Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Side 61

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Side 61
59 breytileg eftir löndum og landshlutum, þó að ekkert bendi til þess að þær þjóðir sem þessi landssvæði byggja séu að neinu marki ólíkar innbyrðis frá heilbrigðis og læknis- fræðilegu sjónarmiði. T.d. er tíðni háls- og nefkirtlatöku per 10.000 börn undir 15 ára aldri 17 í Uppsölum, 26 í Liverpool, 70 í Nýja-Englandi og 200 í Ontario í Kanada. Ég hefi því miður engar tölur handbærar um hversu þessar aðgerðir eru algengar á íslandi. Ef ég ætti að giska á samsvarandi tölu fyrir ísland, myndi ég telja að hún lægi einhvers staðar milli 70 og 200. Þrátt fyrir það að þessar aðgerðir séu svo algengar, og þrátt fyrir mikil skrif og um- ræður um þessi mál um margra ára skeið, vantar ennþá afgerandi athuganir á indi- cationum fyrir og árangri af háls- og nef- kirtlatöku. Á siðustu misserum hafa þó birst greinar um þessi mál, sem vert er að vekja athygli á, þar sem reynt er að þetta vandamál objectivt. Með hliðsjón af þessum skrifum er rétt að ræða þessu næst um það sem nefnt hefur verið non-indi- cationir fyrir háls- og nefkirtlatöku, þ.e. ýmsar aðstæður sem einhvern tíma hafa verið taldar styðja þessa aðgerð, en gera það alls ekki, þegar betur er að gáð. (Tafla 4). TAFLA 4. Háls- og nefkirtlataka. NON-Indicationir I. „Stórir kirtlar" II. Endurtekin kvefeinkenni III. Endurteknar hálsbólgur IV. Endurteknar Streptokokkasýkingar í koki V. Þrýstinjrur frá foreldrum VI. Ýmsar ástæður Lystarleysi Ofnæmi Asthmi Hitaköst Andfýla Þreyta Slen Námsleiði Endurteknar lung’naból^ur I. Stórir kirtlar Margir foreldrar álíta að stórir kirtlar séu slæmir kirtlar. Þetta stafar efalaust af því að á því æviskeiði barnsins sem það fær flesta kvillana eru háls- og nefkirtlar hvað stærstir af fysiologiskum ástæðum, eins og áður sagði. Stækkun á háls- og nef- kirtlum getur að vísu orðið svo mikil að hún valdi obstruktio á efri öndunarvegum og cor pulmonale. Þetta er mjög sjaldgæft og aðeins hefur verið lýst 40—50 tilfellum af þessu tagi. í slíkum tilfellum er greini- lega ástæða til kirtlatöku. Almennt ber að vara lækna við því að tala um kirtla barns- ins við foreldrana sem stóra eða ljóta og slæma, þegar skoðun fer fram. Slíkt getur aðeins ýtt undir ranghugmyndir foreldr- anna um kirtlana og eðli þeirra. II. Edurtekin kvefeinkenni og særindi í hálsi Það er ljóst að kirtlataka minnkar ekki tíðni veirusýkinga í öndunarfæri. III. Endurteknar hálsbólgur Saga um endurteknar hálsbólgur hefur lengi verið indicatio fyrir hálskirtlatöku, bæði að áliti foreldra og lækna. Nýlega birtust í NEJM niðurstöður bandarískra lækna, sem reyndu að meta þessa indicatio. Þeir fylgdu eftir hópi 65 barna með sögu um margendurteknar hálsbólgur, skil- greint sem 7 hálsbólgur á einu ári, 5 á ári í 2 ár eða 3 á ári í 3 ár. Það kom í ljós, að er þessum börnum var fylgt náið eftir í eitt ár héldu aðeins 11 börn áfram að fá tíðar hálsbólgur. Þetta var 17% af hópnum. Niðurstaða athugunarinnar var sú, að ekki var unnt að treysta því að óstaðfest saga um endurteknar hálsbólgur boðaði áfram- hald slíkra kvilla hjá barninu. Það væri því ekki unnt að hafa þetta að leiðarljósi, þegar ákveða skyldi um aðgerð. Ennfrem- ur má ráða af þessari athugun, að 5 af hverjum 6 börnum með sögu um endur- teknar hálsbólgur munu fá miklu færri slíkar sýkingar, sé þeim fylgt eftir í eitt ár. Þegar einnig er haft í huga kostnaður, áhætta og óþægindi þau sem aðgerðinni fylgja, er ljóst að rétt er að biða með að- gerð og observera, ef eina indicatio fyrir aðgerð eru endurteknar hálsbólgur. IV. Endurteknar streptokokkasýkingar í koki Sýnt hefur verið fram á að tíðni slíkra sýkinga breytist ekki við kirtlatöku. Kirtla- takan kann á hinn bóginn að valda erfið- leikum síðar meir við að greina strepto- kokkasýkingu, þar sem þá er ekki lengur

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.