Kjarninn - 07.11.2013, Blaðsíða 61
07/08 kjarninn Viðtal
1¦VWXõPP¡UYHU°D¡UODQGYLQQLQJD
Tinna segir Índí&Ígló standa á tímamótum. Spennandi tímar
séu fram undan þar sem fimm ára „fæðingartíma“ fyrirtækis-
ins sé lokið og hratt vaxtarskeið sé að ganga í garð.
Er fatalína ykkar fullkomlega tilbúin fyrir erlendan markað?
„Já, vörumerkið er tilbúið og grunnfatalínan. Við erum
í dag með um 130 „styles“ í hverri fatalínu og vitum við
nákvæmlega hvaða vörur eru „repeat styles“, hvaða vör-
ur seljast á fullri framlegð o.s.frv. Hins vegar munum við
stækka vörulínuna okkar þegar við förum á stærra markaðs-
svæði. Til dæmis ættu um 40 prósent af veltunni að koma frá
útifötum en við erum ekki með þau í dag. Við munum bæta
þeim við þegar við förum inn á erlenda markaði, þannig að
það sé heild í okkar vörulínu þegar hún fer í mikla dreifingu.
Öll þessi atriði eru mjög mikilvæg þegar kemur að markaðs-
setningu.“
Ekki er á vísan að róa með árangur á erlendum
mörkuðum, hvað þetta snertir. Mikil samkeppni sé á barna-
fatamarkaði og nauðsynlegt að halda vel á spöðunum ef vel
eigi að ganga. Tinna segir smásölugeirann vera krefjandi
þegar kemur að framleiðslu og birgðastjórnun. Þessir
tveir þættir skipti sköpum þegar komi að framlegð, sem
síðan byggi undir aðra hluta starfseminnar, svo sem sölu
og markaðs starf. Þess vegna sé mikilvægt að ná góðum
tengslum á rétta markaði. „Við munum ekki bara horfa til
þess að fá til liðs við okkur fólk með mikla þekkingu, hvort
sem er í hluthafahópinn eða í ráðgjöf innan fyrirtækisins,
þegar við förum á fullt með vörurnar okkar á erlenda
markaði. Við munum fara inn á erlendan markað í samstarfi
við reynslumikið fólk bæði innan smásöluverslunar, fram-
leiðslustýringar og markaðssetningar og er sá hópur full-
mótaður og tilbúinn í verkefnið með okkur. Við erum gríðar-
lega stolt af því að hafa fengið svona góðan hóp með okkur.“
Hvenær verður fyrirtækið tilbúið til þess að stíga skrefið, ef svo
má segja?
„Um áramótin,“ segir Tinna og leggur áherslu á að ítarleg
áætlun um hvað gera skuli á næstu mánuðum liggi fyrir.
„Við munum ekki
bara horfa til
þess að fá til liðs
við okkur fólk
með mikla þekk-
ingu, hvort sem
er í hluthafa-
hópinn eða í ráð-
gjöf innan fyrir-
tækisins, þegar
við förum á fullt
með vörurnar
okkar á erlenda
markaði.“