Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Page 15
13
recti er venjulega tóm. Þetta verður ekki
lagað nema með skurðaðgerð. Áverkar eða
gallar á mænu ofan við 2., 3. og 4. sacral
segment mænunnar leiða til þess að stjórn
á ristilhreyfingunum lamast, svo að hægða-
tregða hlýst af, t.d. við spina bifida. Ýmsir
aðrir sjúkdómar, bæði í taugakerfi, vöðv-
um og öðrum líffærum geta leitt til sömu
vandræða. Hægðatregða getur komið fyrir
á öllum aldursskeiðum. Ef einkenni um
þetta hafa verið til staðar allt frá frum-
bernsku getur verið um að ræða meðfædda
galla, t.d. hypothyroidismus, Hirschsprungs
sjúkdóm og fleiri sjúkdóma. Einnig er
þetta oft algengt hjá vangefnum. Það er
mjög mismunandi hve hægðir koma oft
hjá börnum og fer það mikið eftir fæð-
unni. Hjá ungbörnum sem eru á brjósti
koma hægðir kannski í hverja bleiu eða
e.t.v. ekki nema einu sinni í viku án þess
að sjúklegt geti talist. Ungbörn sem fá kúa-
mjólk, hafa hinsvegar oftast hægðir dag-
lega. Hjá eldri börnum er þetta einnig
mjög mismunandi, flest hafa hægðir dag-
lega, sum tvisvar á dag, önnur annan hvern
dag eða jafnvel sjaldnar án þess að hafa
nokkur einkenni eða óþægindi. Hægða-
tregða er mun algengari hjá drengjum en
stúlkum og telja sumir höfundar að þetta
sé allt að því fjórfalt algengara hjá drengj-
um. Þessu fylgir oft encopresis og enuresis.
Hægðatregða hjá börnum eldri en 3 ára
eða stálpuðum börnum er mjög algeng og
er oft ekki að finna neina líkamlega ágaila
eða sjúkdóma sem orsök. Hinsvegar er
mataræði þeirra oft mjög áfátt og er það
máske algengasta orsökin ásamt ýmsum
ytri aðstæðum.
Þau hafa oft ekki verið vanin á reglusemi
í uppvextinum, ekki verið vanin á að sitja
á kopp og hægja sér daglega, en látin sjálf-
ráð og hafa síðan haldið áfram að óhreinka
sig er þau uxu úr grasi. Þessi börn hafa
mjög tregar hægðir, oft líða margir dagar
í milli jafnvel vika eða lengri tími. Hægð-
irnar eru fyrirferðarmiklar, kögglóttar,
harðar, safnast fyrir neðst í ristli og enda-
þarmi. Ristillinn er teygjanlegt líffæri,
hann lengist og víkkar út og slappast, verð-
ur tonuslítill og af þessum sökum glatast
eðlileg hægðaþörf. Oft rennur hægðaleðja
fram hjá þessari fyrirferð í ristli og enda-
þarmi og veit barnið ekki af þessu, þetta
lekur í fötin eða kemur þegar barnið leysir
vind. Það hefur encopresis sem kallað er.
Þetta er stundum ranglega greint sem nið-
urgangur og meðhöndlað eftir því. Enco-
presis er nær alltaf einkenni um langvar-
andi hægðatregðu. Það er oft talið að
barnið geri í buxurnar af sálrænum orsök-
um, en ástæðurnar eru venjulega aðrar. Að
vísu eiga þessi börn oft við sálræn vanda-
mál að stríða, en þau eru fremur afleiðing
en orsök. Þessi börn verða oft fyrir aðkasti
og stríðni félaganna í skóla og utan hans.
Það er lykt af þeim og þau eru kannski
með klíning í buxum. Þessu taka félagarnir
fljótt eftir og stríða þeim, vilja ekki sitja
hjá þeim o.s.frv. Þetta hefur oft þau áhrif
að börnin einangrast, neita að fara í sund
eða leikfimi af ótta við að vera óhrein og
vera strítt, jafnvel skrópa í skólanum. Á
hinn bóginn verða þau stundum þver-
móðskufull og erfið í umgengni, bæði
heima og heiman. Þessi börn eru oft mjög
vansæl og lystarlaus, fá oft magaverki sem
geta komið í köstum. Stundum eru þau
grunuð um botnlangabólgu eða aðra sjúk-
dóma í kviðarholi og þau eru ófá sem eru
innlögð á spítala af þeim sökum. Þau eru
með velgju, stundum uppköst eða upp-
þembu og jafnvel einkenni um þarmalöm-
un. Á heimilum þeirra er oft næsta lítill
skilningur á þessu vandamáli og börnunum
er jafnvel harðlega refsað þegar þau ó-
hreinka sig. Þetta vandamál setur ekki að-
eins mark sitt á barnið, heldur líka á for-
eldrana og getur stórlega skaðað samband
barns og foreldra og þá einkum móðurinn-
ar. Það kemur venjulega í hennar hlut að
þrífa barnið og þvo fötin og þá brestur
stundum þolinmæðin þegar ekkert lát
verður á óhreinkun hjá stálpuðu barni,
stundum er þá gripið til refsinga sem gera
ástandið aðeins verra. Oft fá þessi börn
sprungur í endaþarmsop vegna hinna fyr-
irferðamiklu hægða. Þessar sprungur rifna
upp þegar barnið hefur hægðir, það blæðir
jafnvel úr þeim og þau finna mikið til.
Þessvegna vilja þau ekki hafa hægðir því
það er svo sárt og fresta því eins lengi og
þau geta og ástandið versnar. Þau komast
inn í vítahring sem þarf að rjúfa. Þau
þarfnast hjálpar og ekki aðeins börnin
heldur líka aðstandendur. Meðferðin tekur
til allrar fjölskyldunnar. Það þarf að ræða