Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Blaðsíða 67

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Blaðsíða 67
65 lyfja, ekki síst þar sem það getur verið mjög mismunandi milli svipaðra og jafn virkra lyfja, og eins hinu, að upphæðir þær, sem um ræðir, eru verulegar, geta jafnvel skipt hundruðum þúsunda fyrir viku til 10 daga meðferð. Þegar ný sýkla- lyf koma á markaðinn er venjulega efnt til auglýsingaherferðar, sem undirstrikar kosti lyfsins eingöngu, en minna gert úr ókostum, og er oft örðugt fyrir lækna, að fá greinargóða mynd af því, hvenær er raunveruleg ástæða til að nota nýja lyfið. Vil ég því benda læknum á, að sýna vissa íhaldssemi í meðferð nýrra lyfja, og nota heldur eldri lyf, sem hafa reynst vel, og bíða þess að hin nýrri hafi sýnt yfirburði sína yfir þau gömlu, áður en gripið er til þeirra. SÝKINGAR í HÁLSI Hálsbólga er að líkindum sá sjúkdóma- flokkur, sem mest af fúkkalyfjum er gefið gegn. Lítill hluti þessara sjúklinga eru þó sýktir með bakteríu, heldur er um að ræða veirusýkingar. Hættan á streptococcasýk- ingu er þó umtalsverð, og þar sem ekki er hægt að útiloka slíka sýkingu með viðeig- andi rannsóknum, verður oft ofan á að sýklalyf eru gefin. Þar sem því verður við komið, er best að framkvæma slíkar rann- sóknir, og haga meðferð eftir niðurstöðum þeirra og þótt það tefji meðferð í 1—2 sólarhringa er sjaldan verulegur skaði skeður, þar sem meðferð styttir þann tíma, sem barnið er veikt, mjög lítið, og aðal- ástæða til meðferðarinnar er annars vegar sá að koma í veg fyrir útbreiddar stað- bundnar sýkingar eins og peritonsillar ab- cess, og hinsvegar að koma í veg fyrir post- streptococcal fylgikvilla. Aðrar bakteríur en beta-hemolytiskir streptococcar geta einstöku sinum valdið hálsbólgu, svo sem pneumococcus og hemophilus influenzae. Er það síðarnefnda þó mjög fátítt, og ekki ástæða til að taka tillit til þeirrar bakteríu við val meðferðar, nema ef epiglottitis er áberandi, þá aukast líkindi á hemophilus, og er þá sjálfsagt að haga meðferðinni sam- kvæmt því. Penicillin hefur verið, og er enn, kjörlyfið við beta-hemolytiskum streptococcum, og hafa nýrri lyf engu þar um breytt. Hjá penicillin ofnæmum ein- staklingum er erythromycin gott lyf. Al- gengustu mistök við meðferð á þessum sjúkdómi, er að hafa meðferðartímann of skamman. Sýnt hefur verið fram á, að til að útrýma streptococcum með nokkru ör- yggi úr hálsi, þarf að minnsta kosti 8—10 daga meðferð.3 Ber því að segja foreldrum barns þegar í upphafi, að jafnvel þótt barn- inu batni miklu fyrr, þurfi meðferðin að vera lengri. Aðeins með þessu er hægt að tryggja, að post-streptococcal fylgikvillar komi ekki fram. Það, að slíkir fylgikvillar eru mjög óalgengir hér tel ég ekki vera að þakka góðri sýklalyfjagjöf, heldur öðrum þáttum. Gigtsótt, svo og nýrnabólga, eru þó alls ekki horfin af sjónarsviðinu hér fremur en annars staðar. Af nýrri lyfjum hef ég oft séð gefið trimethoprim-sulfa sambönd, og tel ég það ekki rétt, þar sem vitað er að sulfa eitt hefur engin áhrif á tíðni fylgikvilla eftir streptococcal sýking- ar, og engar rannsóknir, sem mér eru kunn- ugar, hafa sýnt að koma megi í veg fyrir þær með því að bæta trimethoprim við sulfa. Meðan slíkar rannsóknir eru ekki fyrir hendi ber því að forðast að nota þessi lyf við hálsbólgu. Ampicillin og skyld lyf hafa enga kosti fram yfir venjulegt peni- cillin annað en það að frásog frá meltingar- vegi er áreiðanlegra, en fylgikvillar hins- vegar algengari og á því ekki að nota þessi lyf við hálsbólgu. EYRNABÓLGA Þær tvær bakteríutegundir, sem oftast valda eyrnabólgu, eru pneumococcar og hemophilus influenzae. Sumir hemophilus stofnar eru ónæmir fyrir penicillini, en hinsvegar næmir fyrir ampicillini og skyld- um lyfjum. Er því mælt með gjöf ampicill- ins, að minnsta kosti til handa ungum börn- um, eða alit til 4—5 ára aldurs, sem hafa eyrnabólgu. Hjá eldri börnum eru líkind- in á hemophilus influenzae sýkingum minni, og er penicillin gott lyf hjá þeim. Nýleg rannsókn um bakteriologiu otitis sýndi fram á, að líklega eru loftfælnar bakteríur algengari en hingað til hefur verið haldið (sjá tölfu I).4 Þessar anaerobe bakteríur voru undantekningarlaust næm- ar fyrir penicillini. Af öðrum lyfjum má minna á sulfa og trimethoprim blönduna, sem er mjög virkt, bæði gegn pneumococc- um og hemophilus, og ætti því að vera
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.