Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2007, Qupperneq 42
Föstudagur 27. júlí 200742 Helgarblað DV
Verslunarmannahelgin
Það er ýmislegt um að vera um verslunarmannahelgina og ættu allir að finna
eitthvað við sitt hæfi. DV tók saman lista yfir helstu viðburðina þetta árið.
FjölskylduFjörá ÚlFljótsvatni
útilífsmiðstöð skáta á úlfljótsvatni verður opin almenningi um
verslunarmannahelgi og er barnafjölskyldum
sérstaklega bent á
þá möguleika sem
svæðið býður upp
á. Á svæðinu er nú
nýtt vatnasafarí
þar sem börnin
geta sullað í
vatninu, bátaleiga er
á staðnum, klifurturn,
þrautabrautir, kassabílar og góð sundlaug í göngufjarlægð.
sæludagar í vatnaskógi
Þétt og vegleg fjölskyldudagskrá er í
Vatnaskógi um verslunarmanna-
helgina. Þar geta börnin meðal
annars tekið þátt í hinum ýmsu
íþróttaleikjum og hæfileikakeppni
auk þess sem boðið verður upp á
gospelnámskeið, kassabílarallí og
fullorðinsfóbolta. Á laugardeginum
verða tónleikar þar sem Pétur Ben
og sigurður H. Ingimarsson peppa
upp stemninguna.
innipÚkinn í reykjavík
Fyrir þá borgarbúa sem ekki nenna út úr bænum er Innipúkinn á
sínum stað. Þær hljómsveitir sem hafa verið staðfestar eru Hudson
Wayne, Hjaltalín, FM Belfast, Motion Boys, Mínus, jeff Who?,
ghostigital, Fíber, Forgotten lores, stórsveit Nix Noltes, Bogomil Font
ásamt Flís og steypa. Innipúkinn fer fram á nýja staðnum Organ sem
er í portinu á bak við gaukinn.