Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Síða 71

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Síða 71
69 cephalosporin fara illa yfir í mænuvökva, og ber að forðast notkun þess í heilahimnu- bólgu. AMINOGLYCOSIDE Nokkur lyf hafa bæst við þennan lyfja- flokk nýlega. Það, sem athyglisverðast virðist, er amikacin. Þetta lyf er náskylt kanamycini, sem hefur ýmsa eiginleika, sem gerir það frábrugðið því, og reyndar öðrum aminoglycosidum. Er lyfið ónæmara gegn ýmsum enzymum, sem gram nei- kvæðir sýklar hafa tilhneigingu til að mynda, sem vörn gegn sýklalyfjum. Eru því margir gram neikvæðir sýklar, sem hafa myndað mótstöðu gegn kanamycini og gentamicini, sem enn eru næmir fyrir amikacini.10 Sérstaklega er um að ræða ýmsa proteus stofna og klebsiella og pseu- domonas tegundir. Þessar bakteríur eru sumsstaðar orðnar mjög algengar á sjúkra- húsum, og hafa þær skotið upp kollinum hér af og til, þótt ekki sé hægt að segja að þetta sé útbreitt vandamál enn sem komið er, en rétt er að muna eftir þessu lvfi þeg- ar ónæmir stofnar koma unp. Annað amino- glycoside er tobramicin. Er það miög líkt gentamicini, og aukaverkanir þær sömu, og skammtar sömuleiðis. Þetta lyf er heldur virkara gegn pseudomonas en gentamicin, og hefur þess vegna sumsstaðar tekið sæti gentamicins í meðferð gram neffativra sýkinga. Þriðja aminoglycosidið er svo spectinomycin, sem hefur aðeins eina á- bendingu til notkunar, en það er lekandi, og þó einkum og sér í lagi hiá beim, sem eru ónæmir fyrir penicillini. Ekki eru siá- anleg nein önnur not fvrir þetta lvf. Nokk- uð ruglingslegt er, að sérlyfjaheiti þessa lyfs er Trobicin, sem líkist mjög tobra- micin, sem áður er getið um, og ber að greina mjög vel á milli þessara lyfja. tetra,cycline lyf Fiöldamörg ný tetracycline hafa komið á markaðinn undanfarin ár, og eru mörg þeirra mjög áhugaverð, en með tilliti til meðferðar hjá börnum, er rétt að undir- strika, að ekkert þeirra hefur reynst mein- laust varðandi aukaverkanir á tennur. Lík- legt er þó, að tíðni þessara aukaverkana sé minni við sum þessara lyfia, en miög fáar ábendingar eru fyrir notkun tetracycline hjá börnum, og verður eigi fjölyrt um þessi lyf hér, en einungis mælst til þess, að lækn- ar sneiði hjá notkun þeirra hjá börnum á vaxtarskeiði.11 LOKAORÐ Reynt hefur verið að draga fram nokkur atriði varðandi val sýklalyfja í ýmsum al- gengum sjúkdómum, svo og eiginleika nokkurra nýrri lyfja. Það er vitaskuld ó- gjörningur að gera efninu tæmandi skil í stuttri grein, og er því margs ógetið, sem gagnlegt hefði verið að koma á framfæri. Enginn vafi er á, að sýklalyf eru mikil- virk, og bjarga ótöldum mannslífum árlega. Hitt er þó rétt að hafa í huga, að oft batnar fólki þrátt fyrir sýklalyfjagjöf, en ekki vegna hennar, og er ávallt rétt að gæta varúðar við að draga ályktanir af sjúk- dómsgangi, nema þeim mun betur hafi ver- ið staðíð að greiningu sjúkdómsins í upp- hafi. Sjúklingar okkar, svo og þjóðfélagið í heild, eiga þær kröfur á okkar hendur, að við vöndum val allra lyfja, ekki síst sýkla- lyfja, og reynum að forðast ofnotkun. En hér eru ekki aðeins í veði fjármunir heldur bendir allt til að taumlaus notkun þessara lyfja geti aukið líkur á að harðgerir sýkla- stofnar komi fram, og alvarlegri sýkingum fjölgi. HEIMILDIR 1. Kunm. C.M., Tupasi. T., Graig, W.A.: Use of antibiotics. Ann.Intern.Med. 79:555-560. 1973. 2. Rosenblatt, J.E.: Laboratory tests used to guide antimicrobial therapy. Mayo Clin. Proc. 52:611-615. 1977. 3. Brink, W.R., Rammelkemp, C.H.Jr., Denny, F.W., Wannamaker, L.W.: Effect of peni- cillin and aureomycin on the natural course of streptococcal tonsillitis and pharyngitis. Am.J.Med. 10:300-308. 1951. 4. Brook, I., Anthony, B.F., Finegold. S.M.: Aerobic and anaerobic bacteriology of acute otitis media in children. J. Pediat. 92:13-15. 1978. 5. Keyes, T.F.: Antimicrobials commonly used for urinary tract infection. Mayo Clin.Proc. 52:680-682. 1977. 6. Lepper, M.H., Dowling, H.F.: Treatment of pneumococcic meningitis with penicillin compared with penicillin plus auremycin. Arch.Intern.Med. 88:489-494. 1951. 7. Wehrle, P.F., Mathies, A.W., Leedom, J.M. et al.: Bacterial meningitis. Ann.N.Y.Acad, Sci. 145:488-499. 1967,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.