Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Qupperneq 32
30
hliðarverkunum, sem fylgja í kjölfar ó-
næmisaðgerða, en að sjúkdómunum, sem
þeim er beint gegn.
Þetta á að minnsta kosti við um hefð-
bundnar ónæmisaðgerðir. Meiri áhugi er
fyrir þeim nýrri eins og t.d. mislingabólu-
setningum — flestir hafa séð og muna
mislinga og vilja um fram allt vernda börn
sín og sjálfa sig fyrir þeim óþægindum,
sem mislingum fylgja — Sumar ónæmisað-
gerðir hafa fengið á sig beinlínis illt orð.
Efst á blaði má þar nefna kúabólusetningu,
sem nú er búið að afnema sem skyldubólu-
setningu.
En ónæmisaðgerðir gegn kíghósta hafa
heldur ekki farið varhluta af gagnrýni, sér-
lega vegna hættu á krömpum og „infantil
spösmum", sem þeim hafa verið tengdar og
að líkindum með réttu þótt ekki sé það
endanlega sannað. En þar eð mótefni frá
móður gegn kíghósta berast ekki að gagni
til fósturs, eru börn óvarin gegn kíghósta
alveg frá fæðingu. Og þar sem ónæmisað-
gerðir gegn kíghósta hafa verið lagðar
niður, virðast miðtaugakerfistruflanir af
völdum kíghósta á fyrstu vikum eða mán-
uðum ævinnar síst minni eða fátíðari en af
völdum ónæmisaðgerða. Bil beggja virðist
að sleppa ónæmisaðgerðum gegn kígkósta
við minnsta grun um veikleika í miðtauga-
kerfi og nota hyperimmunglobulin, þótt
dýrt sé, ef verja verður barn, sem þolir
ekki hefðbundnar ónæmisaðgerðir.
Sumir halda því þó fram, að börnum með
skaða í miðtaugakerfi sé ekki hættar en
öðrum við „infantil spösmum" af völdum
ónæmisaðgerða gegn kíghósta og ekki sé
hægt að vita fyrirfram, hver fer illa.
Slys af völdum mænusóttarbólusetninga
hafa ekki orðið hér, enda ekki notað bólu-
efni úr veikluðum heldur einungis deydd-
um veirum. Það er nokkuð virkt sem mót-
efnavaki en tiltölulega hættulaust í notkun.
Lamanir hafa hins vegar orðið allvíða af
völdum bólusetninga með lifandi veirum,
sérlega þar sem mótefnamyndun af völdum
villtrar veiru í þjóðfélaginu er lítil. Og
þannig háttar einmitt til á íslandi.
Hvað sem því líður, er veirufræðin ung
sérgrein, sem er að fikra sig áfram. Hana
dreymir um að einangra mótefnavaka og
framleiða bóluefni, sem standa beztu bakt-
eríubólefnum á sporði að hreinleika og
öryggi. Menn eygja tæknina, en sjá jafn-
framt að framleiðslukostnaður mundi
geypilegur nema takizt að einfalda hana.
Þar til úr rætist verða menn þvi að sætta
sig við að nota veiklaðar veirur sem mót-
efnavaka, en þá er sú hætta ávallt yfirvof-
andi, að veikluð veira geti náð, sér aftur á
strik og/eða aðrar óæskilegar veirur geti
óvart flotið með í framleiðslunni á bólu-
efni eins og t.d. hæggengar veirur, sem
valda ekki skaða strax heldur löngu seinna.
Tæknin leyfir enn ekki, að veirur séu
ræktaðar öðru visi en í lifandi vef og veiru-
gróður því alltaf meira og minna bland-
aður.
Hérlendis er bólusett gegn mislingum
um tveggja ára aldur með lifandi en veikl-
uðum veirum. Nú orðið eru menn ekki eins
hræddir og áður við að breyta mislingum
úr barnasjúkdóm i unglinga- eða fullorð-
inssjúkdóm með ónæmisaðgerðum, þar eð
mótefni sem góð mislingabóluefni mynda
virðast endast furðuvel.
Full þekking á endingu mótefna er þó
enn ekki fyrir hendi — en allar likur benda
til að þetta sé mjög haldgóð ónæmisaðgerð
miðað við aðrar.
Passiv mótefni frá móður geta truflað
mótefnamyndun fyrir tilstilli mislingabólu-
setningar. Þar eð passiv mótefni geta verið
til staðar alveg fram yfir eins árs aldur, er
víðast bólusett gegn mislingum um 15 mán-
aða aldur, þar sem mislingar eru meira og
minna árlegt fyrirbæri.
Á íslandi er þetta ekki svo. Hér hafa
yfirleitt liðið um fjögur ár frá byrjun eins
mislingafaraldurs til byrjunar hins næsta
og því óhætt að bíða með mislingabólusetn-
ingu til tveggja ára aldurs a.m.k. á milli
faraldra, en mótefnamyndun barns orðin
betri og öruggari á þeim aldri og áhrifum
ónæmisaðgerðarinnar ætlað að endast út
ævina.
í faröldrum getur viðhorfið orðið annað
og þá rétt að gera ónæmisaðgerðir allt nið-
ur í 9 mánaða aldur, en endurtaka þá það,
sem gert er innan við 15 mánaða — þar eð
passiv mótefni frá móður geta eyðilagt ó-
næmisaðgerðir hjá svo ungum börnum.
CASE FINDING
Afbrigðileg líkamleg þróun getur verið
að koma í ljós smátt og smátt fram eftir