Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Side 39
DV Helgarblað Föstudagur 27. júlí 2007 39
HVERNIG HEFUR ÞÚ
NÝTT GÓÐA VEÐRIÐ?
Bergþór Pálsson söngvari
Missti 9 kíló
„Ég var miklu meira úti en venjulega og
hreyfði mig mun meira. Ég hjólaði allt sem
ég fór og synti á hverjum degi. Áður en ég
vissi af var ég búinn að missa 9 kíló. Ég er
mjög ánægður með það. Þetta er búið að
vera dásamlegt sumar. Í vor tók ég forskot á
sæluna og skrapp til Spánar. Það er samt svo
skrítið að gott veður á Íslandi er miklu betra
en gott veður á Spáni. Ég veit ekki hvað það
er, en það er bara þannig.“
Linda Ásgeirsdóttir leikkona
Eltist ekki
við sólina
„Ég er búin að fara býsna mikið út á land
í sumar. Ég fór með syni mínum í Töfragarð-
inn á Stokkseyri og svo fór ég austur á firði.
Ég var að skemmta á Húnavöku á Blönduósi
eina helgi þar sem ég nýtti tímann með fjöl-
skyldunni líka. Ég skellti mér líka í Nauthól-
svíkina og sleikti sólina þar í sumar, þannig
að ég er búin að gera margt í góða veðrinu.
Ég reyni eins og ég get að draga fjölskylduna
með mér þangað sem ég er að skemmta. Slá
tvær flugur í einu höggi. Ég er samt ekkert
að eltast við sólina, það er gott ef hún kemur
en það er mér ekkert kappsmál.“
Sóley Tómasdóttir femínisti
Þrumur og elding-
ar í Hollandi
„Ég skellti mér til Hollands í þrjár vikur
og naut þess að vera í þrumum og eldingum
þar. Ég er bara nýkomin heim aftur. Annars
nýt ég þess að sitja í sólinni og góða veðr-
inu á Austurvelli, þar sem ég er núna. Mér
finnst best að vera þar. Ég hef ekki enn ferð-
ast innanlands í sumar en um helgina er ég
að fara í ferðalag um Suðurlandið. Það verð-
ur frábært.“
Inga Lind Karlsdóttir sjónvarpskona
Frábær ferð
um Vestfirði
„Ég er búin að ferðast víða um land í sum-
ar. Við fjölskyldan fórum bæði um Norður-
land og Suðurland. Hápunktur sumarsins var
samt ferðin sem við fórum um Vestfirði. Það
var alveg frábær upplifun og við vorum æð-
islega heppin með veður. Ég fór um Vestfirði
þegar ég var barn þannig að þetta var alveg
æðislegt. Við gistum í gömlu kennslustofunni
í Breiðavík, þar sem við fengum frábærar mót-
tökur. Gestgjafarnir voru allir af vilja gerðir til
að gera dvölina sem eftirminnilegasta og þetta
var æðislegt í alla staði. Við skoðuðum líka
Látrabjarg og alla þá stórbrotnu náttúru sem
Vestfirðir hafa upp á að bjóða. Nú erum við
komin heim í bili en ætlum að fara í laxveiði,
fyrst hann er farinn að láta á sér kræla. Þetta er
búið að vera æðislegt frí það sem af er.“
Veðurblíðan hefur leikið við þorra Íslendinga
það sem af er sumri. Margir eiga sumarfrí og
njóta þess að ferðast um landið, fara til út-
landa eða slaka á í bakgarðinum heima. Fólk
er eins misjafnt og það er margt. Aðrir hafa
þurft að vinna til að þjóðfélagið gangi eðli-
lega fyrir sig. Við ræddum við sjö valinkunna
Íslendinga og spurðum þá hvernig þeir hafa
notað góða veðrið í sumar.