Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Side 6

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Side 6
4 lækningar væru fólgnar í þremur aðal- starfsþáttum: 1. Greining og meðferð veikra barna á sjúkrahúsi. 2. Greining og meðferð veikra barna á heimilum sínum eða á stofu læknis. 3. Fyrirbyggjandi aðgerðir og félagsleg umönnun heilbrigðra barna. Menntun barnalæknis miðar ekki ein- vörðungu að því að gera hann færan um að lækna börn. Hlutverk hans er ekki síður að koma í veg fyrir sjúkdóma, slys og afleið- ingar þeirra. Fylgjast með vexti og þroska barnsins frá fæðingu til fullorðinsára, leið- rétta það sem úrskeiðis fer í umhirðu og uppeldi og bægja frá óhöppum eftir því sem mögulegt er. Raunar hefst þáttur barna- læknisins í umönnun barnsins áður en það fæðist í samvinnu við þá sem hafa eftirlit með verðandi móður. Hann er hafður með í ákvörðunartökum, t.d. um frekara fram- hald meðgöngu eða framköllun fæðingar við afbrigðilegar kringumstæður með hag barnsins í huga. Lífeðlis- og lífefnafræðileg viðbrögð barnsins eru önnur en hjá full- orðnum og barnalæknir verður að kunna skil þar á. Ýmiss konar ráðgjöf verður oft að veita í sambandi við arfgenga og lang- vinna sjúkdóma, sinna fötluðum börnum og þroskaheftum og vera til hjálpar við lausn hvers konar annarra vandamála, hvort sem þau eru af líkamlegum, geðrænum eða félagslegum toga spunnin. Um allt þetta snýst nám barnalæknisins og starfsþjálfun. Út frá hreint faglegu sjónarmiði verður að líta svo á, að börnum og unglingum, allt til fullorðinsára sé best séð fyrir læknis- fræðilegri þjónustu undir hans forræði og umsjá, en að sjálfsögðu með aðstoð annarra aðila í heilbrigðisþjónustunni eftir því sem við á hverju sinni. Hér á landi hefur heilbrigðisþjónustan utan sjúkrahúsa byggst á heimilislækna- kerfinu. Samhliða hafa svo sérfræðingar í ýmsum greinum veitt þjónustu á stofum sínum, en í mismunandi mæli, þar eð flest- ir þeirra hafa jafnframt gegnt fastri vinnu á sjúkrahúsum eða öðrum stofnunum, ann- aðhvort að hluta til eða í fullu starfi. Ekki hefur verið ætlast til þess að fólk leitaði til sérfræðinga nema að tilvísan heimilis- lækna, en sérfræðingar þó getað vísað hver til annars. Þar til nú alveg nýlega hefur þetta ákvæði verið eindregið enda þótt mikill hörgull hafi verið á heimilislæknum um margra ára skeið og fleiri þúsund manns verið heimilislæknislausir hér á Reykjavíkursvæðinu. Alla tíð hefur að ein- hverju marki verið fram hjá ákvæði þessu gengið, líka áður en heimilislæknaskortur- inn kom til sögunnar. Fólk hefur þá annað hvort orðið að greiða sérfræðingnum að fullu eða hann hefur fengið tilvisun eftir á frá heimilislækni. Gert hefur verið ráð fyrir að sérfræðingur skilaði heimilislækni skýrslu að rannsókn lokinni, en oft mun hafa verið misbrestur á, að það væri gert. Yfirleitt hefur ekki verið ætlast til að sér- fræðingar hefðu með höndum samfellda meðferð sjúklinga eða eftirlit. Áður fyrr tíðkaðist að sérfræðingar sinntu heimilislæknisstörfum jafnframt sérfræðiþjónustu. Árið 1962 varð breyting hér á og stefnt að því að aðskilja þessa starfsþætti í heilbrigðisþjónustunni. Með því að hækka taxta sérfræðinga átti að gera þeim fjárhagslega kleift að sinna einungis sérgrein sinni. Svo við víkjum sérstaklega að barna- læknum skal þess getið að fyrsti sérfræð- ingurinn hér á landi hlaut viðurkenningu árið 1927, hinn næsti 10 árum síðar og sa þriðji árið 1940. Á 5. áratugnum bættist við einn barnalæknir, sem starfaði þó hér aðeins skamma hríð og fluttist úr landi. Á 6. áratugnum bættust við 8 barnalæknar, 9 á árabilinu 1961-—-1970 og 5 hafa hlotið sérfræðiviðurkenningu það sem af er þess- um áratug. 1970—1971 fengu tveir læknar viður- kenningu í barnageðlækningum og árið 1968 hlaut skurðlæknir sérfræðiviðurkenn- ingu í barnaskurðlækningum sem hliðar- grein. í almennum barnalækningum hafa því alls verið gefin út 26 sérfræðileyfi hér á landi. Sem stendur starfa 18 barnalæknar að sérgrein sinni, þar af 2 á Akureyri. Hinir hafa sína aðalbækistöð í Reykjavík, vinna á sjúkrahúsum og öðrum stofnunum, annað hvort hluta úr degi eða í fullu starfi og flestir veita jafnframt sérfræðilega þjón-

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.