Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Side 42
Föstudagur 27. júlí 200742 Helgarblað DV Verslunarmannahelgin Það er ýmislegt um að vera um verslunarmannahelgina og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. DV tók saman lista yfir helstu viðburðina þetta árið. FjölskylduFjörá ÚlFljótsvatni útilífsmiðstöð skáta á úlfljótsvatni verður opin almenningi um verslunarmannahelgi og er barnafjölskyldum sérstaklega bent á þá möguleika sem svæðið býður upp á. Á svæðinu er nú nýtt vatnasafarí þar sem börnin geta sullað í vatninu, bátaleiga er á staðnum, klifurturn, þrautabrautir, kassabílar og góð sundlaug í göngufjarlægð. sæludagar í vatnaskógi Þétt og vegleg fjölskyldudagskrá er í Vatnaskógi um verslunarmanna- helgina. Þar geta börnin meðal annars tekið þátt í hinum ýmsu íþróttaleikjum og hæfileikakeppni auk þess sem boðið verður upp á gospelnámskeið, kassabílarallí og fullorðinsfóbolta. Á laugardeginum verða tónleikar þar sem Pétur Ben og sigurður H. Ingimarsson peppa upp stemninguna. innipÚkinn í reykjavík Fyrir þá borgarbúa sem ekki nenna út úr bænum er Innipúkinn á sínum stað. Þær hljómsveitir sem hafa verið staðfestar eru Hudson Wayne, Hjaltalín, FM Belfast, Motion Boys, Mínus, jeff Who?, ghostigital, Fíber, Forgotten lores, stórsveit Nix Noltes, Bogomil Font ásamt Flís og steypa. Innipúkinn fer fram á nýja staðnum Organ sem er í portinu á bak við gaukinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.