Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Page 72

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Page 72
70 8. Rahal, J.J.Jr.: Antibiotic combinations: The clinical relevance. Medicine 57:179-194. 1978. 9. Nolan, C.M., Abernathy, R.S.: Nephro- pathy associated with methicillin therapy. Arch.Intern.Med. 137:997-1000, 1977. 10. Reynolds, A.V., Hamilton-Miller, J.M.T., Brumfitt, W.: In vitro activity of amikacin and 10 other aminoglycoside antibiotics against gentamicin resistant bacterial strains. J.Infect.Dis. 134(Suppl) :S291-S295. 1976. 11. Reeves, D.S., Bint, A.J., Bullock, D.W.: Use of antibiotics. Sulphonamides, co-trimoxa- zole, and tetracyclines. Brit. Med.J. 2:410- 413. 1978. Sævar Halldórsson ÞROSKAHEFT BÖRN í erindi mínu hef ég kosið að ræða sem minnst um hlutverk læknisins í sambandi við læknisfræðilega sjúkdómsgreiningu og meðferð á þroskaheftum börnum. Þess í stað mun ég reyna að fjalla vítt og breytt um það sem læknirinn á að gera og getur gert fyrir þroskaheft barn og foreldra þess þegar beinum læknisaðgerðum sleppir. Áður en lengra er haldið er rétt að gera grein fyrir því hvað átt er við með orðinu þroskaheftur. Það hefur verið skilgreint þannig: „Þroskaheftur er sá sem af þekkt- um eða óþekktum ástæðum er þannig ástatt um, að hann getur ekki af eigin rammleik náð eðlilegum þroska, andlegum eða líkam- legum til almennrar þátttöku í samfélag- inu. Þroskaheftir geta því verið haldnir fötlunum eins og vangefni, heyrnarleysi, hreyfihömlun, blindu, geðveiki, málhömlun t.d. aphasy o.s.frv. Það er mikilvægt að læknisfræðileg greining á þroskaheftingu eigi sér stað mjög snemma á ævinni. Þegar læknisfræði- leg meðferð er fyrir hendi til þess að koma í veg fyrir þroskaheftingu, byggist árangur meðferðarinnar oft algjörlega á því að greining sé gerð hjá barninu mjög ungu. Nægir að nefna sem dæmi hina ýmsu metabolisku galla, hydrocephalus, cretinis- mus og fleira. Það má skjóta því hér inn, að þó ekki sé til lækning við meðfæddri heyrnardeyfu, er engu að síður nauðsyn- legt að greina hana snemma svo að notkun heyrnartækja geti hafist sem allra fyrst. Þetta á að sjálfsögðu við margar aðrar fatl- anir. Þó að ákveðin sjúkdómsgreining m.t.t. orsakar fyrir þroskaheftingu bjóði ekki upp á neina sérstaka meðferð fyrir barnið, hefur greiningin þó mikið gildi. Þetta á auðvitað við þegar um er að ræða arfgenga sjúkdóma og hægt er að beita erfðafræði- legri ráðgjöf eða gera sjúkdómsgreiningu í fósturlífi. Þó að ákveðin sjúkdómsgrein- ing m.t.t. orsaka bjóði hvorki upp á með- ferð fyrir barnið eða erfðafræðilega ráð- gjöf er hún samt mikilvæg fyrir foreldra barnsins og hjálpar læknum oft til að segja fyrir um prognosis. Hvað á læknirinn svo að gera þegar ljóst er að barnið er örugglega þroskaheft, hvort sem ákveðin sjúkdómsgreining m.t.t. orsak- ar er fyrir hendi eða ekki? Vandamálin blasa við, en hvað á að gera? Til skamms tíma má orða það svo, að læknirinn hafi ,,leyst“ vandamálið með því að slá því á frest. Barnið var „sett í bið“ meðan beðið var eftir því hvað tíminn myndi leiða í Ijós. Þegar barnið yrði eldra myndi verða auðveldara að sjá hvaða framtíðarmögu- leika það ætti. Tíminn leið og barnið varð eldra að árum, allir biðu, barn, foreldrar og læknirinn í fullkomnu aðgerðarleysi. Hver kannast ekki við svör lækna eins og: „Tíminn mun leiða í ljós hvað hægt verður að gera; barnið er jú ennþá svo ungt; það er ekki tímabært að gera neitt ennþá“. Reynsla síðari ára hefur sýnt og sannað, að þessi oft áralanga bið án aðgerða er mjög skaðleg barni og foreldrum þess. Hún dregur úr þroskamöguleikum barnsins og brýtur niður viljakraft forelda. Læknirinn verður því að vera tilbúinn til að takast strax á við vandamálið. Hlutverki hans er ekki lokið þegar sjúkdómsgreining liggur fyrir. Hann getur ekki skorast undan því að svara spurningum, sem allir foreldrar

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.