Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1992, Blaðsíða 98
94
LÆKNABLAÐIÐ/FYLGIRIT 22
w 51 TILEFNI SAMSKIPTA í IIEIMILISLÆKN-
ÍNGUM.
Fjölstöðvarannsókn á innihaldi hcimilislækninga á
Islandi.
Þorstciiin Niálsson. Ronald G. McAulcy. Heilsu-
gæslustööin Hellu/Heimilislæknisf'ræöi H.í.
Inngangur: I skráningarkerfi heilsugæslustööva eru
tilefni þess aö fólk leitar til stöövanna lykluö á
kerfisbundinn hátt. Þar eö tilefni samskipta eykur
skilning á kvörtunum sjúklinga og ástæöum sem
liggja aö baki hverrar komu þótti áhugavert aö gera
faraldsfræöilega athugun á þessum þætti.
Efniviöur og aöferöir: Upplýsingum um tilefni sam-
skipta á íslenskum heilsugæslustöövum vtir aflaö í
afturvirkri fjölstöövarannsókn. Sextán íslenskar
heilsugæslustöövar, sem höföu tölvuvætt öll sam-
skipti 1. janúar til 31. desember 1988, lögöu til efni.
Þar af voru 12 í dreifbýli og 4 í þéttbýli.
Niöurstööur: Alls voru skoöuö 284.348 tilefni sam-
skipta; 36-39% voru vegna sjúkdómseinkenna og 44-
50% vegna frumkvæöis heilbrigöisstarfsmanna.
Síöastnefndi hópurinn nær til allra lytjaendurnýjana,
sem voru 17-18% af öllum tilefnum samskipta.
Algengustu sjúkdómskvartanirnar voru frá stoökerfi,
þ.e. 6,6-7,3% af öllum tilefnum samskipta. Fimm
algengustu einstöku einkennin, sem uröu tilefni
samskipta voru: útbrot, hósti, kvef, einkenni frá
fótlimum og hiti.
Alyktanir: . Skráningarkerfi þetta gefur kost á aö
rekja afdrit' sérhvers sjúkdómseinkennis sem sjúkl-
ingur kemur meö, þ.e. tilefni, greiningu, úrlausn og
eftirlit, í þeirri samfelldu þjónustu sem heimilis-
læknar vilja veita. Sú staöreynd aö sjúkdómseinkenni
eru aöeins í um 40% tilvika tilefni samskipta staö-
festir Ijölbreytileika í starfinu, svo sem drjúgan þátt
eftirlits og heilsuverndarstarfs. Viö erum minnt á aö
algengir hlutir eru algengir í heimilislækningum, en
þrátt l'yrir þaö þarf frekari rannsóknir til aö auka
skilning á atburöarás samskipta.
V 52 GREININGAR í HEIMILISLÆKNINGUM.
Fjölstöövarannsókn.
Þorsteinn Niálsson. Ronaid G. McAuley, Jóhann Ág.
Sigurösson. Heilsugæslustööin Hellu/Heimilislæknis-
fræöi Háskóla íslands.
Inngangur: Kerfisbundin skráning samskipta íbúa viö
heilsugæsluna hófst á Egilsstööum 1976 og síöar á
öörum stöövum. Tíöni og tegundir vandamála og
sjúkdómsgreininga fólks á vel aförkuöum rann-
sóknasvæöum geta gefiö glöggar faraldsfræöilegar
upplýsingar um heilsufar íbúanna. Tilgangur þessarar
rannsóknar var því aö nýta þessa umfangsmiklu
skráningu meö því aö safna saman gögnum frá
mörgum svæöum og fá þannig heildræna mynd af
heilsuvandamálum.
Efniviöur og aöferöir: Upplýsingum um vandamála-
og sjúkdómsgreiningar var aflað í afturvirkri fjöl-
stöövarannsókn. Sautján íslenskar heilsugæslu-
stöövar, 13 í dreifbýli og 4 í þéttbýli, sem höföu
tölvuvætt öll samskipti 1. janúar til 31. desember
1988, lögöu til efni.
Niöurstööur: Alls voru 293.133 greiningar gefnar
50.865 íbúum á árinu sem skoöaö var. Hver einstak-
lingur fékk aö meöaltali 2,3 mismunandi greiningar
á ári. Stoðkerfissjúkdómar voru 9,0-9,5% af öllum
greiningum sem gefnar voru (algengi 216,5/1000),
öndunarfærasjúkdómar 9,1-11,3% (algengi 236,3/-
1000), slys 5,3-8,8% (algengi 233,5/1000), hjarta-
sjúkdómar 4,7-8,6% (algengi 124,8/1000) og geösjúk-
dómar 5,9-6,0% (algengi 86,1/1000). Algengastu
einstöku greiningarnar í dreifbýli voru: Háþrýstingur,
efri loftvegasýking og vöövaverkir. I þéttbýli: Efri
loftvegasýking, bráö eyrnabólga og háþrýstingur.
Greiningar sem leiddu af sér tíöustu heimsóknirnar
voru: Illkynja sjúkdómar 4,0-5,0, geösjúkdómar 3,2-
3,9 og hjartasjúkdómar 3,2-3,8 samskipti á hvern
einstakling á ári.
Ályktanir: Upplýsingasöfnun af þessu tagi er tnjög
uml'angsmikil og gefur væntanlega glögga mynd af
helstu vandamálum og sjúkdómum í heilsugæslunni.
Viö erum minnt á þaö aö algengir hlutir eru algeng-
ir. Samanburöur viö efniviö frá öörum löndum sýnir
aö miklu leiti svipaöar niöurstöður, sem undirstrikar
þá miklu möguleika og tækifæri sem íslenskt sam-
skiptaskráningarkerfi hefur í alþjóölegum rannsókn-
um í heimilislækningum.