Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Síða 77

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.1979, Síða 77
75 Þess ber þó að gæta, að áreitiköstin geta einnig komið fram hjá nýfæddum börnum við einhverja lítils háttar ertingu, eins og böðun, og er þá oft erfitt að greina þau frá flogaveiki. Tíðni: Talin vera í kringum 1% hjá for- skólabörnum. Einkenni Þessum köstum má skipta í tvo aðalhópa, blámaköst og fölvaköst. 1. Blámaköstin eru yfirleitt vakin af reiði, vonbrigðum og hræðslu. Barnið rekur upp grát, eða ætlar að fara að gráta, en heldur því næst niðri í sér andanum í lok útöndunar, blánar, og ef kastið stendur nógu lengi, verður það máttlaust eða stífn- ar, dettur síðan niður meðvitundarlaust, ranghvolfir augunum, sperrir höfuð aftur og fær allsherjar cloniska rykki. Þegar svo er komið, eru köstin oft illgreinanleg frá venjulegum grand mal flogaveikiköstum. Börnin geta jafnvel misst þvag og saur í þessum köstum. 2. Fölvaköstin svokölluðu, eru mun sjaldgæfari og yfirleitt fremur vakin af sársauka, t.d. höggi á höfuð og er það oft, að enginn grátur heyrist, áður en barnið fellur niður, náfölt og meðvitundarlaust. U.þ.b. 30% þessara barna eiga við hegð- unarvandkvæði að stríða og u.þ.b. 30% hafa jákvæða fjölskyldusögu um svipuð köst.4 Greining Meiri háttar áreitiköst getur sem sé verið erfitt að greina kliniskt frá flogaveiki. Ná- kvæm sjúkrasaga er því 1., 2. og 3. boð- orðið til réttrar greiningar og gefur alltaf til kynna einhvern framkallandi þátt (pro- vocerandi factor), hvort sem grátur fylgir með eður ei. Oftast fettir barnið sig aftur í þessum köstum, þ.e.a.s. fer í opisthotonus, sem er sjaldgæft í raunverulegri flogaveiki. Heilarit sýnir ekki epileptiskar breytingar hjá þessum börnum og er það hið þriðja atriði til aðgreiningar frá flogaveiki. Horfur Horfur eru mjög góðar. Köstin eldast af þessum krökkum, sem fyrr segir, alltaf fyrir 7 ára aldur, án eftirstöðva, eins og t.d. flogaveiki. Þessi böm eru yfirleitt vel gef- in, en viðkvæm.4 Meðferð Besta meðferðin er að gera foreldrum ljósa grein fyrir hættuleysi krampanna og góð- um horfum og reyna að fá þau til að slaka á, þegar barnið fer í krampaköstin. Yfir- leitt er engin lyfjameðferð nauðsynleg og venjuleg krampalyf hafa engin áhrif á þessi köst. Þess má geta, að köstin hætta svo til alltaf innan mínútu, hvað svo sem gert er, og því ekki ráðlegt, að flengja barnið eða krækja fingri aftur fyrir tungu, eins og sumir hafa bent á, aðeins leggja barnið á hliðina og tryggja opinn loftveg. Dauðsfalli í áreitikrampa hefur mér vitan- lega aðeins einu sinni verið lýst. Var hér um að ræða barn, sem aspireraði í kasti, með munninn fullan af mat. Ef fölvaköstin eru mjög tíð og ógnvekj- andiandi fyrir umhverfið, mætti reyna Atropin 0,01mg/kg/dag, m.t.t. þeirrar ný- legu kenningar, að pathophysiologiu fölva- kastanna megi yfirleitt rekja til reflector- iskrar hjartastöðvunar, vegna vagus stimu- lationar.9 Erfiðara hefur gengið, að sýna fram á pathophysiologiu blámakastanna, en endanlega er það heila-anoxia, sem veldur meðvitundarmissi og, ef hún helst nógu lengi, krömpum. HITAKRAMPAR (Convulsiones in febre) Hiti er langalgengasta orsök krampa hjá börnum og talið er að um 3—4% allra barna fái einn eða fleiri hitakrampa innan 6 ára aldurs. Gerður er greinarmunur á svokölluðum einföldum eða góðkynja hita- krömpum annars vegar, og hins vegar ill- vígum hitakrömpum eða dulinni epilepsiu, sem fyrst skýtur upp kollinum í hitakasti, þar sem hár hiti lækkar krampaþröskuld- inn hjá öllum börnum. Einkenni einfaldra hitakrampa 1. Grand mal krampar, sem koma alltaf með hita og oft í byrjun hitahækkunar, (innan sólarhrings hjá miklum meiri- hluta). 2. Fyrsti hitakrampinn kemur á aldrinum 6 mánaða—6 ára, (meðalaldur upphafs- krampa 23ja—24urra mán. aldurinn).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.