögum og aukinn kaupmáttur spili
inn í þróun fasteignaverðs.
100 þús.
1997 1999 2001 2003 2005 2007 1997 1999 2001 2003 2005 2007
150 þús.
200 þús.
250 þús.
FERMETRAVERÐ Í FJÖLBÝLI
70 TIL 90 FERMETRA ÍBÚÐIR - 1997-2007
FERMETRAVERÐ EINBÝLISHÚSA
210 TIL 270 FERMETRA EINBÝLISHÚS- 1997-2007
50 þús.
100 þús.
150 þús.
200 þús.
250 þús.
Heimild: Fasteignamat ríkisinsHeimild: Fasteignamat ríkisins
100 þús.
1997 1999 2001 2003 2005 2007 1997 1999 2001 2003 2005 2007
150 þús.
200 þús.
250 þús.
FERMETRAVERÐ Í FJÖLBÝLI
70 TIL 90 FERMETRA ÍBÚÐIR - 1997-2007
FERMETRAVERÐ EINBÝLISHÚSA
210 TIL 270 FERMETRA EINBÝLISHÚS- 1997-2007
50 þús.
100 þús.
150 þús.
200 þús.
250 þús.
Heimild: Fasteignamat ríkisinsHeimild: Fasteignamat ríkisins