Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1992, Qupperneq 68
64
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 22
W 4 LYFJAHVÖRF MEBEVERÍNS: RANNSÓKNIR Á
UMBROTSEFNUM MEBEVERÍNS í I*VAGI
Jakob Kristinsson, Ingibjörg Halla Snorradóttir og
Magnús Jóhannsson, Rannsóknastofu í lyfjafræði, Há-
skóla íslands.
Mebeverín er lyf, sem notað hefur verið síðan
1965 við meðferð á "colon irritabile". Flestar klínísk-
ar rannsóknir virðast staðfesta gagnsemi þess. Dýra-
tilraunir hafa sýnt að lyfið hefur óumbreytt allkrðft-
uga ósérhæfa slakandi verkun á slétta vöðva í melt-
ingarvegi og legi. Hefur verkun þess í mönnum ver-
ið rakin til þess.
Fram að þessu liafa umbrot mebeveríns lítt verið
rannsökuð. Lyfið er estri af mebeverínalkóhóli (4-
[etýl(4-metoxý-a-metýlfenetýl)amínó]-l-bútanóli) og
veratrfnsýru (3,4-dímetoxýbenzósýru). Fram hafa
komið fullyrðingar um að efni þessi séu aðalumbrots-
efni mebeveríns. Fyrri rannsóknir okkar staðfestu að
veratrínsýra væri eitt af umbrotsefnum mebeveríns í
mönnum. Fannst hún í talsverðu magni, bæði í
plasma og þvagi, eftir töku þess í lækningalegum
skömmtum. Hins vegar fannst ekkert óumbreytt
mebeverín, hvorki í plasma né þvagi.
Tilgangur þessarar rannsóknar var að rannasaka
nánar hvemig umbrotum mebeveríns í mönnum væri
háttað. Þvagsýni úr einstaklingum, sem tekiö höfðu
270 mg af mebeverínklóríði í töfluformi, voru rann-
sökuð með gasgreiningu á súlu og massagreiningu
(GC/MS). Niðurstöður rannsóknanna sýndu, að
mebeverín umbrotnar í mönnum í mebeverínalkóhól
og veratrínsýru. Veratrínsýra, sem er aðalumbrots-
efni mebeveríns, umbrotnar síðan áfram í vanillín-
sýru, ísóvanillínsýru og prótókatekúsýru. Mebever-
ínalkóhól, sem kemur fyrir í mjög litlu magni í þvag-
inu, umbrotnar áfram í mebeverínfenól (4-[etýl(4-
hýdroxý-a-metýlfenetýl)amínó]-l-bútanóI). í ljós kom
að u.þ.b. 45% af lyfinu skilst út í þvaginu á einum
sólarhring, 32% sem veratrínsýra, 6,7% sem
ísóvanillínsýra, 2,9% sem vanillínsýra, 2,2% sem
mebeven'nfenól og 0,9% sem mebeverínalkóhól. Ör-
lítið skilst út sem prótókatekúsýra. Ekken óumbreytt
mebeverín fannst í þvaginu og staðfesti það fyrri
niðurstöður okkar.
Rannsóknir þessar, svo og fyrri rannsóknir okkar
á lyfjahvörfum mebeverfns sýna, að lyfið umbrotnar
mjög hratt eftir irintöku. I fyrri rannsóknum höfum
við sett fram þá tilgátu, að verkun þess stafi annað
hvort af umbrotscfnum þess eða staðbundinni verkun
í þörmum. Nýleg erlend rannsókn gefur til kynna að
lyfið komi að gagni við tíðaverkjum, sé það tekið per
os. Sé það rétt, kemur staðbundin verkun ekki til
greina. Eitthvert af umbrotsefnum mebeveríns hlýt-
ur þá að vera virkt.
V 5 AHRIF CYKLÓDEXTRINA Á EÐLIS- OG
EFNAFRÆÐILEGA EIGINLEIKA LYFJA.
Hafrún FriðriksdóUir. lóhanna
Baldvinsdóttir. Birna J Ólafsdóttir,
Þorsteinn Loftsson, Anna M Sigurðardóttir.
Markmið þessara rannsókna er að
athuga eiginleika cýklódextrína sem
hjálparefna í lyfjaiðnaði.
Cýklódextrín eru hringlaga fásykrungar
sem myndaðir eru úr 6(a-cýkiódextrin),
7((3-cýklódextrín) eða 8(y-cýklódextrín)
glúkósaeiningum tengdum saman meö
a( 1,4) tengjum. Sameindin er vatnssækin
að utan en fitusækin að innan.
Cýklódextrín geta myndað komplexa með
fitusæknum lyfjum þar sem lyfin ganga
inn í hið fitusækna op
cýklódextrínsameindarinnar að hluta eða
að öllu leyti. Komplexmyndunin breytir
leysanleika, stöðugleika og aögengi
lyf janna.
Rannsóknir á áhrifum cýklódextrína á
leysanleika, stöðugleika og aðgengi hafa
verið gerðar á ýmsum lyfjaflokkum.
Komið hefur í Ijós að cýklódextrín auka
vatnsleysanleika flestra fitusækinna lyfja
og þar með aðgengið. Dæmi um þetta eru
krabbameinslyfið lomustín og barksterinn
dexametasón.
Við athuganir á áhrifum cýklódextrína á
stöðugleika lyfja sýna niðurstöður að þau
geta bæði hægt á og aukið hraða niðurbrots.
Dæmi um lyf þar sem niðurbrotshraðinn
minnkar er krabbameinslyfið estramústín
en dæmi um lyf þar sem niðurbrotshraðinn
eykst er sýklalyfið fenoxymetýlpenicillin.
Það afbrigði af cýklódextríni sem mest
hefur verið unnið með er
2-hýdroxypropyl-í3-cýklódextrín sem er
vatnsleysanlegt afbrigði af 13-cýkIódextríni.
Auk þessa verður sýnt hvernig
cýklódextrín hafa áhrif á leysanleika
ýmissa rotvarnarefna og á stöðugleika
sætuefnisins aspartams.