Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Side 35

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Side 35
33 móti. Flestum foreldrum gengur betur að ræða vandamál sín í friðhelgi eigin heimilis en á ópersónulegri stofnun. Persónulegra samband skapast á milli foreldra og fulltrúa ung- smábarnaeftir- lits. Ungbarninu er hlíft við að fara innan um aðra og er því síður útsett fyrir smit- hættu á viðkvæmasta aldri. 5. Læknisskoðanir hafa ráðist hérlendis af tilhögun ónæmisaðgerða. Þær eru hins vegar orðnar það tíðar nú orðið, að fyrir- komulagið býður upp á alveg sæmileg tækifæri til að öðlast heildaryfirlit yfir þroskaferil og vandamál hvers barns, sem til næst, og þá jafnframt tækifæri til að grípa inn í óæskilega þróun tiltölu- lega fljótt með bætandi aðgerðum. Jafnframt skapast betri tækifæri en áð- ur til að gera rannsóknir og kannanir á börnum á vissum aldursskeiðum. 6. Smitvarnir: ungbörn, sérlega þau, sem eru á brjósti, hafa og viðhalda um nokk- urra mánaða skeið passivu ónæmi gagn- vart þeim sjúkdómum, sem móðir er ónæm fyrir. Þetta á þó ekki við um kíghósta eða hlaupabólu. En vörn ný- fædds barns gegn smitnæmum sjúkdóm- um er að öðru leyti engin eða svo til og ónæmiskerfi líkamans afar vanþroska. Þess vegna er áhættusamt að útsetja ný- burði ónauðsynlega fyrir smithættu. Því þarf að verja ungbörn sérstaklega fyrir smithættu, þegar verið er að skipuleggja ungbarnaeftirlit. Æskilegt er, að þau geti haft aðgang, að eigin biðstofu og hvert barn eigi sinn tíma til að ekki safnist saman allt of mörg börn á sama tíma, sem gætu smitað hvort annað. Æskilegt er að aðskilja ungbörn og eldri börn eftir beztu getu t.d. með því að hafa smábarnaeftirlit á einum tíma en ungbarna á öðrum — vegna þess að eldri börn geta verið smitberar og smit- að þau yngri, þótt þau séu ekkert veik sjálf. Þyki einhverjum ungbörnin félagslega afskipt með þessu móti, má benda á, að þau eru ekki orðnar félagsverur enn og það er varla fyrr en um þriggja ára ald- ur, að börn fara að hafa áhuga á að leika sér við önnur börn, þótt áhugi geti vakn- að miklu fyrr fyrir því að horfa á og sjá, hvernig önnur börn leika sér saman. 7. Hvað viðvíkur eldri börnum, þarf að út- búa biðstofur þannig, að þau geti haft eitthvað fyrir stafni og dreift huganum frá kvíða og áhyggjum fyrir því ó- þekkta, sem fram undan er. Einnig má biðstofa ekki bjóða upp á neinar slysa- gildrur fyrir börn og vera hæfilega hlý til að börn geti verið þar á ferli létt- klædd eða ber. Aðstaða til barnagæzlu þarf líka að vera fyrir mæður, sem eru með mörg börn og komast ekki að heim- an nema hafa þau með. STUÐNINGUR VIÐ FJÖLSKYLDUR Hefðbundin aðstoð ung- og smábarna- eftirlits við foreldra og börn var lengi fólgin í að greina afbrigðilega þróun og greiða fyrir því að afbriðilegt barn fengi bezta mögulega lækningu eða aðstoð. Reynslan sýnir hins vegar, að oft er þörf á stuðningi, þótt barn sé algjörlega eðli- legt, til að tryggja, að svo verði áfram. Fæðing barns raskar óhjákvæmilega lifn- aðarháttum foreldra verulega, breytir sam- bandi foreldranna innbyrðis sem og sam- bandi þeirra við önnur börn, ef fyrir eru. Og raskist jafnvægi heimilis, þarf hver fjölskyldumeðlimur að stokka upp spihn einstaklingsbundið til að nýtt jafnvægi komist á. Sumum veitist auðvelt að ráða fram úr þessum vanda, en öðrum erfiðara, sérlega ef jafnvægið hefur ekki verið of traust fyr- ir. Læknir og foreldri Einföld spurning í upphafi viðtals um, hvernig gangi, gefur foreldri tækifæri til að viðra strax þær áhyggjur, sem því eru efst í huga og lækni tækifæri til að af- greiða þær, áður en hann fer sjálfur að spyrja um það, sem hann þarf að vita eða vill kanna betur, og þar með tryggir hann sér einnig betri athygli foreldrisins. Vandamálin eru oftast hversdagsleg og venjuleg fyrir lækninum en sérstæð og sérstök í hugarheimi foreldrisins. Sárar áhyggjur verða oft til af smávægilegu til- efni, þegar ungt barn á hlut að máli. Stimpli læknir hins vegar þannig kvartanir í eigin hug sem leiðinlegt og vart svara- vert kvabb, missir hann af kjarna málsins, '

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.