Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Page 33
31
aldri. Meiri háttar afbrigði koma mörg
hver í ljós strax við fæðingu, en önnur og
þá venjulega minni koma ekki í ljós fyrr
en löngu síðar.
Nú orðið er gerð þunnlags chromato-
graphia á öllum nýfæddum börnum til að
leiða í ljós phenylketonuriu og aðra sjúk-
dóma af skyldu eðli. Vakandi auga þarf að
hafa fyrir cretinisma og hypothyroidisma,
sem taka þarf til meðferðar snemma, ef
árangur meðferðar á að verða góður. Litn-
ingarannsóknir hjálpa til við greiningu á
t.d. Down syndromi og öðrum litninga-
afbrigðum með þekktum litninga-struktur.
Hjartagallar, orthopedisk vandamál,
skaðar í miðtaugakerfi, afbrigði á tractus
genito-urinarius eða gastro-intestinalis upp-
götvast ekki sjaldan við venjulegt ung- og
smábarnaeftirlit, sem og sjóngallar, heyrn-
argallar og máltruflanir.
Greining byggir að sjálfsögðu mjög á
æfingu og þekkingu þess, sem skoðar, sem
og almennri samvizkusemi og skyldurækni.
Auk þess skiptir máli, að börn séu skoðuð
nægilega oft til að tækifæri bjóðist til að
uppgötva frávik senmma.
Illa unnið ung- og smábarnaeftirlit býður
heim falskri öryggiskennd og ýmislegt get-
ur að sjálfsögðu farið framhjá jafnvel þar
sem bezt er unnið.
Reynslan sýnir, að líkamshreysti ein
dugar skammt, ef hún helzt ekki í hendur
við andlegt- og tilfinningalegt heilbrigði.
Flóknari atvinnu- og lifnaðarhættir þróaðri
þjóðfélaga nútímans hafa stuðlað að aukn-
ingu á alls kyns geðflækjum auk þess sem
þeir hafa gert afbrigðilegu fólki erfiðara
um vik að falla inn í mót eðlilegs daglegs
lífernis þjóðfélagsins. Því er geðvernd mik-
ilvægari nú en nokkru sinni fyrr. Hefð-
bundið ung- og smábarnaeftirlit hefur til
skamms tíma lagt höfuðáherzlu á heilbrigði
líkamans og ætlast til að heilbrigði sálar-
innar fylgdi í kjölfarið. Svo þarf þó engan
veginn að vera. Samt sýnist mér, að engum
þætti hefðbundins ung- og smábarnaeftir-
lits sé raunverulega hægt að sleppa til að
veita öðrum þáttum betra svigrúm. Enda
þótt líkamlegt heilsufar sé ekki í sama
brennipunkti og áður, mundi samt vafa-
laust fljótt síga á ógæfuhliðina, ef farið
væri að slá slöku við það.
En tímarnir breytast og vandamálin með
og í dag þarf að hyggja að eftirfarandi
vandamálum:
1. Slys setja líf og limi bama nútímaþjóð-
félagsins í meiri hættu en flest annað.
Því er knýjandi nauðsyn að kanna helztu
slysagildrur innan húss og utan, kynna
þær fyrir foreldrum og uppalendum sem
og forráðamönnum þjóðfélagsins og
börnunum sjálfum, þegar það er hægt.
2. 111 meðferð á börnum bæði meðvituð og
ómeðvituð er engan veginn úr sögunni
og getur verið, hvort heldur sem er,
líkamleg eða andleg. 111 meðferð getur
leitt til dauða en langtum oftast til and-
legrar eða líkamlegrar bæklunar.
3. Samfélag nútímans hefur eðli sínu sam-
kvæmt ekki mikla þolinmæði með ein-
staklingum, sem „falla ekki í mótið“, þar
eð það gerir síauknar kröfur til hraða,
viðbragðsflýtis, sveigjanleika og aðlög-
unarhæfni einstaklingsins. Því þarf að
gera ráðstafanir til að koma til móts við
börn og fullorðna með ,,sérþarfir“.
a) börn með langvarandi sjúkdóma og
þá ekki síst langlegusjúklingar.
b) bækluð eða hreyfiskert börn.
c) sjón og heyrnarskert börn.
d) þroskaheft börn.
e) fjölfötluð börn.
f) börn með málgalla eða aðra tjáning-
arörðugleika og skyntruflanir.
4. Hegðunarvandamál barna fara víðast
vaxandi.
5. Fjölskyldu og þjóðfélagsvandamál geta
haft geigvænleg áhrif á möguleika barna
til að þroskast eðlilega:
a) Fjöldi barna alast upp við að annað
hvort eða báðir foreldrar séu
drykkjusjúklingar.
b) Notkun fíkni og ávanalyfja fer alls
staðar vaxandi.
c) Mörgum börnum þarf að koma fyrir
um lengri eða skemmri tíma vegna
félagslegra örðugleika foreldra eða
þá geðrænna eða líkamlegra sjúk-
dóma.
d) Fleiri foreldrar slíta samvistun en
áður og sundrung fjölskyldu gengur
aldrei sársaukalaust fyrir sig, jafnvel
þótt ærið tilefni sé til fjölskylduslita.
e) Börn einstæðra foreldra eru oft í
erfiðri aðstöðu, sérlega ef hið ein-