Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Síða 24
Föstudagur 27. júlí 200724 Hin hliðin DV
xxxxxx
HIN HLIÐIN
n Nafn og kyn
„Katrín júlíusdóttir, kona.“
n atvinna
„Ég er þingkona.“
n Hjúskaparstaða
„Ég er einhleyp.“
n Fjöldi barna
„Ég á einn 8 ára fótboltakappa
sem heitir Júlíus.“
n Áttu gæludýr?
„Ég hef fóstrað tvo páfagauka,
annar flaug að heiman og hinn var
étinn af ketti sem sat og sleikti á
sér loppurnar í fjaðrabeði þegar
ég kom heim einn daginn.
Kattarkvikindið kom síðan aftur
og aftur og hélt hann væri kominn
í fæði hjá mér. Ég flutti og hef ekki
lagt í að fóstra dýr síðan. Á þó
yndislegan „bróður“ hjá pabba
sem er íslenskur fjárhundur.“
n Ef þú værir bíll, hvaða bíltegund
vildirðu þá vera og hvers vegna?
„Úff, bíll segirðu... Helst vildi ég
vera bíll sem hefði engin áhrif á
umhverfið en væri samt kraftmik-
ill, smart og öruggur!“
n Hefurðu komist í kast við lögin?
„Nei, það held ég ekki. Hef frekar
fengið kast út af einkennilegum
lögum en komist í kast við þau.“
n Borðarðu þorramat?
„Ég var brjáluð í hrútspunga og
súrsaðan mat en eftir að ég hætti
að borða kjöt er ekki mikið eftir af
þorramatnum fyrir mig.“
n Hefurðu farið í megrun?
„Já, og það var ekki skemmtilegt,
varð fljótt svöng og sprakk því á
kúrnum. Betra að hreyfa sig bara
hraustlega og borða hollan mat.“
n græturðu yfir minningargreinum
um ókunnuga?
„Já.“
n Hefurðu tekið þátt í skipulögðum
mótmælum?
„Já, já, já og tekið þátt í skipulagn-
ingu nokkurra mótmæla t.d. gegn
komu Li Peng um árið.“
n lestu blogg?
„Já, tek blogglesturinn í skorpum.“
n trúirðu á framhaldslíf?
„Ég læt það koma mér skemmti-
lega á óvart.“
n Er líf á öðrum hnöttum?
„Vonandi!“
n Kanntu dónabrandara?
„Já, já.“
n Kanntu þjóðsönginn?
„Kann byrjunina en get raulað
með t.d. á landsleikjum.“
n Kanntu trúarjátninguna?
„Já, hana kann ég.“
n spilarðu á hljóðfæri?
„Nei, því miður.“
n styðurðu ríkisstjórnina?
„Já, að sjálfsögðu geri ég það og
veit að hún á eftir að verða farsæl
eftir doða undanfarinna ára.“
n Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Sonur minn er mikilvægastur í
mínu lífi ásamt hlátri og heiðar-
leika.“
n Hvaða fræga einstakling myndirðu
helst vilja hitta og af hverju?
„Ég myndi vilja hitta hina miklu og
sterku baráttukonu frelsis og
friðar frá Burma (Myanmar), Aung
San Suu Kyi.“
n Hefurðu eytt peningum í vitleysu -
þá hvaða?
„Úff já, ég hef eytt allt of miklum
peningum í allt of mikla vitleysu
sem væri allt of átakanlegt að rifja
upp hér.“
n Heldurðu með einhverju
íþróttafélagi?
„Við mæðgin erum miklir HK-
ingar þar sem Júlíus æfir fótbolta
af kappi. Ég held auk þess með
Manchester United, Kaiserslaut-
ern og Werder Bremen og þýska
landsliðinu líka auðvitað!“
n Hefurðu ort ljóð?
„Ég orti nokkur ævintýralega
slæm ljóð á viðkvæmum
unglingsárunum en hef látið það
vera síðan.“
n Eru fatafellur að þínu mati
listamenn?
„Nei.“
n Eru briddsspilarar að þínu mati
íþróttamenn?
„Já.“
n af hverju stafar mannkyninu mest
hætta?
„Hroka og fordómum.“
n Á að leyfa önnur vímuefni en
áfengi?
„Nei, alls ekki.“
n stundarðu íþróttir?
„Já, ég er alltaf á iði. Stunda rækt-
ina af kappi, fer út að hjóla, er að
læra reglurnar í skvassi, fer í
göngur og ætla t.d. að ganga úr
Landmannalaugum í Þórsmörk í
næstu viku en toppurinn á allri
hreyfingu finnst mér að komast á
skíði. Í vetur ætla ég líka að dusta
rykið af snjóbrettinu mínu og
rifja upp gamla takta.“
n Hefurðu látið spá fyrir þér?
„Já, þó nokkrum sinnum auk þess
sem ég þóttist á tímabili vera
nokkuð spúkí spákona sjálf - gríp
jafnvel í stokkinn ennþá á góðum
stundum.“
Katrín Júlíusdóttir
þingKona