Kjarninn - 07.11.2013, Blaðsíða 68
05/05 kjarninn Karolina fund
„Ég veit ekki hvort við ráðum nokkru um það en viljum
við lifa í heimi þar sem hljómsveitir þrífast á því að selja skó,
föt, sápur og gos, eða hvað það nú er?“ spurði þá Seth.
„Þessari spurningu tengist hagfræðilegt vandamál,“ sagði
Ingi. „Ef kostnaðurinn við að búa til eitthvað eins og nýjan
kaffibolla er núll ætti kostnaðurinn við vöruna að vera núll
samkvæmt hagfræðinni, og tónlistargeirinn stendur frammi
fyrir þessari staðreynd eða kenningu“.
„Að selja hljóðritaða tónlist eru ekki viðskipti sem lista-
menn geta lifað af lengur,“ bætir Oliver við.
Er meginstraumurinn að nálgast bílskúrsböndin?
„Listamennirnir sem ég vinn með eru ekki hluti af megin-
straumi popps og rokks,“ segir Julia, „í mörg ár hefur mér
fundist meginstraumurinn vera að nálgast þær aðferðir
sem við höfum verið að nota, sem snúast ekki um plötu-
útgefendur. Fæstir af umbjóðendum okkar eru tengdir þeim.
Þeir fjármagna sig með því að selja varning á borðum á
tónleikum, hvort sem það er bolur eða geisladiskur. Ég held
að fólk vilji enn kaupa eitthvað á tónleikum; á næstum hvaða
tónleika sem ég fer á í dag er fólk að kaupa sér sjö tommu
vínylplötur.“
Ert þú við stjórn?
Með nýrri tækni getur hrikt í gömlum valdastoðum og jafn-
framt skapast tækifæri fyrir þá sem eru fljótir að aðlagast.
Sameppnin um hugi og hjörtu aðdáenda virðist síst verða
einfaldari og það að skilja ný viðmið og fóta sig í breytilegum
heimi getur virst full vinna. Enn eigum við eftir að sjá hvort
netið bjóði upp á það frelsi og lýðræði sem bjartsýnismenn
hafa spáð – þar sem allir eiga möguleika á að koma sinni
rödd að – eða hvort nýir lyklapétrar taki sér stöðu milli upp-
rennandi listamanna og heimsfrægðar, og stýri frelsinu sér
í hag. You are in control, og sá fjöldi fyrirlestra og málstofa
sem þar fer fram árlega, er prýðilegur innblástur fyrir slíkar
vangaveltur.