Kjarninn - 07.11.2013, Blaðsíða 38
02/03 kjarninn íþróttir
íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu hefur skapast mikil
umræða um hvort fjölga þurfi sætum við Laugardalsvöll
til að fleiri sem vilja komist á völlinn. Þetta var síðan tengt
við að ekki væri lengur samrýmanlegt að vera með þjóðar-
leikvang sem nýttur væri bæði fyrir knattspyrnu og frjálsar
íþróttir. Því þyrfti helst að byggja nýjan frjálsíþróttaleikvang
í höfuðborginni samhliða breytingum á Laugardalsvelli.
Veltur á pólitískum vilja
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, hefur sagt í fjölmiðlum
að ekki yrði ráðist í uppbyggingu á Laugardalsvelli, sem
fæli meðal annars í sér að hlaupabrautir yrðu fjarlægðar,
völlurinn yrði lækkaður og lágreistar stúkur yrðu reistar við
hvorn enda vallarins, nema í samvinnu við eiganda vallarins,
sem er Reykjavíkurborg. Í samtali við Morgunblaðið fyrr í
þessum mánuði sagði Geir að „allt veltur á pólitískum vilja“.
Ingvar tekur undir þá kröfu að skynsamlegt væri að laga
Laugardalsvöll og byggja nýjan frjálsíþróttavöll. Peningar
til slíkra verkefna yrðu hins vegar að koma frá ríkinu.
„Forgangs röðun fjármuna hjá Reykjavíkurborg er ekki með
þeim hætti að bygging þessarra mannvirkja sé forgangs-
atriði. Það vantar til að mynda tilfinnanlega íþróttahús í
Grafarvogi. Auk þess er nauðsynlegt að ráðast í kostnaðar-
samt viðhald á mörgum öðrum íþróttamannvirkjum. Ég tel
því að Reykjavíkurborg geti ekki gert þetta. Ég styð kröfur
Frjálsíþróttasambandsins og KSÍ, en ríkið verður að borga.“
Skilgreina þarf þjóðarleikvanga
Fjórum dögum fyrir síðustu alþingiskosningar skipaði Katrín
Jakobsdóttir, þáverandi mennta- og menningarmála ráðherra,
starfshóp til þess að gera tillögu um stefnu um þjóðar-
leikvanga fyrir íþróttir. Meðal annars átti hópurinn að gera
tillögu um skilgreiningu á hugtakinu „þjóðar leikvangur“,
um hvernig aðkoma ríkis skyldi vera að verkefnum sem
tengjast skilgreindum þjóðarleikvöngum, um forsendur sem
liggja ættu til grundvallar vali á íþróttaleikvangi sem þjóðar-
leikvangi og um mannvirki í Laugardalnum sem til greina
Smelltu til að lesa frétt
Morgunblaðsins um
málið frá 1. nóvember
2013