Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Side 74
72
líka við um börn, sem grunur leikur á, að
séu þroskaheft. Við Öskjuhliðarskóla skal
rekin deild fyrir þroskaheft börn undir 7
ára aldri til skammtíma atferlisathugana
í tengslum við sérfræðideildina. Þá segir
að sé um að ræða börn á forskólaaldri, geta
foreldrar og sérfræðingur (læknir, sál-
fæðingur o.s.frv.) óskað eftir greiningu á
þeim. í reglugerðinni er sérstaklega kveðið
á um svokallaða leiktækjaþjónustu og upp-
eldisráðgjöf til foreldra þroskaheftra barna
yngri en 7 ára.
Persónulega er ég ánægður með margt
af því sem kemur fram í þessum reglugerð-
um, en tel þó að margt mætti færa til betri
vegar. En einhvers staðar verður að byrja
og reglugerðir sem þessar þurfa að sjálf-
sögðu að vera í stöðugri endurskoðun.
Rétt er að staldra hér við og athuga hver
staða okkar er nú í dag með tilkomu þess-
ara reelugerða og annars sem unnið hefur
verið að í þessum málum á undanförnum
árum. Hvað er til í dag, sem kveðið er á um
í reglugerðunum?
Göngudeild Kópavogshælis er tekin til
starfa. Hún hefur ekki sérstakt starfslið
og er mönnuð sérfræðingum, sem nú vinna
við stofnunina. Þó að deildin sé enn van-
búin og hafi enn ekki getað tekist á við
mörg af þeim verkefnum, sem henni eru
ætluð, hef ég trú á því að hún eigi eftir að
eflast og gegna mikilvægu hlutverki í mál-
efnum vangefinna í framtíðinni. Læknar
geta vísað foreldrum vangefinna barna
bangað til þess að fá læknisfræðilega og
félagslega aðstoð
í Kjarvalshúsi er starfandi vísir að þeirri
athugunar- og sérfræðideild Öskjuhlíðar-
skóla, sem getið er um í reglugerð Mennta-
málaráðuneytisins. Þessi deild hefur á að
skÍDa talsverðum hópi sérfræðinga til þess
að fást við þau verkefni, sem henni eru ætl-
uð. þó enn vanti þar verulega upp á og tak-
markað húsrými sníði starfseminni mjög
þröngan stakk. f Kjarvalshúsi eru börn á
forskólaaldri tekin til athugunar, greining-
ar og meðferðar samkv. beiðni foreldra eða
samkv. tilvisun sérfræðinga, sem fram að
þessu hafa oftast verið læknar. Flest börn
hafa verið á aldrinum 2ja til 6 ára, en eng-
in aldursmörk eru niður á við. Börnin
dvelja á deildinni allan daginn 5 daga vik-
unnar og dvalartíminn hefur verið frá 1—2
vikum upp í nokkra mánuði í senn, en þó
oftast 1—2 mánuðir. Að athugun og grein-
ingu lokinni er eftir því sem við á gerð
meðferðaráætlun fyrir hvert barn fyrir for-
eldra og aðra þá aðila, sem taka munu þátt
í meðferð barnsins. Einnig getur verið um
beina tilvísun á meðferðaraðila að ræða,
t.d. Geðdeild Barnaspítala Hringsins, þjálf-
unarskóla, fávitahæli, málhömlunardeild,
deild fyrir hreyfihamlaða o.s.frv. Mikil á-
hersla er lögð á vinnu með foreldrum, sem
er ekki síður mikilvæg og í mörgum til-
fellum það sem mestu máli skiptir. Mjög
oft hafa foreldrar ekki gert sér grein fyrir
eða viðurkennt fötlun barnsins. Segja má
að viðurkenni foreldrar ekki fötlun barns-
ins þá viðurkennir barnið hana ekki held-
ur, sem leiðir svo aftur til þess að þjóð-
félagið viðurkennir hvorugt og foreldrarn-
ir og hið þroskahefta barn einangrast.
Reynt hefur verið eftir megni þegar börn
koma utan af landi að haga meðferðaráætl-
un þannig, að sem auðveldast sé að fram-
kvæma hana í heimhögum. Áhersla er löCTð
á að virkja þá starfskrafta sem fyrir hendi
eru á þeim stað, sem barnið er búsett.
Framtíðarstefnan er sú, að ,,deeentralisera“
sem mest af þessari sérfræðiþjónustu þó að
enn verið hún að búa við ákveðna „centrali-
seringu“ af illri nauðsyn vegna þess fá-
menna hóps sérfræðinga sem vinna að þess-
um málum.
í Kjarvalshúsi er einnig leiktækjabión-
usta og uppeldisráðgiöf fvrir foreldra
þroskaheftra barna á forskólaaldri. Á hin-
um Norðurlöndunum gengur þessi þjónusta
undir nafninu ,,Legotek“. Sérmenntuð
fóstra vinnur þar með foreldrum og barni
þeirra í einkatímum í 1—2 klst. í senn.
Oftast koma barn og foreldrar í þessar
heimsóknir í %—1 mán. fresti en einnig
geta heimsóknir verið tíðari eða sialdnar
og ræðst það af eðli vandamálsins. Þegar
um er að ræða heimsóknir utan af lanrli
eru þær strjálari, en samband þá hald'ð
með símtölum og bréfaskrift.um. Mörg af
börnunum í ,,legotekinu“ hafa verið mjög
ung eða á fvrsta aldursári.
Eins og kemur fram í bví sem éa. hef
nú lvst er þegar farið að vinna að nokkru
leyti eftir áðurnefndum reffluverðum. Má
segja að með því hafi opnast verulegir