Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1992, Page 28

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1992, Page 28
28 LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 22 00 NÝ AÐFERÐ TIL MÆLINGA Á MAGNI OG t OO ISÓTÝPUSAMSETNINGU Á OPSÓNERUÐUM MÓTEFNAFLÉTTUM. Jóna Freysdóttir, Ingileif Jónsdóttir. Ásbjörn Sigfússon, Kristján Steinsson og Helgi Valdimarsson. Rannsóknastofu Háskólans i Ónæmisfræði, Landspítala. Virkni sumra sjálfsofnæmissjúkdóma tengist magni og isótýpusamsetningu mótefnaflétta í blóði. Margar aðferðir hafa verið notaðar til að mæla mótefnafléttur, en flestar eru seinlegar og ónákvæmar, auk þess sem mismunandi próf greina ekki endilega samskonar mótefnafléttur. Við höfum þróað næmt og áreiðanlegt ELISA próf til að ákvarða magn og ísótýpusamsetningu opsóneraðra mótefnaflétta (sem innihalda afurð komplimentvirkjunar, C3d) i blóði. Aðferðin er fljótleg, krefst ekki útfellingar á mótefnafléttum úr sýnum og truflast ekki af gigtarþáttum eða friu C3d, sem geta verið i töluverðu magni i sýnum sjúklinga með sjálfsofnæmi. Ferskt EDTA-plasma er fryst og geymt við - 70°C uns það er notað til mælinga. Með prófinu má einnig greina samsetningu mótefnaflétta m.t.t. mismunandi isótýpa. ELlSA-bakkar eru húðaðir með mótefnum gegn C3d, sem veiða niótefnaflétlur úr blóðvökvanum. Flétturnar eru siðan greindar með mótefnum gegn IgM, lgG eða lgA, sem tengd eru alkaliskum fosfatasa, en virkni hans endurspeglar magn mótefnafléttanna. Með þvi að nota FtabL hluta mótefna gegn C3d til húðunar á ELISA bökkunum var hægt að koma i veg fyrir að gigtarþættir trufluðu prófið, en það gerist ef húðað er með heilum mótefnum. Fetta er mikilvægt, þar sem mörg sýni sjúklinga með sjálfsofnæmi innihalda gigtarþætti. Við höfum einnig sýnt fram á að fritt C3d, sem myndast við komplimentræsingu, truflar ekki bindingu mótefnafléttanna við C3d mótefnin á ELISA bökkunum, jafnvel ekki í styrk sem er mun hærri en nokkru sinni finnst i sjúklingasýnum. ísótýpusértækar mótefnafléttur voru mældar í plasma 66 heilbrigðra blóðgjafa og 95% efri viðmiðunarmörk voru ákvörðuð fyrir mótefnafléttur af IgM-, IgG- og IgA-gerð. Breytileiki innan og milli prófa var 7-27%. Með þessu prófi gátum við mælt hækkun á magni mótefnaflétta i plasma sjúklinga með mótefnafléttusjúkdóma. Mótefnafléttur voru myndaðar iit vitrn og opsóneraðar mismikið. Mælingar í ELISA prófinu voru bornar saman við mælingar i öðru prófi, sem byggir á hæfni flétta til að ræsa komplíment (complement consumption assay, CCA), og reyndist vera marktæk fylgni (r=0.92) mótefnafléttumagns, sem mældist með þessum tveim aðferðum. Til að meta notagildi ELISA-prófsins við mat á sjúkdómsvirkni væri æskilegt að mæla sýni frá stærri hópum sjúklinga og bera saman við kliniskt mat og mælingar með fleiri aðferðum sem meta mótefnafléttur og komplimentvirkni. E 34 IILUTDEILD MANNA-BINDIPRÓTÍNS Í ÓNÆMISVÖRNUM LÍKAMANS. Guðmundur Jóhann Arason. Steffen Thiel* og Helgi Valdimarsson. Rannsóknastofu Háskólans i Ónæmisfræði, Landspítalanum og *Inst. Med. Microbiol., Árósum. Mannan-bindiprótein (MBP) er kalsíum-háð lektin sem svipar mjög til komplementþáttar Clq bæði hvað varðar byggingu og hlutverk. I’að er talið mikilvægt fyrir ósértæka opsóneringu örvera. Rannsóknir hafa sýnt að um 30-40% sjúklinga með afbrigðilega tiðni sýkinga mælast lágir í opsoninvirkni. Við höfum mælt opsoninvirkni i 190 fullorðnum og 280 börnum. bessir einstaklingar höfðu flestir sögu um afbrigðilegar sýkingar. Notað var próf sem byggir á gersveppnum Saccharomyccs cerevisiae. Opsoninvirkni reyndist gölluð i 75 (40%) fullorðinna og 69 (25%) barna. Magn MBP var mælt með ELISA aðferð i 270 þessara sjúklinga, og reyndist vera náin fylgni milli opsoninvirkni og MBP magns. bau fáu sýni sem sýndu veruleg frávik hafa liklega komplementgalla eða mótefni gegn S. cerevisiae. bessar niðurstöður benda til að MBP sé mikilvægur stuðningsþáttur í vörnum líkamans gegn örverum, og þá liklega fyrst og fremst þeim sem innihalda mikið af mannan.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.